Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1995, Síða 8
8
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1995
Vísnaþáttur______________________________________________
Metingur milli
landshluta
Þennan þátt hef ég í þingveislu
er efnt var til fyrir jóUn 1937 á
Hótel Borg. Var þar gleðskapur
mikill og kviðlingarnir flugu
manna á milli. Endaði svo að kveö-
skapurinn snerist upp í meting
milli landshluta. Reið þingmaður
Vestur-Skaftfellinga, Gísli Sveins-
son, á vaðið og kvað:
Sunnlendinga sigur vís
sig mun ávallt herða.
Þeir, sem búa yst við ís
undirlægjur verða.
Þessum skætingi svaraði Jón
Pálmason á Akri svo:
Brekkur sækja aldrei á,
þótt yfirlæti kunni.
Sunnlendingar sveima á
sálarflatneskjunni.
Jón mætti einhvert sinn manni á
götu í Reykjavík og ætlaöi að eiga
við hann orð. En maður þessi sagð-
ist þurfa að flýta sér því að hann
væri að fara á leikritið „Konur
annarra“ er sýnt var í Iðnó. Kvað
þá Jón:
Flýti ég mér og fer af stað
fylltur glæstum vonum.
Eg hef keypt mér aðgang að
annarra manna konum.
Jón var eitt sinn á leið suður í
bifreið. Hjá bílstjóranum er Gunn-
ar hét sat kona nokkur. Þegar kom-
ið var suður á Hvalfjarðarveginn
kvartaði hún undan vanlíðan er
lýsti sér þannig að hún var löður-
sveitt öðrum megin en náköld hin-
um megin. Um þetta kvað Jón:
Gunnars vors er holdið heitt,
hitar því að vonum,
er á frúnni orðið sveitt
allt, sem snýr að honum.
Svona verkar sitt á hvað
sálar aflið dulda:
Hinum megin, hart er það,
hún er að blána úr kulda.
Hér næst er svo vísa úr fyrr-
nefndri þingveislu. Hún er eftir
Bjarna Ásgeirsson og eggjar hann
menn til drykkju:
Gullið tár í glösum skín,
glæstur er kappahringur.
Blessaður drekktu brennivín.
Bernharð Eyflrðingur.
Enn er landshornametingurinn á
ferö. Þannig kvað Skúli Guð-
mundsson til Vestfirðinga:
Betra væri þetta þing
Palomino Colt
FELLIHÝSI
Frábært verð, aðeins kr. 499.000 stgr. Innifalið í
verði: m.a. miðstöð, ferðasalerni, gashylki, o.fl., o.fl.
Sýning í dag, laugardag, frá kl. 10-16.
SPÖRT^
MAKKAÐURINN
Skipholti 37 (Bolholtsmegin), s. 553-1290
þrasað væri minna,
væri engan Vestfirðing
í vorum hópi að finna.
Þessu svöruöu þeir í sameiningu,
þeir Þorsteinn Þorsteinsson sýslu-
maður og Bjarni Ásgeirsson:
Vísnaþáttur
Valdimar Tómasson
Þegar komið var hér verst
véum helgrar glóðar.
Vestflrðingar vörðu best
vígi lands og þjóðar.
Þegar breska herstjórnin lét
flytja Einar Olgeirsson ritstjóra og
4. þingmann Reykvíkinga til Eng-
lands tók við sem varamaður hans
Jóhannes úr Kötlum. í umræðum
um þegnskylduvinnu var Jóhann-
es meðal andmælenda og kom fyrir
í ræðu hans „taxtakaup". Bjarni
Ásgeirsson greip það á lofti og sendi
honum þessa vísu:
Teygað hefur þorstlát þjóð
af þínu boðnar-staupi.
Ortir þú samt öll þín ljóð
undir taxtakaupi.
Jóhannes úr Kötlum, sem fullu
nafni hét Jóhannes Bjarni Jónas-
son, svaraði með eftirfarandi vísu:
Taxtakaupið tíðum brást
tregu ljóðsins barni,
en ef að það skyldi eitt sinn fást
yrði ég þægur Bjarni.
Bjarni á Reykjum kvað er Jón
Pálmason flutti sig úr sæti við hlið
hans á Alþingi:
Hann flutti yfir fjöll til mín
í félagi drottins barna,
en hélt svo aftur heim til sín
helvítið að tarna.
Matgæðingur vikuimar
x>v
Baunabuff
- og karríkjöt með ferskjum
„Eg er nýbúin að kynnast grænmetisréttum og þyk-
ir verst að hafa ekki kynnst þeim fyrr. Ég hélt alltaf
að þetta væri svo flókið en það er algjör misskilning-
ur, sérstaklega ef maður á matreiðsluvél með bland-
ara,“ segir Guðný Einarsdóttir á Eskifirði sem er
matgæðingur vikunnar. Hún segir gott að byrja rólega
með grænmetið, eina til tvær máltíðir á viku. Guðný
býður upp á baunabuff og uppáhaldskjötréttinn sinn
síðustu 25 árin auk eplaköku úr bókinni Grænt og gott.
