Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1995, Blaðsíða 18
18
MÁNUDAGUR 27. MARS 1995
Ingibjörg Sólrún Gisladóttir borgarstjóri bryddaði fyrir helgina upp á þeirri nýbreytni að heimsækja fyrirtæki og stofnanir í einu af borgarhverfunum og
varð Breiðholt fyrir valinu. Borgarstjórinn heimsótti meðal annars Búnaðarbankann í Mjódd og heilsaði upp á konurnar þar en þær vinna á eina stóra
vinnustaðnum sem er eingöngu skipaður konum og er meira að segja útibússtjórinn kona. Heimsóknin var að frumkvæði hverfafélags Regnbogans i
Breiðholti og var borgarstjóranum og fylgdarliði hvarvetna vel tekið. DV-mynd GVA
Læknum á Borgarspítala
verður fækkað um níu
Læknum á Borgarspítala mun
fækka um níu á næstu mánuðum
vegna niðurskurðar í rekstri spítal-
ans.
Ráðningarsamningar nokkurra að-
stoöarlækna, sem renna fljótlega út,
verða ekki endurnýjaðir og læknar
sem nálgast ellilífeyrisaldur hafa
óskað eftir að láta af störfum eða
verða beðnir um þaö. Gert er ráð
fyrir að sparnaður á launalið Sjúkra-
húss Reykjavíkur nemi 45 milljónum
króna, þar af 30 milljónum á Borgar-
spítaianum. Átta til níu starfsmönn-
um hefur þegar verið sagt upp þar
og taka uppsagnimar gildi 1. maí.
Stjómendur Borgarspítala hafa
tekið saman tillögur til bráöabirgða-
stjómar sjúkrahússins um niöur-
skurð í rekstri spítalans. í tillögun-
um er gert ráð fyrir því að sparnaður
í rekstri spítalans verði 130 milljónir
króna, í stað 180 milljóna eins og
gert var ráð fyrir. Hætt verður við
ráðningu á E6-deild, sem ekki hefur
verið í rekstri, og sparast þar 32 millj-
ónir. Þá færa almennar hagræðing-
araðgerðir 10 milljónir króna í
sparnað. Stjómendur Borgarspítala
hyggjast einnig auka sértekjur spít-
alans um 25 milljónir með því aö
seija lyf til sjúkiinga úr apóteki.
„Það er aílt aö því búið aö taka
ákvörðun um 130 milljóna króna
sparnað en spumingin er hvort við
þurfum aö ganga lengra. Ef til þess
kemur gætum við þurft að fara út í
frekari uppsagnir en orðið hefur. Við
reynum að láta niðurskurðinn koma
sem minnst við einstaklinga en þetta
er flókið og afar sársaukafullt," segir
Jóhannes Pálmason, forstjóri Borg-
arspítala.
Niðurskurðartillögur yfirstjóm-
enda Borgarspítala og Landakots-
spítala verða teknar fyrir í bráða-
birgðastjórn Sjúkrahúss Reykjavík-
ur í dag, mánudag. -GHS
Fréttir
Strandasýsla:
Hækkun veg-
arins Ijósgeisli
áfimbulvetri
Guðfinnur Rnnbogason, DV, Hóteiavík:
í þeim miklu snjóalögum sem
verið hafa í Strandasýslu í vetur
og þeim mikla kostnaði og óþæg-
indum sem þau hafa valdiö hefur
þó verið einn ljósgeisli.
Spjóalög á Steingrímsijarðar-
heiði hafa ekki verið tiltakanlega
mikil eða ekki neitt í líkingu viö
það sem verið hefur i byggð. Það
er þakkað nokkurri hækkun veg-
arins á kafla heiðarinnar þar sem
snjóalög voru hvað mest fyrir
aðgerðina.
Að sögn Magnúsar Guömunds-
sonar, umdæmisstjóra Vegagerö-
arinnar á Hólmavik, þyrfti að
ráðast í hækkun og smáendur-
bætur á nokkrum kafla til viðbót-
ar. Myndi það, ef af yrði, greiða
vel fyrir umferð á vetrum í eðli-
legu árferði.
Landleiðin frá Hólmavík í
Drangsnes hefur ekki verið opn-
uð í margar vikur en jarðýta hef-
ur verið höfö á Drangsnesi hluta
þess tima til að opna leiðina úr
þorpinu til hafharinnar i Kokk-
álsvík vegna útgerðar og til að-
drátta fyrir íbúana.
Tölvumynd af safnaðarheimilinu og kirkjunni.
Safnaöarheimiliö í Keflavík:
Kosningin dæmd gild
Ægir Már Kárasan, DV, Suðumesjum:
„Vonandi sættir fólk sig við þessa
niðurstöðu. Það var löglega staðið að
kosningunni og þó hægt sé að finna
að framkvæmdinni var ekkert ólög-
legt við hana,“ sagði Jónína Guð-
mundsdóttir, formaður sóknar-
- ■ nefndar Keflavíkur, í samtali við DV.
