Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1995, Side 27
MÁNUDAGUR 27. MARS 1995
Menning
Dumbungs
náttúra
Elías B. Halldórsson í Gerðarsafni
Þeir eru ekki margir sem halda á lofti merki mál-
verksins nú á þessum tímum naumhugullar þrívídd-
ar. Fyrir skömmu var þó í Gerðarsafni í Kópavogi
sýning á verkum listamanna í yngri kantinum sem
hafa lagt rækt við málverkiö. Allir einbeita þeir sér
þó að málverkinu í tengslum við hugmyndalist. Þann-
ig lifir málvérkið í hinni viðteknu mynd fyrri alda
tæplega í verkum þessara hstamanna. Þeir eru samt
sem áður til, hstamennimir af yngri kynslóð, sem við-
halda þessum gömlu og grónu viðhorfum til málverks-
ins og leita þeir gjarnan í sjóð þeirra málara sem komu
fram upp úr seinna stríði og voru margir kenndir við
Septem og konkret.
Ehas B. Hahdórsson kemur þarna einhvers staðar
inn á milli. Hann náði rétt í skottið á konkretmálverk-
inu í lok sjötta áratugarins en byrjaði þó ekki að sýna
að ráði fyrr en í upphafi þess áttunda þegar hugmynda-
listín var í algleymingi. Þannig hlutu verk hans ekki
verðskuldaða athygh fyrr en í upphafi níunda áratug-
arins með nýja málverkinu, þrátt fyrir að hann sé af
þeirri kynslóð sem stóð fyrir konkretbyltíngunni um
1950. Nú hefur Elías B. Halldórsson opnað stóra sýn-
ingu á verkum sínum í Gerðarsafni og eru hvorki
fleiri né færri en 105 verk á sýningunni.
<1
Dempaðri litir
Éhas hefur jafnan einbeitt sér að náttúrustemning-
um þótt ekki sé hægt að greina augljósa staðhætti í
verkum hans. Þar er fyrst og fremst um að ræða hug-
læg áhrif í ht og formi frá landslagi og náttúru. í seinni
tíð hafa htir dempast talsvert hjá Ehasi og myndbygg-
ingin einfaldast til muna. Þessa sér einnig stað á sýn-
ingunni í Gerðarsafni. Þar eru alls 36 stór málverk,
flestöh ný, en þó tvö sem eru orðin tíu ára gömul.
Annað þeirra, Blóðnætur, er hið stærsta á sýning-
unni, hátt á áttunda metra að lengd og var vel tíl fund-
ið að setja það inn í rúmgóðan salinn í Gerðarsafni.
Hitt verkið, Sólbræddir vængir, er einnig í svokallaðri
yfirstærð. Bæði þessi eldri verk eru máluð í sterkari
litum og af meiri galsa en hin nýju.
Dumbungsafbrigði jarðlita
Nýju verkin eru mörg hver næsta keimhk; áberandi
eru dumbungsafbrigði af bláum, grænum og okkurgul-
um lit í mildri skáflataskiptingu. Þau verk sem taka
sig hvað helst út úr eru þau sem hafa til að bera inn-
byggða dýpt jarðhtanna eins og mynd 3, Fjallatjarna-
bakkar, eða sterka landslagstilvísun með skörpum
Eitt verka Elíasar B. Halldórssonar.
andstæðum eins og mynd 18, Uppi í himnakór, þar sem
ljós himinn tekur yfir meginhluta myndflatarins.
Lítil tíðindi og önnur kómísk
Lítil akrýlmálverk eru í reynd meginefni sýningar-
innar en að mínu mati jafnframt það sem sætir minnst-
um tíðindum. í flestum tilvikúm er um að ræða mynd-
ir sem hafa yfir sér snöggsoðinn tækifærisblæ og
Myndlist
Ólafur J. Engilbertsson
myndefnið er nánast það sama á þeim öllum; hús á
grænni eyri við dimmbláan sjó. Það er helst í myndum
eins og Síðdegissól (37) og Hunangsflugukæti (97) sem
örlar á viðlíka tílburðum og í málverkunum. Skemmtí-
legasta innleggið á sýningunni er þó án alls vafa nokkr-
ir skúlptúrar úr fjörureknum hlutum sem eru utan
skrár. Þar gefur að líta margar óborganlegar samsetn-
ingar eins og Vörn gegn fjörulöhum og Hiö gamla ljón
í túnfætinum hlær. Elías mættí gjarnan brjóta list sína
meira upp með þessum hætti. Þaö sakar aldrei aö
hafa dálitia kómík uppi í erminni. Sýning Elíasar í
Gerðarsafni stendur til 20. apríl.
Hringiðan
Háskólaútgáfan efndi nýlega til móttöku i Skólabæ í tilefni af útkomu afmælisrits sem tileinkað er Þorsteini Gylfa-
syni, prófessor í heimspeki. F.v. eru Páll Skúlason prófessor, Þorsteinn Gylfason, Mikael M. Karlsson dósent og
Jörundur Guðmundsson hjá Háskólaútgáfunni. DV-mynd Sveinn
39
eftir Betty J. Eadie
Áhrífamesta dauðaretjnslaH fyrr og síðar
3EFTIRVIKU
> OEFTIRMÁNUÐ
Z
DV
Metsölukiljúr
Bandarikin
Hit almonns oðlis:
M. a.J. Eadle *, C. T«ylor:
rmbracod bv tbo Ught.
2. Jerry Sðlnleld:
Saínlengoage.
3. Newt Gmgricb. D. Armey o.fU
Contrect whb Ametic*. .
4. Deteny. DeUny & Heirrtlr *
Having Our Say.
5. Thomas Moore
Cere of the Soui.,
6. M. Scott Peci;
Th« Road Lm Travelied.
7. Thoma3 Mooré;
Sout Matev
8. Ma/a Angelou:
ðœst enn
í bókabúðum
r
á Jslandi
fIjÁLS'I 11:JÓLM10LUN ié.
TELEFUNKEN
ÞÝSK HÁGÆÐASJÓNVARPSTÆKI
MEÐ SURROUND STEREO
Telefunken F-531 C STEREO NIC
er 28" sjónvarpstæki:
Black Matrix-fialur glampalaus
skjór • Surround-umhverfishljóm-
ur • PSI (Picture Signal Improve-
ment) • ICE (Intelligent Contrast
Eledrónic) • Pal, Secam og NTSC-
video • 59 stööva minni •
Sjdlfvirk stöðvaleit og -innsetning
• Mögu-leiki ó 16:9 móttöku •
Islenskt textavarp • Tímarofi •
40W magnari • A2-Stereo
Nicam • 4 hótalarar • Tengi fyrir
heymartól og sjónvarpsmyndavél
• ASskilinn styrkstillir fyrir
heymartól • 2 Scart-tengi o.m.fl.
IMORDMEIMDE
Nordmende V-1242 SV er vandaðf riggja
hausa myndbandstæki meó hra5þraSingu(
2 Scart-lengjum, Long Play, Show View-mögu-
leika, ATRS, GoTo( Index, Intro Scan, 8 liÓa-
365 doga upptökuminni og vandaðri fjarstýr-
ingu sem einnig mó nola fyrir sjónvarpstækið.
Þessi tæki eru nú bæði saman ó sérstöku tilboðsverði, aðeins 129.900,- kr. eða
TIL ALLT AÐ 36 MANAÐA
RAÐGREIÐSLUR
TIL ALLT AÐ 24 MÁNAÐA
MUNALAN
TIL ALLT
AÐ 30
MÁNAÐA