Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1995, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1995, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 27. MARS 1995 15 Kjarasamningar og launajöf nuður Þótt kjarasamningar hafi verið undirritaðir á milli ASÍ og VSÍ er enn ósamið við opinbera starfs- menn. Öll félög innan BSRB hafa lagt fram kröfugerðir sínar. Það hefur verið yfirlýst stefna núver- andi stjórnvalda að fyrst skuli ljúka kjarasamningi á hinum svo- kallaða almenna markaði áður en samið yrði við opinbera starfs- menn. Það er ekkert nýtt að opinberum starfsmönnum sé boöið þaö sama og um er samið á milli aðildarfé- laga Alþýðusambands íslands og samtaka atvinnurekenda. Þetta var gert í samningunum 1993 og hafn- aði BSRB á þeim forsendum að ekki lá þá fyrir tekjuöflun vegna kostnaðar hins opinbera af kjara- samningum. Það sama endurtekur sig nú með yfirlýsingu forsætisráð- herra. Einn þúsundkall Þeir voru glaöbeittir forystu- menn atvinnurekenda þegar þeir lýstu innihaldi nýgerðs kjarasamn- ings. Þema samnings þessa var „launajöfnun" og felur í sér að þús- undkaúi er útdeilt á lægstu launin. Hver skyldu þau nú vera? Jú, laun frá 43 þúsundum. Ég spyr, er ekki kominn tími til að fella þessa lægstu taxta út úr launastiganum? Ef samningsaðilar meina eitthvað með launajöfnun hefði upphæðin einfaldlega átt að vera hærri en einn vesæll þúsundkall. Innihald samningsins gefur mönnum ekki tilefni til að berja sér á brjóst og tala um tímamótasamn- ing hvað láglaunafólk snertir. Það má með sanni segja að þeir séu ht- illátir verkalýðsleiðtogarnir þegar þeir tala um að innihald samnings- ins sé í samræmi við það sem lagt var upp með. Það er líka í samræmi við þau ummæli forsætisráðherra. „Aö erfitt sé að lifa af lægstu laun- um og það muni alltaf verða svo“. Þokkaleg framtíðarsýn hjá Davið Oddssyni. Óþolandi vinnubrögð Enn einu sinni var BSRB haldið KjaUarinn Guðný Aradóttir varaformaður Alþýðu- bandalagsins i Kópavogi utan við samningaviðræður ríkis- stjórnar ASÍ og samtök atvinnu- rekenda um aðgerðir ríkisstjórnar- innar til að kjarasamningar gætu tekist. Tékkinn sem forsætisráð- herra gaf út í tengslum við gerð þessa kjarasamnings er með öllu innstæðulaus. Að ekki skuli vera talað við aöildarfélög BSRB þegar um svo veigamikla ákvarðanatöku er að ræða sem varðar allt launa- fólk eru óþolandi vinnubrögð því eftir sem áður mun tékki stjóm- valda vera greiddur af launafólki. í yfirlýsingu stjórnvalda er ein- göngu verið að skila til baka broti af þeim álögum sem lagðar hafa verið á launafólk í tíð þessarar rík- isstjórnar. Aðgerðir stjómvalda hvað tvísköttun lífeyrisgreiðslna varðar hefði ég haldið að væm rétt- lætismál en ekki skiptimynt í samningum. Aögerðir þessar em í anda ríkisstjórnarinnar því þeir sem minnst bera úr býtum eru launafólk á lægstu- og miðlungs- töxtum. Hátekjufólki koma þessar aðgerðir vel. Það ber mest úr být- um vegna skattafrádráttar á lífeyr- isgreiðslum. Það ber hins vegar að fagna að verðtrygging fjárskuld- bindinga verði framvegis miðuð við vísitölu framfærslukostnaðar. Engin húrrahróp húrra fyrir þessum samningi þó svo að samið hafi verið um