Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1995, Side 25
MÁNUDAGUR 27. MARS 1995
37
Fréttir
íslandsvmurinn Dieter Kolb aftur til íslands:
Ætlar á hest-
vagni yfir Kjöl
- beitir tveimur hestum fyrir 10 farþega vagn
„Ég hyggst koma hingað um miðj-
an ágúst og fara á hestvagni yfir Kjöl.
Það er pláss fyrir 10 farþega í vagnin-
um sem tveimur hestum verður heitt
fyrir í hvert sinn en fjórir aðrir hest-
ar verða hafðir til skiptanna," segir
íslandsvinurinn og tannlæknirinn
Dieter Kolb frá Þýskalandi.
Eins og lesendum DV ætti aö vera
kunnugt fór Dieter hringveginn um
ísland á hestvagni á síðasta ári. Nú
hyggst hann bæta um betur og fara
um hálendið frá Geysi til Blönduóss
með viðkomu á Hveravöllum og
Svínavatni. Ferðin er farin í sam-
vinnu við íshesta en Dieter gerir ráð
fyrir að hún muni taka um 5 daga
hvora leið.
„Ég hef haft mikinn áhuga á ís-
landi í um 15 ár. Þegar ég eignaðist
íslenska hesta fyrir 20 árum var ég
staðráðinn í að heimsækja heim-
kynni þeirra einhvern tíma. Það
gerði ég árið 1983 þegar ég ók hring-
inn á húsbíl. Það tók allt of skjótt af
og maður naut landsins ekki sem
skyldi. Þess vegna gerði ég allt sem
ég gat til að koma aftur og það gerði
ég og ferðaðist þá meðal annars fót-
gangandi. í þeirri ferð uppgötvaði ég
að landið er mun áhugaverðara og
fallegra því maður missir af því
merkilegasta með því að ferðast um
þjóðvegina. Hugmynd mín er sú að
það geti-verið áhugavert fyrir ferða-
menn að feröast í hestvagni um land-
ið og ég er meðal annars að vekja
athygli á þessum ferðamáta. Bæöi
meðal íslenskra bænda og útlend-
inga,“ segir Dieter.
Auk þessarar ferðar hyggst Dieter
bjóöa ferðamönnum upp á tvær svo-
kallaðar „Litlu íslandsferðir" um
Reykjanes. -pp
Dieter Kolb hyggst ferðast á hestvagni yfir Kjöl í sumar en hann ferðaðist hringveginn i fyrra á sama máta.
DV-mynd Magnús Ólafsson
horfast
í augu
i tií A IP _
tækifærin
Alþýðuflokkurinn telur að hagsmunum íslands sé best borgið til framtíðar með
aðild að Evrópusambandinu, náist um það viðunandi samningar. Megin-
samningsmaríonið íslendinga á að vera að tryggia áfram forræði þjóðarinnar
yfir auðlindum sjávar innan íslenskrar efnahagslögsögu. Svarið við því, hvort
ðetta næst fram, fæst ekki nema í samningaviðræðum. Alþýðuflokkurinn telur
3ví rétt að ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu eins fljótt og auðið er.
Umsókn um aðild og endanleg ákvörðun um aðild eru tvær aðskildar
ákvarðanir. Við getum ekki tapað á því að ganga úr skugga um það hvers konar
samningum má ná. Það er ekkert að óttast. Náist samningar mun þjóðin taka
endanlega ákvörðun í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Nær 70% af útflutningi þjóðarinnar fer til landa Evrópusambandsins. Jafh
réttur okkar og keppinauta okkar á þessum mikilvæga markaði getur haft
úrslitaáhrif á þróun íslensks efnahagshfs. í kjölfar aðildar að Evrópusambandinu
fylgir fullur markaðsaðgangur fyrir sjávarafurðir og aukin fullvinnsla sjávarfangs
innanlands. Almennt efnahagsumhverfi innanlands verður sambærilegt við
Evrópusambandið, sem ætti að leiða til aukinnar erlendrar fjárfestingar, aukins
stöðugleika og hagvaxtar. Kjör heimilanna batna enda mun verð á land-
búnaðarafurðum lækka verulega.*
Aðild að Evrópusambandinu hefur í öllum tilvikum haft mjög jákvæð áhrif á
efnahag nýrra aðildarríkja. Engin dæmi eru um hið gagnstæða.
