Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1995, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1995, Blaðsíða 40
MÁNUDAGUR 27. MARS 1995 Nemendur gera sér ýmislegt til dundurs í verkfallinu. Mikil uppgjöf í kringum mig „Ég tek eftir því aö það er mik- il uppgjöf í kringum mig. Fólk er farið að tala um að fara þara til útlanda. það taki því ekki að bíða eftir að verkfallið leysist." Edda Magnus nemandi í OV. Aðalatriðið að hætta slagsmálum „Aðalatriðið nú er að fólk komi saman og hætti slagsmálum." Sigriður Pétursdóttir hundaræktarkona i DV. Geta hvorki lifað né dáið „Staðan er orðin þannig að fjöl- margir bændur geta hvorki lifað né dáið.“ Bergur Pálsson bóndi i Alþýðublaðinu. Ummæli Ekki steingeldur flokkur „Ég lít á þetta sem hótanir en tek þær ekki nærri mér. Þetta sýnir að Framsóknarflokkurinn -er ekki steingeldur flokkur." Siv Frióleifsdóttir í DV. Ekki einu sinni enn „Það er ekki hægt að bjóða enn einu sinni upp á Gunnar Kjart- ansson. Hann verður að hætta þessu því þetta er slæmt fyrir handboltann.“ Þorbjörn Jensson þjálfari i Morgunblaðinu. Klikkar en vinnur samt „Það er ekki sanngjarnt að lið vinni sem klikkar á 14-15 dauða- færum.“ Guðríður Guðjónsdóttir þjálfari i DV. Borgarísjakar geta verið griðar- lega stórir. Stærsti borg- arísjakinn Nýlega bárust fréttir af gríðar- lega stórum borgarísjaka sem er laus frá meginlandinu en varla er hann stærri en sá stærsti sem vitað er um. Það var áriö 1956 sem bandarískt herskip sá risaborg- arísjaka í Suður-íshafinu. Var hann meira en 31.000 km2 (335 km á lengd og 97 kmá breidd) og því meiri að flatarmáli en Belgía. ís- inn sást vestur af Scott-eyju í Suður-Kyrrahafi. Hæsti ísjaki sem sést hefur var 167 metra hár Blessuð veröldin og sást frá bandaríska ísbrjótnum East Wind árið 1958 út af vestur- strönd Grænlands. Úti í hafsauga Sá blettur á jarðarkringlunni sem telja verður lengst úti í hafsauga er í Suður-Kyrrahafi á um það bil 48° 30’ s. br. og 125° 30’ v. 1. Þaðan er hvergi styttra en um 2670 km til lands og er það til Pitcaim-eyjar, Ducie-eyjar og Dart-höfða á Suðurheimskaut- inu. Þetta er miðpunktur hrings sem ekkert þurrlendi er á og nær yfir 22.421.500 km2. Léttskýjað sunnanlands í dag verður norðan gola og dálítil él norðaustan til á landinu en hæg norðaustlæg eða breytileg átt og létt- Veðrið í dag skýjað annars staðar. Hiti veröur nálægt frostmarki sunnan til á land- inu er frost á bilinu 1 til 4 stig norðan til. Á höfuðborgarsvæðinu verður hæg noröaustlæg átt og léttskýjað. Hiti veröur nálægt frostmarki. Sólarlag í Reykjavík: 20.00 Sólarupprás á morgun: 7.05 Síðdegisflóð í Reykjavík: 15.18 Árdegisflóð á morgun: 3.51 llt‘iiuild: Aliunuuk llnskóluns Veðrið kl. 12 í gær: Akureyri úrkoma í grennd 6 Akurnes hálfskýjað 0 Bergsstadir úrkoma í grennd 6 Bolungarvik snjóél 7 Egilsstadir hárfskýjað 2 Keflavikurfhigvölhir skýjað 4 Kirkjubæjarklaustur léttskýjað 2 Raufarhöfn snjóél á síð. klst. 2 Reykjavík léttskýjaö 4 Stórhöfði léttskýjað -5 Helsinki léttskýjað 4 Kaupmannahöfn skýjað 6 Stokkhóhnur léttskýjað 6 Þórshöfn snjóél -2 Amsterdam skýjað 10 Berlín skýjaö 9 Feneyjar, þokumóða 15 Frankfurt rigning 9 Glasgow rigning 9 Hamborg skýjaö 7 London skýjað 11 Lúxemborg súld 8 Mallorca léttskýjað 19 Montreal heiðskírt -1 Nice skýjaö 15 Oriando léttskýjad 14 París skýjað 14 Róm þokumóða 14 Vin rigning 5 Washington skýjað 7 Winnipeg slydduél 1 Gylfi Þór Magnússon, framkvæmdastjóri markaðsmála SH: f •! r r i i A r Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii „Þetta leggst mjög vel i mig, hér er um afskaplega skemmtilegt verkefni að ræða og með þessu fyr- irkomulagi erum við að brjóta upp hefðbundið form á starfsemi fyrir- tækisins. Það gefur ókkur mögu- leika á að styrkja fyrirtækiö og efla Maður dagsiris þjónustuna viö framleiðendur um allt land þótt Akureyrarskrifstofan muni e.t.v. sinna meira Norður- landi og Austfjörðum," segir Gylfi Þór Magnússon, framkvæmda- stióri markaðsmála Sölumiðstöðv- ar hraðfrystihúsanna, en hann verður yfirmaður skrifstofu fyrir- tækisins sem tekur til starfa á Ak- ureyri í