Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1995, Blaðsíða 10
10
MÁNUDAGUR 27. MARS 1995 .
Utlönd
SXAtiSVEEÐLAUN A
BESTA MYND
Forrest Gump
Four Weddings and a Funeral
Pulp Fiction
Quiz Show
The Shawshank Redemtion
BESTILEIKARI
Tom Hanks Forrest Gump
John Travolta Pulp Fiction
Paul Newman Nobody's Fool
Nigel Hawthome The Madness ofKing George
Morgan Freeman The Shawshank Redemtion
V BESTA LEIKKONA
Jodie Foster Nell
Jessica Lange tiluc Sky
Miranda Richardsson Tom and Vív
Winona Ryder Litle Women
Susan Sarandon The Client
| ^ BESTI LEIKARI í AUKAHLUTVERKI
Samuel L. Jackson Pulp Fiction
Martin Landau Ed Wood
Chazz Palminteri Bullets Over Broadway
Paul Scofield Quiz Show
Gary Sinise Forrest Gump
[jv' BESTILEIKKONA í AUKAHLUTVERKI
Rosemary Harris Tom and Viv
Helen Mirren The Madness ofKing George
Uma Thurman Pulp Fiction
Jennifer Tilly Bullets Over Broadway
Diane Wiest Bullets Over Broadway
|K BESTILEIKSTJÚRI
Woody Allen Bullets Over Broadway
Robert Zemeckis Forrest Gump
Qucntin Tarantino Pulp Fiction
Robert Redford Quiz Show
Krzysztof Kieslovski Red
£2
BESTA HANDRIT
Allen/McGrath Bullets Over Broadway
Richard Curtis Four Weddings and...
Walsh/Jackson Hevenly Creatures
Tarantino/Avary Pulp Fiction
Piesiewicz/Kieslowski Red
i ^ BESTI HANDR. E. ÖDRUM MIDLI
Eric Roth Forrest Gump
Allan Bennet The Madness ofKing George
Robert Benton Nobody 's Fool
Paul Attanasio Quiz Show
Frank Darabont The Shawshank Redemption
W
BESTA ERLENDA MYNDIN
Before the Rain Makedónía
Burnt by the Sun Rússland
Eat Drink Man Woman Taiwan
Farineili: II Castrato Belgía
Strawberry and Chocolate Kúba
\y
BESTA KVIKMYNDATAKA
Forrest Gump
Legends of the Fall
Red
The Shawshank Redemtion
Wyatt Earp
!v'
BESTA LAG
Can You Fell the Love ... Lion King
Circle of Life Lion King
Hakuna Matata Lion King
Look What Love Has Done Junior
Make up Your Mind The Paper
jV' BESTA TÓNLIST
Allan Silvestri Forrest Gump
Elliot Goldenthal Interview with the Vampire
Hanz Zimmer Lion King
Thomas Newman Little Women
Thomas Newman The Sawshank Redemption
Óskarsverðlaunin verða afhent 1 nótt:
Milljarður jarðar-
búa mun fylgjast
með útsendingu
í nótt munu hin eftirsóttu óskars-
verölaun veröa afhent við hátíölega
athöfn í Los Angeles í Kalifomíu og
verður athöfninni sjónvarpað um
aUan héiminn, meðal annars hér á
íslandi, en Stöð 2 mun 1 nótt sýna
beint frá verðlaunafhendingunni.
Óskarsverðlaunaafhendingin nýt-
ur mests áhorfs af öllu sjónvarpsefni
í heiminum ef undan er skilinn úr-
slitaleikurinn í Heimsmeistara-
keppninni í knattspyrnu sem haldin
er á íjögurra ára fresti. Tahð er að
uni einn milljarður jarðarbúa muni
horfa á útsendinguna sem hefst kl.
18 að tíma þeirra í Kaliforníu en kl.
2 að okkar tíma.
Sú kvikmynd sem þykir líklegasti
sigurvegarinn í ár er Forrest Gump.
Hún er tilnefnd til þrettán verðlauna
og aðeins All About Eve hefur fengið
fleiri tilnefningar, fjórtán talsins árið
1950. Það er samt alls ekki gefið að
Forrest Gump verði valin besta kvik-
myndin. Þær sem helst þykja veita
henni harða keppni eru Pulp Fiction
og The Shawshank Redemption. Síð-
amefnda kvikmyndin fær sjö tilnefn-
ingar og þann fjölda fær einnig nýj-
asta kvikmynd Woody Allens, Bul-
lets over Broadway.