Aðild að Evrópusambandinu er uppspretta nýrra tækifæra. Stjórnmála-
flokkum ber að móta framtíðarsýn. Alþýðuflokkurinn - Jafnaðarmannaflokkur
Islands vill sjá Island til borðs með lýðræðisþjóðum Evrópu. Aðild íslands að
Evrópusambandinu varðar framtíð pjóðarinnar og velferð við upphaf 21.
aldarinnar.
* Hagfrœðistofnun Háskóla íslands telur í skýrslu sinni til ríkisstjómarinnar að verðlag á
landbúnaðarafurðum muni lcekka um 35 - 45% við aðild íslands að Eirrópusambandinu.
Alþýðuflokkurinn - Jafnaðarmannaflokkur íslands
Hægt er að nálgast eftirtalin upplýsingablöð hjá kosningamiðstöðvum Alþýðuflokksins um land allt: Evrópumál,
Sjávarútvegsstefna ESB, Atvinnumál, Iðnaðarmál, Matarverð og lífskjörin, Sjávarútvegsmál, Jöfhun kosningaréttar,
Fjölskyldumál, Húsnæðismál, Menntamál, Landbúnaðarmál, Umbótastefha jafhaðarmanna, Heilbrigðismál, Umhverfismál,
Ungir jafnaðarmenn, Jafnaðarstefnan - mannúðarstefna okkar tíma. Upplýsingasímar: 552 92 44 og 552 80 17.
Dagvist bama:
Niðurgreiðsla
hjá dagmæðrum
Stjórn Dagvistar bama hefur
ákveðið að hætta greiðslum til for-
eldra sem nýta sér ekki dagvist fyrir
börn á vegum borgarinnar og láta
greiðslurnar þess í stað fara beint í
aö greiöa niður dagvistun hjá dag-
mæðrum um sömu upphæð, eða 6.000
krónur á barn. Þessi ákvörðun er
tekin til að bæta nýtingu íjárins en
af 35 milljónum króna sem hafa farið
í greiðslur til foreldra úr borgarsjóöi
hafa 15 milljónir farið beint í skatta.
Foreldragreiðslunum verður hætt 1.
júní og niðurgreiðslur hjá dagmæðr-
um hefjast l. september.
„Okkur finnst fráleitt að 40 prósent
af þessum greiðslum fari í skatt til
ríkisins og viljum því heldur lækka
dagvistarkostnað hjá dagmæðrum
þannig aö þessir peningar komi aö
fullu tii góða fyrir viðkomandi for-
eldra. Þeir sem kjósa að vera heima
fá þá ekkert og engin ákvörðun hefur
verið tekin um að bæta heimavinn-
andi fólki þetta upp. Við ætlum aö
sjá hvernig þetta kemur út,“ segir
Arni Þór Sigurðsson, formaður
stjómar Dagvistar barna.
Gunnar B. Kvaran:
Myndin af séra
Bjarna verður
settupp
Gunnar B. Kvaran, forstöðumaður
Kjarvalsstaða, segist búast við að
myndin af öðrum af tveimur heiðurs-
borgurum Reykjavíkur, séra Bjarna
Jónssyni, sem hefur hangið uppi á
skrifstofu borgarstjóra í Ráðhúsi
Reykjavíkur, verði sett upp í einu af
sambýlum aldraðra í borginni í þess-
ari viku eða næstu. Myndin var tekin
niður og látin í viðhald í haust meðan
verið var að mála skrifstofu borgar-
stjóra í ráðhúsinu.
„Myndinni hefur aldrei verið ætl-
aður annað en verðugur sess. Ég
held að það sé engin goðgá að mynd-
in sé flutt af einum vegg á annan.
Gunnari Kvaran hefur verið falið aö
finna henni verðugan sess. Hann sér
um að flytja myndir til og annast
viðhald á þeim. Það stóð aldrei til
annað en að hún færi á verðugan
stað,“ segir Kristín A. Ámadóttir,
aðstoðarmaöur borgarstjóra.
í DV birtist nýlega lesendabréf ftá
Einari Ámasyni þar sem hann lýsti
þeirri skoðun sinpi að það að taka
myndina niður jafngilti því aö svipta
séra Bjama Jónsson heiðursborg-
aratítli í Reykjavík.
f