Baunabuff
11/2 bolli soðnar sojabaunir
6 meðalstórar soðnar kartöflur
1 stór laukur
1 til 1 1/2 bolli haframjöl
2 egg
salt
pipar
annað krydd eftir smekk
Sojabaunirnar eru lagðar í bleyti yfir nótt. Vatninu
hellt af þeim og þær síðan soðnar í 1 til 11/2 klukku-
stund. Allt sett í blandara. Deigið, sem er frekar lint,
er sett á pönnu með skeið og steikt ljósbrúnt beggja
megin.
Gott er að bera baunabuffið fram með kartöflugrat-
íni og hrásalati og sósu úr sýrðum rjóma.
Karríkjöt með ferskjum
4 til 6 kjötsneiöar (svína- eða lambakjöt)
1/2 dós ferskjur
1/2 dós sýrður rjómi
2 kúfaðar msk. majónes
3 tsk. milt karrí
2 eggjahvítur
salt
pipar
olía
1 poki af frystu grænmeti eftir smekk
Kjötið, sem þarf að vera meyrt, er steikt á pönnu í
nokkrar mínútur. Kjötsneiðarnar eru síðan lagðar í
eldfast mót, salti og pipar stráð yflr. Hálf ferskja sett
ofan á hverja kjötsneiö. Majónesi og sýrðum rjóma
blandað saman og karríið hrært saman við. Eggjahvít-
urnar stífþeyttar og karríblöndunni blandað varlega
saman við.
Guðný Einarsdóttir. DV-mynd Emil Thorarensen
Grænmetinu er hellt meðfram kjötinu sem síðan er
þakið með karríblöndunni. Bakað í ofni.í aö minnsta
kosti 20 mínútur við 200 C°. Borið fram með soðnum
brúnum hrísgrjónum eða kartöflum og salati.
Bandarísk eplakaka
3 msk. smjör eða smjörlíki
11/2 dl sykur
2 eggjarauður
3 3/4 dl hveiti
3 tsk. lyftiduft
1 1/2 dl nýmjólk
3 til 4 epli
Smjör og sykur hrært létt saman. Eggjarauðum
bætt út í og hrært vel. Hveiti og lyftiduft sigtað saman
og bætt út í smátt og smátt ásamt mjólkinni. Eplin
flysjuð og kjarnhúsin fjarlægð með eplajárni. Skorin
í þunna fleyga sem stungið er í deigið hring eftir hring
og þykka hliðin á fleygunum látin vísa upp. Kakan
bökuð í 175 gráða heitum ofni í 1 klst.
Guðný skorar á Guðrúnu Björgu Kristinsdóttur að
vera næsti matgæðingur. „Guðrún, sem er vinkona
dóttur minnar, gerði mér ljóst að það er hægt að búa
til veislumat þó maður sleppi kjötinu."
Eftir helgina má fá uppskriftina í Símatorgi DV. Síma-
númerið er 904-1700.
Hinhliðin____________________
Baðhús Ragnars Sót er
uppáhaldsstaðurinn
- segir Rúnar Öm Friðriksson söngvari
Hljómsveitin Sixties hefur náð
skjótum frama á stjörnuhimninum
undanfarið og lag hennar, Vor í
Vaglaskógi, trónir nú á toppi ís-
lenska listans. Hljómsveitin hefur
ferðast um landið með miklum vin-
sældum og ætlar að spila í Stapan-
um í kvöld. Hljómsveitarmeðlimir
klæðast allir svokölluðum bítla-
jökkum og þeir láta gömlu lögin
hljóma á nýjan leik. Söngvari
hljómsveitarinnar er Rúnar Örn
Friðriksson og það er hann sem
sýnir lesendum hina hliðina að
þessu sinni:
Fullt nafn: Rúnar Örn Friðriksson.
Fæðingardagur og ár: 8. desember
1968.
Maki: Énginn.
Börn: Engin. -
Bifreið: Colt árgerð 1981.
Starf: Tónlistarmaður.
Laun: Þau eru breytileg.
Áhugamál: Tónhst og kvenfólk.
Hefur þú unnið í happdrætti eða
lottói? Aldrei nokkurn tíma.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Flækjast á milli pöbbanna.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Þrífa og að vakna á morgn-
ana.
Rúnar Örn Friðriksson er söngvari
hljómsveitarinnar Sixties.
DV-mynd ÞÖK
Uppáhaldsmatur: Feitur hamborg-
cUÍ.
Uppáhaldsdrykkur: Bjór.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag? Mike Tyson.
Uppáhaldstímarit: Q.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð? Elle Macpherson.
Ertu hlynntur eða andvigur ríkis-
stjórninni? Hlynntur.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta?John Lennon.
Uppáhaldsleikari: Quinten Tarn-
antino.
Uppáhaldsleikkona: Tori Wells.
Uppáhaldssöngvari: Bono.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Ross
Perot.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Hermann.
Uppáhaldssjónvarpsefni: íþróttir.
Uppáhaldsveitingahús: Baðhúð
Ragnars Sót.
Hvaða bók langar þig mest að lesa?
Nýju símaskránna.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Þær sem spila Sixties.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Gestur
Einar Jónasson.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Það er nokkurn veginn
jafnt.
Uppáhaldssjónvarpsmaður:Borg-
þór Jónsson.
Uppáhaldsskemmtistaður: Baðhús
Ragnars Sót.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: K.A.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtíðinni? Verða einhvern tíma
brúnn.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí-
inu? Ferðast um landið með strák-
unum úr Sixties.