Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1995, Blaðsíða 36
4
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1995
U.S. CH-53 Sea
Slallion þyrla
Aviano
> ® S \
Banja Luka^>
® Sarajevo ^
X/^bosnIa-
HERSEGÓVINA
Fjölskylda Scotts O'Gradys, flugmannsins sem var bjargað frá Bosníu, er í sjöunda himni:
Hélt að þetta væri
bara draumur
- sagði systirin Stacy O'Grady og vonast eftir að fá að sjá bróður sinn fljótlega
„Hann er heldur ósennilegur
Rambo. En hann er andlega sterkur.
Hann er svo sannarlega sú manngerö
sem kemst klakklaust í gegnum aö-
stæður sem þessar. Við íhuguöum
aldrei annan kost,“ sagöi Joseph
Scardapane, stjúpi bandaríska orr-
ustuflugmannsins Scotts O’Gradys
sem var bjargað á ævintýralegan
hátt af serbnesku yfirráðasvæði í
Bosníu á fimmtudagsmorgun. Sex
dagar voru þá liðnir frá því flugvél
O’Gradys var skotin niður og allan
þann tíma tókst honum að fara huldu
höfði. Hann hélt kyrru fyrir á daginn
og fór ekki á stjá fyrr en kvölda tók
til að komast hjá handtöku.
Hæverskan
uppmáluð
Fjölskyldu O’Gradys og vinum
;om ekki á óvart að hann skyldi
lafa það af á óvinasvæðinu þar sem
ann nærðist aöallega" á regnvatni
g alls kyns skorkvikindum. Þau
issu hversu harður hann er af sér
.> g ákveðinn.
„Þegar vinir hans fréttu að Scott
/æri saknað sögðu þeir allir það
;ama: Ef einhver kemst klakklaust í
;egnum þetta þá er þaö Scott,” sagði
Vlary Lou Scardapane, móðir flug-
nannsins, á heimili sínu í Seattle í
iVashington-fylki.
Hún sagði að sonur sinn hefði ver-
ið hæverskan uppmáluð, eins og
hann á vanda til, þegar hann hringdi
í hana eftir björgunina.
„Hann verður fyrstur manna til að
klappa þeim sem aðstoöuðu við
björgunaraðgerðina verðskuldað lof
í lófa,” sagði frú Scardapane.
Faðir O’Gradys, William, sem er
röntgenlæknir í Alexandríu í Virgin-
íu-fylki, gat varla hamið tárin þegar
hann lýsti yfir ánægju sinni með
björgun sonar síns, en þeir höfðu
ræðst við í síma.
„Við erum í sjöunda himni,” sagði
hann. „Það var gott í honum hljóðið.
Hann skildi ekki alveg af hveiju
menn voru með öll þessi læti út af
honum.”
Dreymdi um að
verða flugmaöur
Scott O’Grady er 29 ára gamall,
dökkhærður og bláeygur. Hann
fæddist í Brooklyn-hverfi í New York
en ólst upp í borginni Spokane í
Washington-fylki á Kyrrahafs-
ströndinni og dreymdi um að verða
flugmaður. Bekkjarsystir hans, Bets-
ey Weigle, lýsti honum sem „þægi-
legum, ekta amerískum gæja.“
Að loknum menntaskóla, hóf Scott
O’Grady nám í Washington-háskóla
í Seattle. Þaðan lá leið hans í Embry-
Riddle flugháskólann i Prescott í
Arizona-fylki þaðan sem hann út-
skrifaðist árið 1989.
O’Grady gekk í flugherinn í apríl
1989 og þjónaði í Suður-Kóreu og
Þýskalandi áður en hann gekk til liðs
við flugsveit 555 sem hefur aðsetur í
Aviano á Ítalíu.
Fyrirmyndar-
nemandi
William Owens aðmíráll, varafor-
;eti bandaríska herráðsins, sagði
'réttamönnum í Washington að Scott
Scott O’Grady, hetja dagsins í Bandaríkjunum, um borð í flugfáki sinum.
