Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1995, Side 35
MÁNUDAGUR 27. MARS 1995
47
Fréttir
Búnaðarþing um vanda sauðflárbænda:
Bændur f ái hundruð
milljóna í aðstoð
Kjaraleg staöa sauðíjárbænda er
óviðunandi, segir í ályktun sem sam-
þykkt var á búnaðarþingi. í sam-
þykkt þingsins er að finna ákall um
víðtæka pólitíska lausn á vanda
sauðfjárbænda og á þaö bent að um
mikilvægt byggðamái sé að ræða.
Búnaðarþing bendir á ýmsar leiðir
til að leysa vandann sem flestar
hverjar krefjast umtalsverðra fjár-
muna úr ríkissjóði.
MikiU samdráttur hefur orðið í
framleiðslu og sölu sauöfjárafurða á
síðustu árum. Innvegin ársfram-
leiðsla hefur minnkað um 43 prósent
frá árinu 1978, eða úr 15,4 þúsund
tonnum í 8,8 þúsund tonn. Og þrátt
fyrir mikinn fjárhagslegan stuðning
stjómvalda, til dæmis með bein-
greiðslum, hefur gengið erfiðlega að
selja kjötiö og miklar birgðir því til
í landinu.
í ályktun búnaðarþings er mælst
til þess að heimilað verði að flytja
út lambakjöt án þess að það rýri rétt
bænda til beingreiðslna til að minnka
birgðastöðuna. Þannig skuli stefnt
að því að birgðastaðan í haust verði
ekki umfram 500 tonn. Jafnframt er
mælst til þess að allt sláturfé komi í
sláturhús í haust og að greitt verði
fyrir aUt innvigtað kindakjöt um-
fram það sem greiðslumark gefur
rétt til.
Þrátt fyrir minnkandi neyslu á
kindakjöti er það vilji búnaðarþings
að heildargreiðslumark næstu ára
verði aukið úr 7.820 tonnum í 8.150
tonn. Þá er lagt til að bændum verði
heimilað að framleiða 80 kíló af
lambakjöti fyrir hvern heimilismann
án þess að það skerði innleggsheim-
ildir.
Auk þessa leggur búnaðarþing
meðal annars til að bændum verði
tryggður réttur til atvinnuleysisbóta,
að Jarðasjóður verði efldur og að
stofnaður verði þróunarsjóður sem
Skagfírðingar:
í af borganir
lána 1 ara
37% fjárlaga
Öm Þórarmsson, DV, Fljótum;
Fjárhagsáætlun Héraðsnefndar
Skagfirðinga fyrir árið 1995 var sam-
þykkt á fundi nefndarinnar fyrir
skömmu. Áætlunin hljóðar upp á
88,4 milljónir króna.
Sveitarfélögin 12, sem standa að
nefndinni, munu leggja fram 82,6
milljónir en 5,8 verða teknar að láni.
Reiknað er með að tæpar 86 milljónir
fari til reksturs, 1,3 til eignfærðrar
fjárfestingar og 1,1 milljón til gjald-
færðrar fjárfestingar.
Langstærsti útgjaldaliðurinn er af-
borganir lána. Sá hður tekur til sín
' 32,8 milljónir eða um 37% af fjárlög-
um nefndarinnar. Til menningar-
mála á að verja 12,5 milljónum, til
bruna- og almannavarna 10,1 milljón
og til byggingar- og skipulagsmála
9,2 milljónmn.
Áætiað er að nýi málaflokkurinn
hjá héraðsnefndinni, barnavemdar-
mál, kosti.1,5 milljónir króna en eins
og kunnugt er fluttist þessi mála-
flokkur frá einstökum sveitarfélög-
um yfir til héraðsnefndar um síðustu
áramót.
- ákallmnpólitískalausn samþykktáþinginu
hafi það markmið að stuðla að vöru- markað. í ályktun búnaðarþings er milljónir og að leita þurfi til ríkis- leiðnisjóðs og fleiri aöila um fjár-
þróun fyrir innlendan og erlendan rætt um að sjóöurinn þurfi árlega 100 valdsins, Byggðastofnunar, Fram- mögnunhans. -kaa
i