Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1995, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1995
39
Nánast öruggur í sænska landsliðið i hestaiþróttum - Hreggviður Eyvinds-
son á stóðhestinum Kjarna frá Kálfholti.
Línur skýrast í Hollandi
Carla van Nunen með stóðhestinn Byr von Schloss Neubronn.
DV-mynd E.J.
Nýlega fór fram annað af fjórum
úrtökumótum vegna vals á hesta-
íþróttalandsliði Hollands fyrir
heimsmeistaramótið sem haldiö
verður í Sviss í ágúst.
Línur eru farnar að skýrast örlítið
en mikil spenna er jafnan kringum
valið. Úrslitin ráðast ekki fyrr en á
hollenska meistaramótinu um miöj-
an júlí.
Þegar tveimur umferðum er lokið
af fjórum eru tveir knapar nokkuð
öruggii; um sæti í liðinu. Það eru
Erik Spee með skeiðhryssuna Lindu
frá Kálfholti og Carla van Nunen
með fjórgangarann Byr von Schloss
Neubronn sem'er stóðhestur.
í tölti berjast þrjár valkyrjur um
sæti: Maaike Burggrafer með Vigni
frá Hala og tamningakonurnar á Ald-
enghoorbúinu: Monique Cox og Od-
ette Nijssen. Þær stöllur ríöa hestum
frá búinu en stáldrottningin Viola
Hallmann tekur ekki þátt í keppni í
sumar.
í fimmgangi er baráttan einnig
hörð. Heiðar Hafdal stendur vel að
vígi með Steingrím frá Glæsibæ en
skammt undan er Armet Tuijn með
Fjalar frá Fossvöllum.
Báöir hestarnir eru að góðu kunn-
ir. Jón Steinbjörnsson var með Stein-
grím á Norðurlandamótunum í Vil-
helmsborg í Danmörku 1990 og Sel-
jord í Noregi 1992.
Atli Guðmundsson var með Fjalar
á heimsmeistaramótinu í Vilhelms-
borg í Danmörku 1989.
Einn kunnasti keppandi Hollend-
inga, Klaas Dutihl, sækist ekki eftir
sæti í liðinu að þessu sinni. Hann
vildi fá árangur í skeiðkappreiðum í
útlöndum viðurkenndan til vals í lið-
ið en sú krafa náði ekki fram að
ganga.
Úrtakan fór fram á glæsilegu svæði
Exloo og var Eysteinn Leifsson, ný-
útskrifaöur FEIF-alþjóðlegur dóm-
ari, einn dómaranna. -E.J./Þ.G.
Svíarvelja
íslending
sem
landsliðs-
einvald
íslendingar koma mjög við sögu
sænska landsliðsins í hestaíþróttum
því Hafliði Gíslason hefur verið val-
inn landsliðseinvaldur Svía. Þá á
Hreggviöur Eyvindsson mjög góða
möguleika á að komast í landsliðið
með stóðhestinn Kjarna frá Kálf-
holti. Þeir munu þá keppa í fjór-
gangsgreinunum.
Magnús Skúlason er með skeið-
hestinn Glóa og er einnig heitur og
fer þá inn í gæðingaskeið.
Nokkrir sænsku knapanna hafa
þokað sér framar í röðinni. Eva Thel-
in á góða möguleika á að ná inn í
fj órgangsgreinarnar meö Gimstein
frá Höskuldsstöðum.
Nina Keskitalo er framarlega með
Kolskegg í fimmgangsgreinunum og
gæðingaskeiði og í fimmgangi er
Magnus Lindquist með efnilegan
stóðhest, Glæsi frá Eyrarbakka.
Hann er einnig með tölthryssuna
Gná frá Efri-Brú.
í laustaumatölti hefur Ylva Hag-
ander staðiö sig einna best með stóö-
hestinn Mökk frá Varmalæk.
íslenski lykill-
inn leiðarljós
í Sviþjóð eru þrjár úrtökur dreifðar
um Svíþjóð, svo og sænska meistara-
mótið. Svíar nota lykil til að fmna
fimm landsliðsmenn en hann er nán-
ast eins og íslenski lykillinn. Hafliði
velur að lokum tvo knapa sem hafa
staðið sig vel í sumar.
Tómas Ragnarsson var einn ís-
lenskra dómara í úrtökunni sem var
haldin á Haringe Slott, nálægt Stokk-
hólmi, en Hafliði Gíslason varð að
hlaupa í skarðið í töltkeppninni
vegna forfalla dómara.
Muni úr leik
Gæðingurinn Muni frá Ketilsstöð-
um keppir ekki meira. Hann er með
spatt á svo sérstökum staö í aftur-
fæti að ekki er hægt að laga það með
skurðaðgerð, að sögn eigandans,
Görans Montans.
^E. J.
"IWflffll
mm
" 1 , . .
aa aaj wBMH
—
WBS&
Autotelte til
rnmmmm
fortjöld
f \
I
tjaldvagnar
hjólhýsi
Ferðafélaginn sem
bregst þér ekki!
Um helgina sýnum við allt úr-
valið af vögnum og ferðavöru
sem við höfum á boðstólum í
ár. Við kynnum nú Starcraft
fellihýsi og pallhús á íslandi en Starcraft er
þekkt í Bandaríkjunum fyrir framúrskarandi
gæði. Camp-let tjaldvagnar eru þrautreyndir
við íslenskar aðstæður og hafa verið traustir
ferðafélagar margra um áraraðir. Við bjóðum
bæði upp á Hobby og Knaus lúxushjólhýsi
frá Þýskalandi og frá Trio koma fortjöldin á
bíla eða hjólhýsi. Þá er ótalin allur viðlegu-
búnaðurinn og gas- og ferðavörurnar! Sjón
er sögu ríkari,- líttu við og sjáðu allt úrvalið.
Opið um helgar í sumar.
QSU JÓNSSON HF
Bíldshöfða 14, 112 Reykjavík, Sími 587 6644
i
J
j