áfram- haldandi stöðugleika. Enda sýnir atkvæðagreiðsla félagsmanna Dagsbrúnar að ekki er eintóm ánægja þar með nýgerðan kjara- samning. Grýla stjómvalda og at- vinnurekenda er að launafólk stofni stöðugleikanum sem náðst hefur í íslensku efnahagslífi ekki í hættu. Hvemig hefur þessi stöðug- leiki náðst? Jú, með auknum álög- um á launafólk. Opinberir starfsmenn hrópa ekki húrra yfir yfirlýsingu stjórnvalda meðan ekki fylgja útskýringar á hvernig afla á þeirra 3ja milljarða sem yfirlýsingin kostar ríkissjóð. „Ekki falla þessi 3 milljaðar af himnum ofan eins og tyggjóið forð- um austur á Selfossi." Guðný Aradóttir Það er engin ástæða til að hrópa „Það má með sanni segja að þeir séu litillátir verkalýðsleiðtogarnir... “ „Enn einu sinni var BSRB haldið utan við samningaviðræður ríkisstjórnar ASI og samtök avinnurekenda um að- gerðir ríkisstjórnarinnar til að kjara- samningar gæu tekist.“ Þeir bjóða ekki fram - eða hvað? Sterk staða Sjálfstæðisflokksins nú, þegar fyrir liggur árangur hans í ríkisstjórn þrátt fyrir erfiðar að- stæður, hefur kallað fram örvænt- ingarviöbrögö vinstri flokkanna, m.a. R-hstans í borgarstjóm Reykjavíkur. Úr þeirri átt koma nú ógeðfelldar árásir og ósannsögh í garð Sjálfstæðisflokksins. Lág- kúruleg vinnubrögð eru ástunduð, eins og það að veitast að grandvör- um og sómakæmm borgarfuhtrú- um eins og Ingu Jónu Þórðardóttur og Áma Sigfússyni. Hér er átt við „skýrslumáhð" svo- nefnda sem R-listinn lætur hátt um í fjölmiðlum um þessar mundir, auðvitað í þeim tilgangi einum að veitast að Sjálfstæðisflokknum nú rétt fyrir alþingiskosningar. Það er auðvitað deginum Ijósara að tíma- setning þessa lúabragðs og leikara- skapar er engin thvifjun. Val kjósenda Val kjósenda stendur um tvennt: Sterka stjórn undir forystu Sjálf- stæðisflokksins, kjölfestunnar í ís- lenskum stjómmálum, flokks allra stétta. Honum einum er treystandi til að efla atvinnulífið, gæta hags- mima okkar í eriendri samkeppni og að bæta lífskjör okkar. Sjálf- KjaUaiinn Leo Ingason cand mag. i sagnfræöi og bókasafns- og upplýsinga- fræðingur stæðisflokkurinn vih ekki kaupa sér vinsældir með bráðabirgða- lausnum sem koma í hausinn á okkur aftur heldur hefur hann þor til að móta og fylgja stefnu þar sem langtímamarkmið eru höfð að leið- arljósi. Hinn valkosturinn er samsteypa 5 eða fleiri flokka og flokksbrota sem berast nú á banaspjótum inn- byrðis, reyna að setja upp nýjar grfmur eða kljást við eigin fortíðar- vanda. Við vitum af reynslunni að shk stjóm ólíkra afla, málamiðlana og gervhausna, sem ætlaðar era til að ná stundarvinsældum, verður máttlaus. - Við megum ekki við shku. Við þurfum sterka stjórn sem hefur kjark, þor og hæfni th að leiöa okkur áfram á hinni réttu braut. Það er enginn andstæðing- anna hæfur til að gegna forystu- hlutverkinu sem Davíð Oddsson hefur gegnt af svo stakri prýði. Sendu kveðju Ég hvet þig, kjósandi góður, eink- um af því að R-hstinn er með þetta ómerkilega brölt tengt komandi kosningum, að senda honum kveðju þína í kjörklefanum hinn 8. apríl. Minnstu klósettskattsins sem hefur af þér launahækkanir fyrirfram, klúðursins með málefni félagsmálastofnunar, stöðumæla- skattsins, hla gerðrar