Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1995, Blaðsíða 21
WINDOWS
MÁNUDAGUR 27. MARS 1995
21
Menning
Óbókvartettar
Tónlist
Áskell Másson
Þeir Daöi Kolbeinsson óbóleikari, Zbigniew Dubik
fiðluleikari, Guömundur Kristmundsson víóluleikari
og Richard Talkowsky sellóleikari héldu tónleika í
Norræna húsinu á vegum Háskólatónleika sl. mið-
vikudag. Á efnisskránni voru óbókvartettar eftir Benj-
amin Britten og Wolfgang Amadeus Mozart.
Britten samdi kvartettinn, sem hann nefndi Phant-
asy, kornungur, eða þegar hann var átján ára og enn
við nám í Royal College of Music í London. Þetta var
árið 1932 en hann mun þó hafa endurskrifað stóran
hluta verksins ári síðar og tileinkað óbóleikaranum
Leon Goossens sem frumílutti þá endurgerð þess.
Verkið hefst á nokkurs konar marsi sem endar í
trilluhljóm og leiðir í kafla sem einkennist af skölum
niður á við en síðan er á ný höfðað til upphafsins. Þá
kemur bhðari kafli, leikinn af strengjahljóðfærunum
og er hann leiddur smám saman í hápunkt, þá kemur
óbóið aftur á sjónarsviðið, en undir niða khðmjúkir
strengirnir. Enn er höfðað til upphafsmarsins en nú
leysist tónhstin smátt og smátt upp og fjarar út.
Leikur fjórmenninganna einkenndist af öryggi og
var áferð tóns þeirra í heild jöfn og ákveðin og tónhst-
in skýrt mótuð.
Kvartett Mozarts í F-dúr, KV 370, er áreiðanlega
mest leikni óbókvartett allra tíma. Hann er í þrem
þáttum sem eru hver öðrum fegurri og bera snihi
höfundarins sterkt vitni.
Daði Kolbeinsson óbóleikari.
Þrátt fyrir smáhnökra var verkið vel leikið og ein-
kenni flutningsins svipuð og í kvartett Brittens, eins
og reyndar við mátti búast af svo góðum og reyndum
hstamönnum sem hér áttu í hlut.
Meira af sígildum sönglögum
Nýlega kom út annað bindi Sígildra sönglaga og
hefur Gylfi Garðarsson sem fyrr haft veg og vanda af
útgáfunni. Heftið er í hentugri stærð með gormabind-
ingu og birtir texta lags, nótur þess og hfjóma. Eins
og áður fylgja myndir af helstu gítar-, píanó- og harm-
óníkuhljómum. Rekist fólk á hljómatákn sem ekki
skiljast er hægur vandinn að fletta þeim upp. í þessu
hefti ber mest á íslenskum dans- og dægurlögum frá
5. og 6. áratugnum en einnig má finna þar þjóðlög og
erlenda söngva við íslenska texta ásamt nokkrum ís-
lenskum sönglögum.
Við hvert einasta lag virðist getið einhverra heimilda
sem felast til að mynda í því hvaðan nótur eru fengn-
ar og í hvaða söngbókum öðrum má finna viðkomandi
texta eða ljóð. Ýmis fróðleikur annar fylgir líka með
sem gaman og fengur er aö. Fróðleikur sá er gjarnan
sögulegur; um tilurð lags eða ljóðs, hvemig algengast
er að lagið sé flutt, hvort stuðst er við ákveðnar útsetn-
ingar eða handrit og þar fram eftir götunum. Allt er
þetta haft í sem stystu máli, þannig að ekki skyggir á
aðalatriðin, lögin sjálf og textana.
Eitt og annað forvitnilegt flýtur hér með. Má nefna
sem dæmi „hitt“ lagið við textann Ég er kokkur á
kútter frá Sandi en það birtist hér í fyrsta sinn, einnig
má nefna það sem segir um Vísur Vatnsenda-Rósu,
Landleguvalsinn og Komdu inn (í kofann minn). Það
er líka vinsamlegt að láta útlend heiti laga fylgja. Skrá
er yfir heimildir og efnisyfirlit yfir bæði heftin sem
út eru komin. - Vegna þess hversu vel er hér vandaö
til verka er ekki fráleitt að ætla, að þegar fram líði
Bókmenntir
Ingvi Þór Kormáksson
stundir verði Sígild sönglög aðalheimildin yflr íslenska
alþýðusöngva og sú sem mest verður vitnað til og
stuðst við í þeim efnum.
Sigild sönglög 2
Gylfi Garöarsson bjó til prentunar
Nú - Nótuútgáfan
Reykjavik 1995
Lítill og nettur
Creda þurrkari
RflFTfEKMZLUN ÍSLflNDS Ff
Skútuvogi 1 b, 104 Reykjavík. Sími 568 8660
Scmlu pöntunarseöilimi í pósti eðu
Við sendum lmnn tii þín í póstkröfu
nafn...........—--------.........
heimilisfang _
póstnr.______
kennitala _
staður :
Listinn kostar 490 kr. sem dregst frá fyrstu pöntun.
Sendlst til: FKEBMAN, BÆ3ARHRAONI 14,
222 HAFNAKFJÖRÐUR,
SÍMI 565 3900
Sími: 68B 3900
27. míirs - 12. íipril
Erlendar bæltur um allt
milli hímiris oíj jarðar.
Kiljur ái 150 kall!
Hiiiiclri)ð rjeisladlska.
Ailt að ¥0% affsláttur.