Wiiliam O’Grady, faðir Scotts, og unnusta hans, Margaret Jones, hampa
fjölskyldumyndum af flugmanninum. Simamynd Reuter
O’Grady hefði lagt sig sérstaklega
fram þegar hann sótti námskeið um
það hvernig flugmenn ættu að kom-
ast af aö baki víglínu óvinarins ef
þeir yrðu skotnir niður.
„Það orð fór af honum meðal kenn-
aranna að hann hefði lagt sig sér-
staklega eftir smáatriðunum í hverj-
um einasta þætti þjálfunarinnar. Það
er ljóst að Scott O’Grady stóð sig vej
í þjálfuninni. Og að þessu sinni marg-
borgaði það sig fyrir bæði hann og
okkur,” sagði Owens aðmíráll.
Lengi vel var ekki vitað hvort Scott
O’Grady hefði lifað af þegar serb-
neskt flugskeyti grandaði flugvél
hans á föstudag í síöustu viku. Það
var ekki fyrr en skömmu eftir mið-
nætti aðfaranótt síöastliðins fimmtu-
dags að O’Grady tókst að ná sam-
bandi við flugvélar NATO með lítilli
talstöð sem hann bar á sér. Þá var
allt sett á fullt til að undirbúa björg-
un hans.
Því gleymi ég aldrei
Martin Berndt ofursti fór fyrir
björgunarsveitinni. Þyrlurnar flugu
lágt yfir trjátoppunum í dögun og
lentu í aðeins fimmtíu metra fjar-
lægö frá skóginum þar sem O’Grady,
sem haföi fengið dulnefnið Basher
52, var í felum.
„Lendingarstaðurinn var kannski
ekki eins öruggur og við hefðum kos-
ið en ég mun seint gleyma því þegar
við sáum hann koma hlaupandi út
úr skóginum, í svitabaði og með
byssuna í hendi,” sagði Martin
Berndt.
Hann er ekki einn um aö trúa varla
sínum eigin augum og eyrum.
„í fyrstu hélt ég að þetta væri bara
draumur,” sagði Stacy O’Grady,
systir Scotts. „Við urðum alveg vit-
laus.“
„Viö fóðmuðum hvert annað eins
og vitlaus værum og öskruöum,”
sagði bróðirinn Paul.
Fjölskyldan vonast til að fá Scott
O’Grady, „ameríska hetju” eins og
Clinton forseti kallar hann, heim til
Bandaríkjanna eftir nokkra daga.
Simamynd Reuter
Sérsveit bandarískra landgönguliða bjargaði orrustuflugmanninum
Scott O’Grady af yfirráðasvæði Serba í Bosníu í dögun á fimmtudag,
sex dögum eftir að vél hans var skotin niður. Serbar héldu
uppi skothríð á björgunarþyrlurnar
2. jum: Flugskeyti Serba grand-
ar F-16 þotu O'Gradys nærri
bænum Banja Luka þar sem
\ Serbar ráða ríkjum
ITALIA
u.s.s. // >
Kearsarge
r~
/ Adría
' hal
8. júní: O’Grady
kallar á hjálp með
aðstoð senditækis úr fylgsni
sinu i skóginum kl. 03. Fjórum tím-
um síðar, i fyrstu dagrenningu, er honum
bjargað af þyrlunum sem urðu fyrir skot-
árásum Serba. 40 manna sveit flýgur burt
í tveimur Sea Stallion þyrlum, með Scott
O’Grady um borð
REUTER
í björgunarliðinu voru m.a.
tvær CH-135 flutningaþyrlur
og Cobra árásarþyrlur frá
USS Kearsarge, sem nutu
verndar F-18 orrustuþotna
og EF-111 og EA-6B véla
sem eru búnar flóknum
rafeindatækjum til hernaðar