Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1995, Blaðsíða 7
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1995
7
Fréttir
Stálin mætast stinn innan Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði:
Flokksmönnum f innst þeir illa
sviknir eftir samkomulag í vor
Jóhann G. Bergþórsson, bæjarfull-
trúi Sjálfstæöisílokksins í Hafnar-
firöi og fyrrum forstjóri Hagvirkis-
Kletts, hefur reynst Magnúsi
Gunnarssyni, oddvita flokksins,
óþægur Ijár í þúfu undangengna
mánuöi og er óhætt að fullyrða aö
naumur meirihluti Alþýðubanda-
lags og Sjálfstæöisflokks hafi hang-
iö á bláþræöi allt kjörtímabilið
enda Jóhann haft þar oddaaðstöðu.
Jóhann krefst þess nú aö veröa
ráöinn bæjarverkfræðingur í Hafn-
arfirði og halda áfram sem bæjar-
fulltrúi en Magnús tekur þaö ekki
Fréttaljós
Guðrún Helga
Sigurðardóttir
í mál. Þar mætast stálin stinn og
eru því allar líkur á að meirihlut-
inn springi á þriðjudag.
Segja má að ágreiningurinn milli
Jóhanns G. Bergþórssonar og
Magnúsar Gunnarssonar hafi fyrst
komið upp á yfirborðið í meiri-
hlutamyndunarviðræðunum síð-
asta vor þegar flokksforystan sam-
þykkti kröfu Jóhanns um að fá
bæjarverkfræðingsstarfið eftir
tveggja vikna samningatörn.
Skömmu eftir myndun meirihluta
kom í ljós að Jóhann vildi hvort
tveggja, bæjarverkfræðinginn og
bæjarfulltrúann, og það gat foryst-
an ekki sætt sig við.
Flokksmenn telja sig svikna
Ágreiningurinn kom aftur upp á
yfirborðið í janúar þegar Jóhann
sprengdi meirihlutann vegna fjár-
hagsáætlunar fyrir þetta ár og fór
í viðræður við krata um myndun
nýs meirihluta. Ekkert varð af nýju
meirihlutasamstarfi eftir að for-
sætisráðherra skarst í leikinn.
Ráðherra sendi Jóhann í frí og
Þorgils Óttar Mathiesen varabæj-
arfulltrúi settist í hans sæti. Jó-
hann tók aftur sæti í bæjarstjórn i
vor og samstarflð komst á góðan
rekspöl í maí eftir að „áherslusam-
komulag" náðist milli alþýðu-
bandalagsmanna og sjálfstæðis-
manna. Gengið var frá stofnun
tækni- og framkvæmdaráðs, sem á
að vera til ráðuneytis fyrir bæjar-
verkfræðing og bæjarráð.
Innan Sjálfstæðisflokksins tókust
samningar um að Jóhann yrði for-
maður ráðsins. í votta viðurvist
varö að samkomulagi að hann
myndi ekki sækja ekki um stöðu
bæjarverkfræðings og þess vegna
finnst flokksmönnum þeir illa
sviknir. Eftir að hafa fengið álits-
gerð frá félagsmálaráðuneytinu
um að embættismaður geti verið
bæjarfulltrúi skipti Jóhann hins
vegar um skoöun og ákvað að
senda inn umsókn. Jóhann telur
sig hafa stuðning af álitinu en lög-
menn telja orðalagiö veikt og benda
á aö embættismaöur geti ekki verið
bæjarfulltrúi og yfirmaður sjálfs
sín um leið, samkvæmt stjórn-
sýslulögum.
Oheppileg ráðning
Þáttur Alþýðubandalagsins í
ráðningu bæjarverkfræðings í
Hafnarfirði gleymist í umræðunni
enda eiga átökin sér fyrst og fremst
stað innan Sjálfstæðisflokksins.
Sjálfstæðismenn ætla sér að kom-
ast að niðurstöðu um helgina og
tilkynna samstarfsmönnum sínum
í meirihlutanum á sunnudag hvern
þeir styðja. Það er þó Ijóst að Jó-
hann G. Bergþórsson er löngu bú-
inn að fyrirgera möguleikanum, þó
ekki væri nema vegna þess að hafn-
firskir alþýðubandalagsmenn telja
óheppilegt að fá fyrrum forstjóra
gjaldþrota verktakafyrirtækis í
starfið.
Ljóst er að reynt verður til þraut-
ar að ná sáttum um helgina og
halda áfram samstarfmu við Al-
þýðubandalagið. Það er þó ekki lík-
legt að það takist. Magnús Gunn-
arsson er „prinsipp“-maður sem er
staöráðinn í að standa á sínu. Hann
vill að ráðningin verði á faglegum
nótum og hann hefur flokkinn á
bak við sig. Það gætu því orðið alla-
ballar og kratar sem ræða meiri-
hlutasamstarf eftir bæjarstjórnar-
fundinn í næstu viku.
'í jri.
%i |
m
am
ávextir í handhægum umbúðu
aplcductcf
&2 <£& Qmpany