Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1995, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 27. MARS 1995
9
Grálúðustríðið:
Kandamenn
hóta Spán-
verjum
Ekkert lát virðist vera á átökum
Kanadamanna og Spánverja
vegna grálúðuveiöa við Ný-
fundnaland. Skammt er síðan
kanadiska strandgæslan fór um
borð í spænskan togara og í gær
hótuðu þeir aö fara um borð í
annan.
Ekki kom þótil þess en togarinn
Verdel hundsaði skipanir
Kanadamanna og sagðist vera á
alþjóðlegu hafsvæði við iöglegar
veiöar. Þar voru einnig sautján
aörir togarar frá Spáni. Þrátt fyr-
ir hótanirnar í gær fóru kana-
dísku strandgæsluliðarnir ekki
um borð.
Á morgun hefst svo í New York
ráðstefna þar sem samankomnir
verða fulltrúar frá Öllum helstu
fiskveiöiþjóðum heims en ekki er
búist viö miklum árangri af þeim
fundahöldum.
Reiður ellilífeyrisþegi:
ÞoSdiekki
hroturnarog
kveiktií
Sjötíu og þriggja ára gamall
maður var í haldi lögreglunnar í
Vínarborg í Austurríki á laugar-
daginn fyrir að hafa kveikt í 69
ára gamalB konu þar í borg. Að
sögn lögregiunnar gaf maðurinn
þá ástæðu fyrir verknaði sínum
að hroturnar í konunni, sem lést,
hefðu fariö í taugamar á honum.
Bardot mótmæl-
ir illri meðferð á
dýrum
Franska kynbomban Brigitte
Bardot er enn að berjast fyrir
dýrin. I dag ætlar hún að mót-
mæla því í Brussel aö dýr séu
flutt langar vegalengdir til slátr-
unar og er búist við að hundruð
manna rauni einnig taka þátt í
þessum mótmælum ásamt hinni
60 ára gömlu, fyrrverandi kvik-
myndastjömu.
Útlönd
Hnefaleikarinn og nauðgarinn er laus úr haldi
Mike Tyson, með hvíta húfu, yfirgefur fangelsið i Indiana umkringdur lífvörð-
um. Aftan við hann er svo hinn heimsfrægi umboðsmaður Don King sem
mun væntanlega skipuleggja fyrsta bardaga hans eftir vistina í tugthúsinu.
Simamynd Reuter
ráðherrann
húkkaðisérfar
Franski for-
sætisráðherr-
ann Edouard
Balladur dó
ekki ráölaus
þcgai' þoka
hamlaöi flugi
þyrlu hans á
laugardaginn.
Þyrlan varð að lenda á íþrótta-
velh í þorpinu Barbantane í
Frakkdandi en þar fékk Baliadur
far með ökumanni Mercedes-
bifreiðar.
Forsætisráðherrann, sem nú er
önnum kaíinn í kosningabarátt-
unni, var þó ekki sá eini sem fékk
að sitja í, því umhverfisráðherr-
ann, Barnier og tveir aðrir fengu
aö fljóta raeð að sögn ökumanns-
ins, Claire Lacaillie, en hann
bætti því við að Balladur hefði
verið hinn þægilegasti og kjaftað
alla ökuferðina sem tók tíu mín-
Útur. Heuter
að andstæðingur hans verði George
Foreman, Riddick Bowe eða Evander
Holyfield.
Úr fangelsinu fór Tyson til bæna-
stundar þar sem einnig vora Mu-
hammad Ali, sem líka er fyrrverandi
heimsmeistari í þungavigt í hnefa-
leikum, og tónhstarmaðurinn M.C.
Hammer. Þaðan lá svo leiðin á herra-
garð fangans fyrrverandi í Ohio.
Tyson, sem varð fyrst heimsmeist-
ari 1986, þénaði milljónir dollara í
hringnum en sagt er að megnið af
auðæfum hans sé uppurið. Hann eigi
því um vart annað að velja en að
snúaíhringinnáný. Reuter
Mike Tyson, fyrrverandi heims-
meistari í þungavigt í hnefaleikum,
gekk út úr fangelsi í Indiana í Banda-
ríkjunum í dögun á laugardaginn.
Þar hafði hann dúsað í þrjú ár fyrir
að nauðga fegurðardís á hótelher-
bergi.
„Eg er mjög glaður að vera kominn
út og vera á leiðinni heim. Ég þakka
ölium sem hafa sýnt mér stuðning
en ég mun tjá mig frekar á næst-
unni,“ sagði í yfirlýsingu frá box-
meistaranum en hann var um-
kringdur lífvörðum þegar hann yf-
irgaf fangelsið. Með honum í för var
einnig Don King, heimsfrægur
skipuleggjandi í hnefaleikaheimin-
um, en búist er við að Tyson fari í
hringinn mjög fljótlega. Þrátt fyrir
dvöhna í fangelsinu er þessi fyrrver-
andi heimsmeistari í hnefadeikum
mjög eftirsóttur en tahð er að næsti
bardagi hans verði sá stærsti í sög-
unni, fiárhagslega séð. Rætt er um
Bílar - innflutningur
Nýir bílar
Pickup Grand Cherokee
Flestar USA-tegundir og flestar USA-tegund-
ir jeppa
Mmi. van
Ýmsar tegundir
Suzuki-jeppat
EVBILAUMBOÐ
Egill Vilhjálmsson hf
Smiðjuvegi 4 - Kópavogi simi 55-77-200
Mike Tyson á leið
í hringinn á ný
merki nýrra tíma!
Yfir 5000 hluthafar aföllum sviöum
þjóölífsins skapa þann styrk sem eini hlutafélagsbanki
landsins byggir á.
Sameiginlegt afl þessa fjölda og
samkeppni viö ríkisrekstur leiöa til framfara í
efnahagslífi þjóöarinnar.