fjárhagsáætl- unar borgarinnar, bakreikninga eins og heilbrigöiseftirlitsgjaldsins, niðurskurð framlaga til atvinnu- mála, ýmissa aukinna álaga á borg- arbúa, niðurskurðar gagnvart barnaspítala, Geysishússmálsins, sýndarlækkunar launa borgarfull- trúa. Áfram mætti telja. Kvittaðu, kjósandi góður, fyrir allt þetta í kjörklefanum hinn 8. apríl. Það er engin ástæða th að ætla að þessir R-listaflokkar hagi sér betur geti þeir myndað vinstri stjórn, slíkt yrði þjóðinni mikið áfah. Leo Ingason „Val kjósenda stendur um tvennt: Sterka stjórn undir forystu Sjálfstæðis- flokksins, kjölfestunnar í íslenskum stjórnmálum, flokks allra stétta.“ Adminnkahluttogara ikvóta Að sjálfsögðu prósent kvóta er sett fram sem hugmynd. Hins vegar teljum viö að togveiðin hafi siv aukist of mik- íð á kostnað bátafiotans. Undir þettataka margir með okkur. Við viljum líka færa togarana utar í landhelgina miðað vdö það sem nú gerist. Undir þetta taka líka margir. Meö þessu teljum við að aukist vistvæni veiða. Við teljum að hin stórvirku togveiðarfæri skemmi hafsbotninn og þar með lífríki hans. Við erum líka að skoða það hvort ekki eigi aö banna fiottroh nema á karfaslóð en þó ekki yfir gottíma hans. Með þvd að minnka togveiðarnar hlut- fallslega í þorskinum fáum viö betra hráefni sem nýtist betur til fuilvinnslu. Vegna þessa setjum við frambjóðendur Framsóknar- flokksins í Reykjaneskjördæmi fram þessar áherslur. Það er af og frá að viö séum að tala um að rústa kvótakerfið, eins og sumir hafa verið að segja. Það er hrein- lega alrangt enda gerum vdð ráð fyrir að áfram vorði aflamarks- kerfi. Við viljum bara þróa kerfið í þá átt að bátaflotinn veiði stærri hlut af kvótanum en togararnir. Við teljum að þeir eigi að vera í öðrum tegundum í úthafsveiðum, eins og þeir hafa raunar verið að gera, auk þess sem benda verður á að togaraflotinn hefur aukist alltof mikið.“ Ber keim af atkvæða- veiðum „Ég cr al- gcrlcga and- vígur þessum hugmyndum og rökin eru augljós. Tog- ararnir hafa orðið fyrir kvótaskerð- ingu eins og Önnur fiski- Sl9tirt>|8rn SmnnirssDn skip. í um- ú'aertnrsliórl ræöunni gleymist það oft að það eru einmitt smábátamir sem hafa náð verulega aukinni afla- hlutdehd á kostnað annarra veiðiskipa fyrir ofan 12 tonn. Þaö að loka grunnslóö er eitthvað sem verður aö skilgreina betur aö minu mati. Eins og er er lokaö mjög víöa fyrir togarana upp aö 12 sjómílum. Auk þess eru ótal svæði lokuð vegna of mikils smá- fisks, reglugeröarhólfa og vernd- unar karfans, svo eitthvað sé nefnt. Kvótinn er þannig saman settur hjá togurunum suðvestan- lands að togarar Granda th að mynda eru með 8 prósent í þorski af hehdarkvóta sem dugar tæpast th aö ná hinum kvótanum í ufsa og karfa. Um það bil 60 til 70 pró- sent af okkar kvóta eru í karfa. Sá karfi veiðist ekkí utan 200 mílnanna og við náum honum ekki nema einhver þorskur fylgi með. Það þarf að nýta þessar teg- undh’ og þær nást aldrei á bátum. Það þarf togara th. Þetta vita allir sem fylgst hafa með útgerð. Þess vegna þykir mér tihaga fram- sóknarmanna á Reykjanesi vera óraunhæf og bera keim af at- kvæðaveiðum fyrir kosningar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.