Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1995, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1995
23
Skák
Ivan Sokolov
varð einn efstur
Stórmeistarinn Ivan Sokolov frá
Sarajevo er líkast til hættur að
kippa sér upp við mótlæti. Hann lét
а. m.k. smámuni eins og tvær tap-
skákir ekki slá sig út af laginu á
alþjóðlega mótinu í Malmö í Sví-
þjóð sem lauk á miövikudag. So-
kolov gerði sér lítið fyrir og vann
fjórar síðustu skákimar og hreppti
þar með einn efsta sætið.
Jóhann Hjartarson var meðal
keppenda í Malmö og var í farar-
broddi fram undir lokin. Hann átti
enn möguleika á efsta sætinu er
hann mætti Sokolov 1 lokaumferð-
inni. Sokolov lét hins vegar ekkert
stöðva sig lengur - hafði betur í
tafli þeirra en Jóhann féll niður í
fimmta sæti.
Lokastaðan í Malmö varð þessi:
1. Ivan Sokolov 6,5 v.
2. -4. Ulf Andersson, Mikhail Kras-
enkov og Matthew Sadler 6 v.
5. Jóhann Hjartarson 5 v.
б. Johan Hellsten 4,5 v.
7. Jonny Hector 3,5 v.
8. Rune Djurhuus 3 v.
9. Stefan Brynell 2,5 v.
10. Giovanni Vescovi 2 v.
Fjörugasta skák Jóhanns á mót-
inu var við Svíann Jonny Hector
sem komst býsna nálægt sigri en
brenndi af á ögurstundu.
Hvítt: Jonny Hector
Svart: Jóhann Hjartarson
Sikleyjatvörn.
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rc6 5. Rc3 Dc7 6. Be3 a6 7.
Bd3 b5 8. 0-0 Bb7 9. Rb3 d6 10. f4
Rf6 11. Df3 Be7 12. a3 0-0 13. Dh3
g6 14. f5 exf5 15. exf5 Re5 16. Be2
Rc4 17. Bg5 d5 18. Khl Db6 19.
Hadl Rxb2 20. Hd4 Hac8 21. Hdf4
d4 22. Rxd4 Hxc3 23. Dxc3 Rd5 24.
fxg6! hxg6 25. Dg3 Rxf4 26. Hxf4
Bxg5 27. Dxg5 Dd8 28. Dh6 He8
& f x A
1 1 1
A fi
* A A A A
ABCDEFGH
Jóhann Hjartarson var meöal
keppenda i Malmö og var í farar-
broddi fram undir lokin.
Umsjón
Jón L. Árnason
29. h3?
í stað 29. Hh4 Df6 30. RÍ5! og vegna
hótunarinnar 31. Dh7 + Kf8 32.
Dh8+ og mát í næsta leik vinnur
hvítur. T.d. 30. - Bxg2+ 31. Kgl
Db6+ 32. Rd4 Df6 33. Kxg2 og vinn-
ur.
29. - Rc4 30. Bf3 Bxf3 31. Rxf3
Ddl+ 32. Kh2 Dd6 33. h4 He4 34.
g3 He2+ 35. Kh3 Dd7+ 36. g4 Ddl
37. Hd4 Dfl+ 38. Kg3 Hg2+ 39.
Kf4 Dcl+ 40. Rd2 Hxd2
- Og hvítur gafst upp.
Enn sigrar Garrí
Garrí Kasparov varð efstur á
stórmeistaramótinu í Novgorod í
Rússlandi, vinningi fyrir ofan
næstu menn. Hann hlaut 6,5 v. en
Ivantsjúk, Short, Ehlvest og Topa-
lov fengu 5,5 v. Styrkleiki mótsins
kemur vel í ljós þegar röð þeirra
neðstu er rakin: Kramnik fékk 5,
Timman 4, Gulko 3, Júsupov 2,5 og
Vaganjan 2 - allt stórmeistarar í
fremstu röð.
Kasparov hafði heppnina með sér
í síðustu umferð því að Ivantsjúk
tapaði með hvítu fyrir Topalov en
hefði annars náö að deila efsta
sætinu með meistaranum. Annars
var Kasparov vel að sigrinum kom-
in en hann tefldi fallega á köflum,
eins og skákin við Vaganjan ber
með sér.
Hvítt: Garrí Kasparov
Svart: Rafael Vaganjan
Drottningarbragð.
1. d4 e6 2. c4 d5 3. Rc3 Be7 4. Rf3
Rf6 5. Bf4 0-0 6. e3 c5 7. dxc5 Bxc5
8. Dc2 Rc6 9. a3 Da5 10. 0-0-0 Be7
11. h4!
Eins og fyrri daginn er Kasparov
skrefi á undan í byrjunarfræðum.
Hér var leikið 11. g4 dxc4 12. Bxc4
a6 13. Bd3 Kh8 14. g5 og jafntefli
samið í skák Ivantsjúks við Ehlvest
á þessu sama móti í fyrra. Leikur
Kasparovs virðist miklu sterkari.
11. - dxc4 12. Bxc4 b6
Reynir að virkja hvítreita biskup-
inn en 12. - e5 í sama tilgangi kem-
ur vel til álita.
13. Rg5 Ba6 14. Rce4 g6 15. Rxf6 +
Bxf6 16. Re4 Be7 17. Bxa6 Dxa6 18.
Kbl Db7 19. h5 Hac8?
Vaganjan kemur auga á „taktískan"
möguleika sem gengur illu heilli ekki
upp. Betra er 19. - e5.
20. hxg6 Rb4
Ef 20. - hxg6 21. Hh6 og hvorki
gengur Rb4 22. Hdhl! með máthót-
un, né 20. - Kg7 21. Hdhl Hh8 22.
Dc3+ og liðstap er óumflýjanlegt.
21. gxh7+ Kh8
22. Be5+ fl6 23. Rxf6! BxfB
Ef 23. - Rxc2 24. Re4+ Bf6 25.
Rxf6! og vinnur.
24. Bxf6 +
- Og nú kaus Vaganjan að gefast
upp. Eftir 24. - Hxf6,25. axb4 vinn-
ur hvítur en 25. Dc3!! er enn þá
sterkara og svartur fær ekki varist
margvíslegum hótunum hvíts.
BILALAK
BJPOH
Við eigum litinn á
bílinn á úðabrúsa.
o r K ci
FAXAFEN 12 (SKEIFAN).
■•4, * .•-V-: .*•••■».
■
-
- m jft
Apple-umboðið
SKIPHOLTI 21 • SÍMI: 562 48 OO
Heimastðan: http:llwww.apple.is