sumar. Gylfi Þór er Reykvíkingur og við- skiptafræðingur frá Háskóla ís- lands árið 1969. Hann hóf störf hjá SH árið 1981 og veitti í byrjun for- Gytfi Þór Magnússon. stöðu söluskrifstofu fyrirtækisins í Hamborg og kom henni reyndar á laggirnar. Sex árum síðar varð hann sölustjóri fyrirtækisins og loks framkvæmdastjóri markaðs- mála en undir hann heyrir sam- ræming á framleiðslu- og sölumál- um og upplýsingamíðlun til sölu- skrifstofa og dótturfyrirtækja er- lendis, svo eitthvað sé nefnt. „Það leggst mjög vel í mig að flytja til Akureyrar, konan mín er reyndar þaðan og margt af hennar frændfólki er þar. Flutningurinn verður ekki erfiður fyrir mig per- sónulega; annað bamið okkar, sem er orðið fulloröiö, verður reyndar áfram í Reykjavík við nám og störf en 11 ára dóttir okkur hlakkar til að flytja noröur." Gylfi Þór er „gamall skáti", eins og hann orðar það. „Útilíf er af- skaplega stór þáttur í minum frí- stundum og fjölskyldunnar, bæði göngu- og skíðaferðir, og þaö er síð- ur en svo að flutningurinn noröur verði til að torvelda okkur að sinna þeim ahugamálum. En þar fyrir utan er starfið afskaplega kre- tjandi, mikið um ferðalög og oft þarf að sinna viðskiptavinum utan vinnutíma.” Gylfi Þór er giftur Sigríði Dóra Jóhannsdóttur hárgreiðslumeist- ara og þau eiga tvö börn. Myndgátan Hver verður deildar- meistari í 2. deild? ÍBV og Grótta eru búin að tryggja sér sæti í 1. deildinni í handbolta á næsta keppnistíma- bili. ÍBV gerði stuttan stans i 2. deildinni, féll í fyrra og fer strax upp aftur en nokkuð er langt síð- an Grótta var i 1. deild. Um tima hafði hún sterku liði á að skipa i 1. deild. Það er samt ekki útkljáð Iþróttir hver er deildarmeistari í 2. deild en í kvöld mæta Vestmannaey- íngar Fylki úr Árbænum og ef Eyjamenn vinna þá eru þeir orðnir meistarar. Leikurinn er i Reykjavík og hefst kl. 20.00. í körfunni er einn leikur í kvöld. ÍS og ÍA heyja seinni við- ureign sína í baráttunni um það hvort þessara félaga leikur í úr- valsdeildinni á næstá ári. Leikur- inn er í Reykjavík og hefst kl. 20.15. Skák 1 fimmtu umferð Norðurlanda- og svæðamótsins á Hótel Loftleiðum gerðu Helgi Ólafsson og Jóhann Hjartarson jafntefli eftir hörkuskák; Hannes Hlífar hélt jöfnu í erfiðri skák gegn danska stór- meistaranum Lars Bo Hansen en Mar- geir Pétursson og Þröstur Þórhallsson töpuðu sínum skákum. í gær var frídagur á mótinu en sjötta umferð hefst kl. 16 í dag, mánudag. I helgarblaðinu féllu niður leikir í skák Margeirs við Norðmanninn Einar Gausel í þriðju umferð. Staðan var svona, Mar- geir með hvítt og á leik: 8 #31 liiif É. 6 Á * A 5 & É, M 4 A A 3 4A él m i 2 A A <á? 1 & B H 24. e5! dxe5 25. Bxg6 Hh8 26. Re4 og nú eru svörtum allar bjargir bannaðar. Eftir 26. - Da4+ 27. Kbl Ke7 28. Df5 Hh6 29. De6+ gafst svartur upp. Jón L. Arnason Bridge Hætt er við að flestir spilarar í NS myndu enda í samningnum 4 spaðar á þessi spil, sem er fjarri því að vera góöur samning- ur. Sagnhafi er í stórhættu á að gefa 3 slagi á hjarta og einn á tígul. Þtjú grönd er hins vegar öruggur samningur á spilin en það er þrautin þyngri að leiða sagnir þangað með 6-4 samleguna í spaða. Það reynist sennilega flestum sagnkerfum ofviða að velja þijú grönd með skynsemi fram yfir 4 spaða án þess að skjóta meira og minna með óvissu á lokasamninginn. En hvernig er best fyrir suður að spila 4 spaða með tíguldrottningunni út? * ÁG104 V D63 ♦ Á532 4* D5 ♦ 3 ♦ K854 ♦ DG + 1087632 N V A S * 72 • Á109 ♦ 10974 + KG94 * KD9865 • G72 ♦ K86 + Á Sagnhafi drepur á kónginn, leggur niður laufás, tekur tvisvar spaða og endar í blindum. Síðan spilar hann laufdrottn- ingu, trompar hana heima og spiiar síðan lágum tigli. Vestur fær slaginn á gosann og verður að hreyfa hjartalitinn eða spila út í tvöfalda eyðu í þessari stööu: ♦ G10 • D63 ♦ Á53 * • K854 ♦ G * 1087 N V A S 4 -- • Á109 ♦ 1097 * G9 Myndgátan hér að ofan lýsir orðasambandi ♦ D98 ♦ G72 ♦ 86 4» — Glöggjr lesendur sjá í hendi sér að vestur getur hnekkt spilinu með því aö henda tígulgosanum þegar trompinu er spilað öðru sinni. ísak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.