Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1995, Síða 6
6
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1995
Stuttarfréttir
SættiríSvartahafi
Sættir hafa tekist með Rússum
og Úkraínumönnum í langvinnri
deilu þeirra um framtíð Svarta-
hafsflotans.
Jackson að verða pabbi
Michael Jack-
son poppari og
Lisa Mario
Presley Elvis-
dóttir, eigin-
kona hans,
munu eiga von
á fyrsta bami
sínu, að sögn ,
breska blaðsins Daily Mirror, og
mun Michael tilkynna það í sjón-
varpsviðtali á miðvikudag. Sú
frótt hefur þó verið borin til baka.
Loksins kirkjubrúðkaup
Clerides Kýpurforseti og eigin-
kona hans voru vígð saman í
kirkju á fimmtudagskvöid, nærri
hálfri öld eftir að þau giftu sig
h)á fógeta á Englandi.
Aldarafmæli tvíæríngs
Tvíæringurinn í Feneyjum, ein-
hver virtasta listahátíð sem um
getur, á hundrað ára afmæli um
þessar mundir.
Kóflegbjartsýni
Hóflegrar bjartsýni gætir fyrir
samningafund flugmanna SAS og
vinnuveitenda sem verður í dag.
Tudjman hótarstríði
Franjo Tudjman Króatíuforseti
hefur hótað aðskilnaðarsinnum
Serba í Krajina-héraðí stríði í
haust láti þeir ekki af uppteknum
hætti.
Bildtmiðlarmálum
Carl Bildt, fyrrum forsætisráö-
herra Svíþjóðar, verður næsti
sáttasemjari ESB i gömlu Júgó-
slavíu.
Krefjastframsals
Bandarísk stjórnvöld krefjast
þess að Kúbustjórn framselji
bandarískan fjármálamann sem
hefur verið á flótta undan réttvís-
inni í tuttugu ár.
Hinrik á spítala
Hinrik prins,
eiginmaður
Margrétar Þór-
hildar Dana-
drottningar,
verður lagður
inn á sjúkrahús
í Brussel á
mánudagvegna
bólgu í hryggjarlið sem gerð var
aðgerð á í mars en prinsinn hefur
fundið mikið til síðan.
Bréfasprengja særir
Tvær konur í Austurríki og ein
í Þýskalandi særðust af völdum
bréfasprengja sem öfgasinnaðir
hægrimenn eru grunaðir um að
hafa sent.
Reuter, NTB, Ritzau
Kauphallir erlendis:
Lækkun í
Wall Street
Hlutabréfaverö í kauphöllinni í
Wall Street í New York lækkaði
nokkuð á fimmtudag vegna ótta fjár-
festa við vaxtabreytingar á næst-
unni. Um leið féll dollar í verði gagn-
vart marki og jeni.
Á sama tíma hækkuðu hins vegar
hlutabréf í verði í kauphöllinni í
London, svo mikið að FT-SE 100
hlutabréfavísitalan hefur ekki verið
hærri í 15 mánuði. Ástæða hækkun-
ar er einkum orörómur um kaup
svissneska lyfjafyrirtækisins Roche
á breska kolleganum Zeneca.
Bensín og olía hefur lækkað lítil-
lega á heimsmarkaði sökum offram-
boðs um leið og eftirspum er óvenju-
lítil miðað við árstíma. -Reuter
Utlönd
Flugmanninum Scott O’Grady fagnað sem þjóðhetju:
Ég haf ði þetta
af fyrir ást guðs
- sagði hann við félaga sína og þerraði tár á hvörmum
„Ef ekki væri fyrir ást guðs á mér
og ást mína á guði hefði ég aldrei
haft þetta af. Það er hann sem kom
mér hingað og ég veit það í hjarta
mínu,“ sagði bandaríski orrustuflug-
maðurinn og hetjan Scott O’Grady í
bækistöð bandaríska flughersins í
Aviano á Ítalíu í gær um leið og hann
þerraði tár á hvörmum sér.
O’Grady var skotinn niður yfir
serbnesku landsvæði í Bosníu í síð-
ustu viku en var bjargað á ævintýra-
legan hátt í dögun á fimmtudags-
morgun. Hann hafði þá farið huldu
höfði í sex daga og nærst að mestu á
regnvatni og skordýrum.
O’Grady. hrósaði í hástert land-
gönguliðunum sem komu til að
bjarga honum og létu skothríð serb-
neskra sveita ekkert á sig fá.
„Ef þið viljið leita að hetjum eigið
þið að leita meðal þeirra af því að
þeir eru bestir í heimi,“ sagði
O’Grady frammi fyrir eitt þúsund
félögum sínum og fjölskyldum þeirra
sem öskruðu og görguðu og veifuðu
bandarískum fánum.
„Þeir segjast bara hafa verið að
sinna starfi sínu en þeir komu og
hættu lífi sínu,“ sagði hann.
Scott O’Grady var búinn að raka
sig og var klæddur í flöskugrænan
hermannabúning þegar hann kom
fram fyrir félaga sína. Ekki var ann-
að að sjá en hann væri afslappaður
og í flnu formi.
