Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1995, Page 3
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1995
3
Fréttir
Arthur Irving jr.
DV-mynd ÞÖK
Irving Oil:
Viljum ekki rasa
umráðfram
- segir Arthur Irving jr.
„Það er ekki mikið um málið að
segja fyrr en við erum búnir að hnýta
alla hnúta. Tímasetning er óákveðin
en þetta er tímafrek vinna og við vilj-
um ekki rasa um ráð fram,“ sagði
Arthur Irving jr. við DV þegar haft
var samband við hann í höfuðstöðv-
um Irving Oil í St. John í Kanada.
Irving-feðgar hafa ekki enn gefið út
lokaákvörðun um að þeir ætli að
hasla sér völl á íslandi og bíða marg-
ir spenntir eftir því hvað þeir gera.
Arthur sagði aö þeir væru ánægðir
með þá ákvörðun Reykjavíkurborg-
ar að gefa leyfi fyrir tveimur bensin-
stöðvum, í Árbænum og vesturbæn-
um, og þeir væru bjartsýnir á að
grænt ljós yrði gefið á þriðju bensín-
stöðina við Stekkjarbakka í Breið-
holti.
„Þetta er byrjun sem við erum sátt-
ir við. Við verðum aö sýna þolin-
mæði því þetta tekur allt sinn tíma,“
sagði Árthur.
Hvað aðra staði á íslandi en höfuö-
borgarsvæðið varðaði sagði Arthur
aö Irving Oil hefði mestan áhuga á
Keflavík og þar á eftir kæmi Akur-
eyri. Á þessum stöðum, sér í lagi
Ákureyri, væri mikil útgerð sem fé-
lagið horfði sérstaklega á.
Arthur sagði að þeir feðgar hefðu
fylgst með kaupum Olíufélagsins í
Olís og fyrirhuguðu samstaríi félag-
anna en vildi ekkert gefa út á þau.
Hann sagði að Irving Oil hefði ekki
lengur áhuga á að kaupa hlut í Olís,
eöa öðru íslensku olíufélagi, en sá
áhugi var fyrir hendi á síðasta ári.
Tilboð í birgðastöð skoðuð
Eins og komið hefur fram hefur
Irving Oil vilyrði Reykjavíkurborgar
um lóö undir birgðastöð á nýju svæði
við Sundahöfn. Utboð á framkvæmd-
um þar fór nýlega fram í Kanada og
sagði Arthur að verið væri að skoða
tilboð tveggja fyrirtækja. Ekki yrði
ráðist í framkvæmdir fyrr en þeir
feðgar gerðu endanlega upp hug
sinn.
Arthur sagði að þeir myndu líta á
aðstæður á íslandi fljótlega eða um
leið og þeir ættu leið til Evrópu á
einkaþotu sinni í viðskiptaerindum
fyrirlrvingOil. -bjb
barbecooíc
Ekkt
ert
Qas eða
«
N
&ekúu
Það er miklu betra að grilla á kolagrilli... ma
verður miklu betri og stemmningin aldeilis frábær!“
OL
Enginn uppkveikilö^ur!
0
y
..«*sKíS3Si
5terk steikargrind sem
auðvelt er að þrífa
þrifin eru auðveld oq pú einfaldlega
hellir úrgrill-strompinum j?egar neðsti
hluti hans erorðinn fullur
0
Bónus Radíó, Grensásvegi 11, Rvk.
Radíóbúðin, Skipholti 19, Rvk.
Nóatúns-verslanirnar, Rvk. Kóp. Mos.
Blómaval, Sigtúni, Rvk.
Samkaup, Keflavík
Versl. Einars Ólafss., Akranesi
Kaupfél. Borgfirðinga, Borgarnesi
Vöruval, ísafirði og Bolungarvík
Kaupfél. Húnvetninga, Blönduósi
Skagfirðingabúð, Sauðárkróki
KEA Nettó, Akureyri
Kaupfél. Þingeyinga Matbær, Húsavík
Kaupfél. Héraðsbúa, Egilsstöðum
Kaupfél. A.-Skaftfellinga, Höfn
Kaupfél. Árnesinga, Selfossi
Eyjakaup, Vestmannaeyjum
Fjarðarkaup, Hafnarfirði
Kaupfél. Rangæinga, Hvolsvelli
Kaupfél. V-Húnvetn., Hvammstanga
Höfn Þríhyrningur, Hellu
Verslunin Hamar, Grundarfirði
Kassinn, Ólafsvík
Verslunin Borg, Skagaströnd
Staðarkjör, Grindavík
Kárnseskjör, Kópavogi
KEA, Ólafsfirði
Sími: 588 68 50
BELFAST/LONDO
BELFAST LONDON
Kynningarverð frá Kynningarverð frá
K' 17.140* Kr-22.140*
*lnnifalið flug og flugvallarskattar
efF aa* fyrir 20- júní
jmA FERÐASKRIFSTOFA
W REYKJAVÍKUR
Aðalstræti 16 - sími 55-23-200