Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1995, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1995, Page 2
2 LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1995 FréttLr Óvanra sjófarenda leitað - hröktust á gúmbát milli Svefneyja og Flateyjar: Borðuðum kríuegg og gerðum Miillersæfingar segir annar sjófarendanna - kynna sér nú sjómannafræði og ævisögur mikils sæfara Töluverð leit var gerð að tveimur mönnum, þeim Þorsteini og Benedikt Jónssonum, í fyrradag eftir að þeir komu ekki fram eftir siglingu milli Svefneyja og Flateyjar. Laust eftir klukkan 13 lögðu þeir upp í siglingu í blíðskaparveðri milli Svefneyja, þar sem þeir dvelja þessa dagana, og Flateyjar með hjón sem verið höfðu í heimsókn í eyjunum. Til fararinnar fengu þeir lánaðan Zodiak-gúmbát Gissurar Tryggvasonar, fram- kvæmdastjóra í Stykkishólmi. „Feröin til Flateyjar gekk vel en þegar lent var þar var skollin á þoka og röltum við því á veitingastofuna Voga og fengum okkur kaffisopa. Um það bil hálftíma seinna gengum við út og var þá gott skyggni til Svefn- eyja. Á leiðinni niður á höfn komúm við viö í læknishúsinu og tilkynntum Ólínu Jóhönnu Jónsdóttur húsfreyju að við værum að leggja af stað. Þeirri tilkynningu kom 'hún áfram til Svefneyjabóndans Kristins Nikulás- sonar,“ segir Benedikt. Bensínið þraut Héldu þeir úr höfn upp úr klukkan 15 en þegar þeir voru komnir tals- vert austur fyrir Flatey skall á nið- dimm þoka svo að hvergi sá til lands. „Ekki erum við vanir sjófarendur en þar sem sjór var sléttur töldum við okkur ekki í hættu og sigldum áfram. Eftir um það bil klukkustund- ar siglingu sáum við til lands og héld- um þar vera Svefneyjar. Fljótlega varð okkur ljóst að svo var ekki og þá vildi svo óheppilega til að bensín þraut. Þá vorum við staddir milh Diskæðarskers og Langeyjar í Flat- eyjarlöndum. Tvær litlar árar voru um borð og tókum við því upp róðr- arlag indíána og klóruðum okkur til lands. Við könnuðum eyna og þar var gnótt af æðarfugli, gæsum, skörf- um, lunda og kríu og nokkuð af sauðfe. Ekki sáum við nein kenni- leiti sem við þekktum. Við gengum út á vesturodda eyjarinnar og þegar þangað kom létti þokunni. Þá sáum við að okkur hafði borið verulega af leið og höfðum við á orði að þar fyndi okkur enginn því mikið hugmynda- flug þyrfti til að ímynda sér að okkur heföi borið 90 gráður af leið,“ segir Benedikt. Þeir félagar afréðu því að róa áleið- is til Flateyjar. Þegar þeir komu suð- ur fyrir Feitsey var farið aö hvessa og sóttist róðurinn lítt. Þar var því tekið land og báturinn bundinn. Hungrið svarf að „Nú var alllangur tími liðinn frá því lagt var upp í það sem upphaflega átti að vera skottúr og okkur var far- ið að svengja auk þess sem við vorum orðnir blautir af svita og hroll setti að okkur enda rigndi um þetta leyti. Við slógum á hungrið með því að súpa úr nokkrum kríueggjum og síð- an stjórnaði ég Mullersæfingum þangað til okkur var orðið heitt. Nú var aftur skolhn á þoka svo ekki sá til Langeyjar og hvað þá Flateyjar. Nokkru seinna lægði svo að sjór mátti heita lygn. Við ákváðum því að róa til Flateyjar. Að þessu sinni sóttist ferðin vel og um það bil sem Feitsey hvarf í þok- una grillti í Sýrey framundan." Skömmu seinna fann Hafþór Haf- steinsson úr Flatey Benedikt og Þor- stein hrakta og kalda á Sýreyjar- sundi og voru þá liðnar sex klukku- stundir frá því þeir héldu úr Flatey. „Við vorum aldrei í lífshættu en höfðum áhyggjur af að okkur yrði saknað og leit hafin. Við viljum að endingu þakka öllum sem tóku þátt í leitinni en við erum þegar farnir að kynna okkur helstu þætti sjó- mannafræðinnar og ævisaga hins mikla sæfara, Hafliða Eyjólfssonar í Svefneyjum, gengur á milli nátt- borða í svefnherbergjunum," segja Benedikt og Þorsteinn. -PP Tölvuvæðing í Víetnam: Við eigum allt en þeir