O’Grady lét ekkert uppskátt um
það hvernig honum heföi tekist að
fara huldu höföi á. yfirráðasvæði
Serba í sex daga áður en honum var
bjargað. Yfirmenn í flughernum
Scott O’Grady, bandaríski flugmaðurinn sem var bjargað úr klóm Serba í sögðu aö tekin yröi rækileg skýrsla
fyrradag, felldi tár þegar hann hitti félaga sína í flugherstöðinni í Aviano á af honum áður en hann færi aftur til
italíuigær. Simamynd Reuter Bandaríkjanna. Reuter
Sænsku mannræningj arnir:
Gáf ust upp í gær
Tony Blairvarar
viðheitu sumri
Tony Blair, formaður breska
Verkamannaflokksins, hefur
færst allur í aukana eftir að ný
skoðanakönnun leiddi í ljós gífur-
legar vinsældir hans meðal kjós-
enda. Blair hefur nú varað John
Major forsætisráðherra við löngu
og heitu sumri þar sem Verka-
mannaflokkurinn muni hamra á
því stefnumáli sínu að enn sé von
um bjarta framtíð.
„Verkamannaflokkurinn nýtur
mikillar hylli nú en við megum
ekki sofna á verðinum,“ sagði
Blair. Reuter
Þrír þungvopnaðir menn, sem
rændu fjórum manneskjum í Svíþjóð
í fyrrinótt og gærmorgun, gáfust upp
fyrir lögreglu síðdegis í gær eftir að
til skotbardaga kom þeirra í milli.
Allir gislarnir fjórir sluppu heilir á
húfi frá ræningjunum.
Þremenningarnir feröuðust sam-
tals 250 kílómetra eftir þjóðvegum
Svíþjóðar, fyrst í lítilli rútu en síðan
í ýmsum bílum sem þeir stálu. Menn-
irnir hófu ferðalag sitt í bænum FrO-
lesas í suðvesturhluta landsins þar
sem þeir rændu litlu rútunni. Ferð-
inni lauk síðan í bænum Hallsberg
þar sem ofbeldismennirnir réöust
inn í hús og tóku áttræðan karlmann
og hálfáttræða konu í gíslingu.
Lögreglan umkringdi húsið og
skiptist hún á skotum við ræningj-
ana. Einn ræningjanna særðist á
fæti en hinir tveir gáfust upp.
Lögreglan sagði að ekki lægi fyrir
hvað mönnunum gekk til en talið er
að þeir hafi gert tilraun til ráns í
Gautaborg. Þá er talið að einn þeirra
sé fangi sem skilaði sér ekki eftir
heimfararleyfi. Reuter
Kauphallir og vöruverð erlendis
10000
' 9500
9000
8500
1 8000
HangScng
9292,78
M A M
21
;:j
/
$/ tunna 17,76
F M A M
■
DV
Karl Bretaprins
skuldarlOO
miiyóniriskatta
Karl Breta-
prins: á yfir
höfði sér að
verða rukkaður
um eina milljön
punda. eða sem
svarar liðlega
100 milljónum
ísienskra
króna, í tekjuskatt á þessu ári,
að því er kemur fram í tölum í
breska þinginu.
Ríkisarfinn bauðst til að greiða
skatt af tekjunum af sveitasetr-
um sínum í Cornwall. Hann á þá
150 milljónir króna eftir fyrir sig,
DíÖnu og synina.
Kostnaður við starfsmanna-
hald prinsins er dregið frá áður
en skattarnir eru lagðir á. Karl
hefur um áttatíu starfsmenn í
þjónustu sinni og Díönu.
Börnfáaðhafa
áhrifáframtíð
Norðurlanda
Norræn börn og unglingar á
aldrinum tólf til átján ára fá í
fyrsta sinn tækifæri til að hafa
áhrif á framtíð Norðurlandanna
þegar efnt verður til sérstakrar
ráðstefnu dagana 15. til 18. júní í
Silkiborg í Danmörku.
Ráðstefnan ber yfirskriftina
„Við sköpum Norðurlöndin“ og
er hún skipulögð af danska
menningarmálaráðuneytinu pg
borgarstjórn Silkiborgar.
Áttatíu börn og unglingar frá
vinabæjum Silkiborgar annars
staðar á Noröuríöndunum taka
þátt í ráðstefnunni og munu þau
koma hugmyndum sínum um
norræna samvinnu á framfæri
með ýmsum hætti.
Börnviðlanda-
mæriTexasog
Mexíkófæðast
heilalaus
Sex börn fæddust ýmist alveg
án heila eða þá með aðeins lítinn
hluta heilans viö landamæri Tex-
as-fylkis og Mexikós á fjögurra
mánaða tímabili sem lauk í mars.
Mikil mengun er á þessu svæðí.
Að sögn dagblaösins Express-
News í San Antonio í Texas hafa
ekki jafn mörg heilalaus börn
fáeðst á svo skömmum tíma frá
því árið 1991 þegar sex börn með
engan eða aðeins brot úr heila
fæddust i tveimur bæjum við
landamærin.
Vísindamenn vita ekki hvers
vegna þetta gerist en börnin fæð-
ast ýmist andvana eða deyja
stuttu eftir fæöingu.
Supermaner
farinnaðgeta
aðeinshreyftsig
Kvikmynda-
leikarinn
Christopher
Reeve, sem
þekktastur er
fyrir að leika
ofurmennið
Superman, er
farinn að geta
aðeins hreyft
bæðí hægri og vinstri hlið likam-
ans en Reeve hálsbrotnaði og
lamaðist þegar hann féll af hest-
baki fyrir skömmu.
„Hreyfingin segir okkur að boð-
in komist gegnum meiðslasvæðin
og að hann hreyfi þennan líkams-
hluta meðvitað," sagði tauga-
skurðlæknirinn John Jane sem
hefur annast leikarann.
Jane sagði að Reeve væri enn
þungt haldínn en líðan hans færi
batnandi. Reuter, Ritzau