Mikið hefur verið spáð í hverjir fái
hin eftirsóttu verðlaun og margir
kvikmyndavitringar dregnir fram til
að segja álit sitt og sýnist sitt hverj-
um. Flestir eru þó á því að það verði
annaö hvort Tom Hanks eða John
Travolta sem hampar styttunni sem
besti leikari í aðalhiutverki og að
Jessica Lange sé líklegasta leikkonan
til að fá verðlaunin. Fyrir þá sem
ætla að vaka og horfa á útsendinguna
í nótt birtum við í grafinu hér að
ofan helstu tilnefningarnar.
Paul McCartney og Yoko
Onoeru viniráný
Paul McCartney og Yoko Ono hljóð-
rituöu lag eftir Yoko.
Bítillinn Paul McCartney og Yoko
Ono, ekkja Johns Lennons, hafa
bundið enda á ósætti sitt sem staðið
hefur í nærri þrjá áratugi. Þetta
gerðu þau meö því að hljóðrita sam-
an lag að sögn dagblaðsins Sunday
Times í gær. w
Lagið, sem þau hljóðrituðu, er eftir
Ono en hún samdi það í tilefni þess
að hálf öld var liðin frá því að kjarn-
orkusprengju var varpað á Japan.
Upptakan fór fram í hljóðveri
McCartneys á Suður-Englandi en
með honum vom eiginkona hans,
Linda, og fjögur böm þeirra en Sean,
sonur Lennons og Ono, kom með
móður sinni.
Fjölskyldurnar eyddu allri helg-
inni saman en ekkja Lennons lét
McCartney einnig í té nokkur óklár-
uð lög úr smiðju mannsins síns sem
nota á á plötu Bítlanna sem kemur
út síðar á þessu ári.
Enginuppgjöf hjá
Stones
Félagarnir í
hljómsveitinni
Rolling Stones
eru ekkert á
þeim buxunum
að fara að setj- i
ast i helgan
stein. Hljóm-
sveitin er nú
stödd í Ástralíu en þar hefur hún
ekki spilað síðan 1973. Á blaða-
mannafundi í Melboume í gær
sagöi Mick Jagger, söngvari
sveitarinnar, að verið væri að
huga að tónleikum fyrir næsta
ár. Við komuna til Ástralíu var
eftir því tekið hversu hljómsveit-
armeðlinúr virkuðu þreytulegir
en ekki var vitað hvort það mátti
rekja til aldurs þeirra eða ferða-
þreytu. Á sama blaðamannafundi
skýrði Keith Richards, gítarleik-
ari Roliing Stones, frá þvi að
hann myndi lítið sem ekkert frá
hljómleikaferðinni 1973 enda var
hann þá uppdópaður allan tím-
ann.
Clinton er heilsu-
hraustur
Bill Clinton,
forseti Banda-
ríkjanna, er við
hestaheilsu.
Frá þessu var
skýrt í Hvita
húsinu á fostu-
daginn en for-
setinn var þá
nýkominn úr læknisskoðun. Sér-
staklega var tekiö fram að heilsa
forsetans hefði batnað nokkuð frá
síðasta ári en Clinton hefur fylgst
vel með kaloríunum í fæðu sinni
án þess þó að vera í sérstakri
megrun. Forsetinn, sem bæði
skokkar og spilar golf, hefur þó
enn ofnæmi fyrir ýmsu í um-
hverfinu.
Fimm ár í viðbót
hjálange
Leikkonan
Jessica Lange
segíst ætla að
reyna að ieika
eins mikið og
hún geti næstu
fitnm árin en
eftir það býst
hún við að
draga saman seglin, Lange, sem
er tilnefnd til óskarsverðlauna
fyrir frammistööu sína í kvik-
myndinni Blue Sky, segir sífeUt
erfiðara að fá hlutverk eftir því
sem árin færast yfir. Lange fékk
óskarinn fyrir leik sinn í auka-
hlutverki í myndinni Tootsie en
hefur einnig áður verið tUnefnd
fyrir leik í aðalhlutverki. Hún
þykir sigurstranglegust í ár en
Lange segir útnefningu sína nú
vera einkar sæta sökum þess að
litlu munaði að Blue Sky yrði
aldrei gerð.
Drottninglnfékk
dauttljón
Elísabetu Bretlandsdrottningu
var fært dautt Ijón að gjöf á laug-
ardaginn. Drottningin, sem var i
sex daga heimsókn í Suður-Afr-
íku, þáði gjöfina en ekki liggur
fyrir hvað Elísabet muni gera við
dýrið sem var flutt um borð í
snekkju hennar, Brittanníu. Gef-
andinn er Zulu-kóngurinn Ing-
onyama en nafn hans merkir
ljón. Rcuter