ekkert - segir Friðrik Sigurðsson í 80 manna fylgdarliði forsætisráð- herra Víetnams, Vo Van Kiet, var fjöldi viðskiptajöfra frá Víetnam sem kynntu sér aðstæður í nokkrum fyr- irtækjum í stuttri heimsókn í gær. Byijað var á heimsókn í Heklu og síðan farið til Skýrr, Landsvirkjunar, Flugumferðarstjórnar og Marels. Hjá Skýrr fór fram kynning á íslenskri tölvuhugbúnaðargerð auk þess sem samstarfsfyrirtækið NTS, Nordic Technology Solutions, kynnti verk- efni sín í Víetnam. Að NTS standa m.a. fyrirtækin Tölvumyndir, Tölvu- miðlun, Skýrr og Póstur og sími. Friðrik Sigurðsson hjá NTS sagði við DV að Víetnamar hefðu uppi áform um skjóta tölvuvæðingu í landinu. Víetnamar eru skammt á veg komnir í tölvunotkun, t.d. eru jafn margar einkatölvur til í Víetnam og á íslandi þrátt fyrir 80 milljónir íbúa þar á móti 265 þúsundum hér. „Við eigum aUt en þeir ekkert, ef svo má segja,“ sagði Friðrik. NTS hefur gert nokkra samninga í Víet- nam um tölvuvæðingu hins opinbera og í einkageiranum. Friðrik sagði þann stærsta vera í þremur hðum. í fyrsta lagi væri Intemets-væðing sem þegar væri lokið, í öðru lagi tölvuvæðing borgarinnar Ho Chi Minh, áður Saigon, sem er á döfmni og í þriðja lagi tölvuvæðing einkafyr- irtækja sem komin væri af stað. -bjb NIÐURSTAÐA Hyernig fer landsleikur Ísland-Ungverjaland Stuttarfréttir Heldur dró til tíðinda á stjórnarfundi í Brunamálastofnun i gær þegar stjórn stofnunarinnar, aðalmenn og vara- menn, sagði af sér vegna deilna við brunamálastjóra. Þá sagði skóianefnd Brunamálaskólans, aðalmenn og vara- menn, einnig af sér. Búist er við að ný stjórn verði bráðlega skipuð. DV-mynd BG MáliSophiuvísaðfrá . Tyrkir hafa visað máU Sophiu Hansen frá og feUt aUa úrskurði úr gildi. Soplúa hefur misst um- gengnisrétt við dætur sínar. Þingmenn viija að ríkisstjórnin bregðist við, skv. Bylgjunni. Loðnukvóti ákveðinn Bráðabirgðakvóti íslendinga á loönuvertiöinni veröur 536 þús- und lestir en heildarkvótinn 800 þúsund lestir. íslendingar fá 78% af endanlegum kvóta, skv. RÚV. Eyglóskólameistari Eygló Eyjólfsdóttir, konrektor í MH, hefur verið sett skólameist- ari við Borgarholtsskóla í Reykjavík, skv. RÚV. Mikið tjón varö í íkveikju á raf- tækjaverkstæði á Höffi í Horna- flrði í nótt. GHg Hraðbanki lokaði og tók kort, kvittun og peninga „Hraðhankinn lokaði hreinlega á mig og hirti kortið, kvittunina og peningana. Peningarnir voru færðir út af reikningnum mínum og ég fékk þá ekki fyrr en á þriðjudaginn. í bankanum þurftu menn að fara í r ö d d ' Jafntefli Ungverjaland Island gegnum myndbandsupptöku frá helginni og þar sást að ég fékk aldrei peningana. Hvað hefði gerst ef upp- takan hefði ekki verið til? Þetta voru fimmtán þúsund krónur og þær hefðu örugglega tapast," sagði Orn- ólfur Ingólfsson sem lenti í hremm- ingum í hraðbanka Landsbankaúti- búsins í Bankastræti á laugardag. Örnólfur sagðist strax hafa sett sig í samband viö Reiknistofu bankanna, aðstoð við hraðbanka, og fljótlega eftir það fékk hann aðstoö við að ná kortinu. Peningana fékk hann ekki fyrr en eftir að búið var að skoða myndbandsupptðkuna. „Þetta var enginn hraöbanki held- ur verulegur óþægindabanki. Það furöulega í þessu er að bankinn getur opnað sig sjálfur og mér dettur í hug að næsti maður á eftir mér hafi getað fengið peningana sem búiö var að færa af reikningnum mínum. Ég fékk engin svör við því hvers vegna þetta gerðist." „Þetta leiðréttist strax eftir að upp- gjör dagsins kom frá Reiknistofnun. Þegar það kom skýrðust hlutimir og viö sáum að ekki hafði verið tekið út af reikningnum," sagði Inga Guð- bergsdóttir hjá Landsbanka íslands. -SV Hraðbankinn lokaði hreinlega á mig og hirti kortið, kvittunina og pening- ana. saoði Örnólfur. Mvndin er sviðsett af DV. nu-m”nH Rruniar rja.ití

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.