Yfirkjörstjórn hefur dæmt kosn-
inguna gilda en nokkrir Keflvíkingar
kærðu framkvæmd hennar þegar
kosið var um og samþykkt að nýtt
safnaðarheimili verði reist á lóö
Keflavíkurkirkju. Kærendur geta þó
áfrýjað þessum úrskurði til biskups.
„Vonandi getum við nú haldið
áfram og að kærum sé lokið. Það
hefur ekkert upp á sig að halda þess-
um kærum áfram. Úrslitin voru af-
gerandi. Fólk vill byggja heimilið á
kirkjulóðinni," sagði Jónína.
Magnús Guðmundsson, um-
dæmisstjóri Vegagerðarinnar, i
simanum. Mikið er hringt þegar
tvisýnt er með veður og færð.
DV«mynd Guðfinnur
Fingralangir
með græna
fSngur
Tveir menn voru gripnir við
innbrot i blómabúð við Skóla-
vöröustig. Þegar lögregian handt-
ók mennina vakti það athygli
hennar aö einnota gúmmíhansk-
ar stóðu upp úr vasa annars
þeirra. Aðspurður sagðist þjófur-
inn nota hanskana til gróðursetn-
ingar. -g£
AA LEIKURINN
Taktu þátt í skemmtilegum leik og
svaraðu tveim laufléttum spurningum.
Þú ferð með þátttökuseðilinn á McDonald's, Suður-
landsbraut 56, og með því að kaupa eitthvað af
girnilegum matseðli McDonald’s ert þú kominn (
pottinn. Skilafrestur er til 8. apríl.
Stór kók frítt
gegn framvísun miðans!
Gegn framvisun þessa mida á
McDonald's fá þeir sem kaupa eitt-
hvaö af girnilegum matseóli McDon-
ald's fritt stóra kók með matnum og
komast aó auki i verólaunapottinn.
^ 1) Hvað heita afsláttarmáltíðir McDonald's?
a) Skýjamáltíðir b) Stjörnumáltíðir c) Stjánamáltíðir
tkb 2) Á hvaða dögum kemur Barna-DV út?
a) Laugardögum b)Mánudögum c) Þriðjudögum
NAFN_______________:___________1_________________
HEIMILISFANG
SÍMI_________
JÖKLAFERDIfí
Ferðaþjónustan
Jökulsérlóninn
ÆVINTYRALEG
VERÐLAUN I BOÐI
Daglega næstu þrjár vikurnar veröa \
tveir heppnir þátttakendur dregnir
úr pottinum og hljóta þeir ferö á
Vatnajökul ásamt glæsilegum
hádegisverði í Jöklaseli á vegum
Jöklaferöa og siglingu á
Jökulsárlóninu á vegum
Ferðaþjónustunnar Jökulsárlóni.
Verðmæti hvers vinnings er 9.000
kr. Innifaliö er rútuferö meö
Austurleiö frá Kirkjbæjarklaustri,
Skaftafelli eða Höfn í hornarfirði.
Nöfn vinningshafa verða birt
vikulega í DV á föstudögum.
ítalskir blaðamenn í Íslandsfor:
Á skíðum af Hvanna-
dalshnúki niður í Öræf i
Einar öm Sigurðsson, DV, Öraefum:
Nú stendur yfir leiðangur ítalskra
blaðamanna um landið þvert og endi-
langt. Leiðin liggur um Suðurland á
Egilsstaði og þaðan á Snæfell. Ejallið
verður klifið og þar verið á skíðum.
Síðan á aö aka yfir Vatnajökul og
upp á Öræfajökul. Þar verður gengið
á hæsta tind landsins, Hvannadals-
hnúk. Hápunktur ferðarinnar verð-
ur svo að renna sér á skíðum niður
tvö þúsund metra skíðabrekku, af
Hvannadalshnúk og niður í Öræfi.
Þessi leiðangur er undirbúningur
fyrir slíkar ferðir sem boðið verður
upp á í framtíðinni. Það eru Öræfa-
ferðir í Öræfum sem sjá um skíða-
ferðina en Jeppaferðir á Egilsstöðum
um bílahliðina. Frægur fjalla- og
blaðamaður, ítalskur, Franco Gi-
onco, á hugmyndina að þessari ferð.
Hann hefur undanfarin ár komið
með marga skíðahópa til íslands í
jöklaferðir á Öræfajökul, Eyjafjalla-
jökul og Snæfellsjökul.
Þátttakendur í ferðinni nú eru ít-
alskir blaðamenn, ljósmyndarar og
kvikmyndatökumenn. Ef vel tekst til
verður ferðin kynnt rnn allan heim.