Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1995, Qupperneq 9
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1995
9
Bridge
! Góð bók vim vamarspil
ÍP
N
V A
S
Enginn er á hættu, andstæöingur
á hægri hönd segir pass og ég geri
það líka. Sagnröðin verður nú fjör-
ugri þegar vinstri handar andstæð-
ingur opnar á einu hjarta og makker
hans hoppar í íjögur hjörtu. Allir eru
ánægðir með það og makker spilar
út tígulgosa.
A/0
Austur Suður Vestur Norður
pass pass lhjarta pass
4hjörtu pass pass pass
♦ ÁG ♦ 98432
♦ Á973 V 6
♦ 82 ♦ ÁD743
♦ G9653 + 108
Þetta virðist heldur slök 4ra hjarta
sögn en það er víst best að segja ekki
meira því sögnin er ekki töpuð enn-
þá. Ég drep á ásinn í fyrsta slag og
sagnhafi lætur sexið. Gosinn neitar
hærra spili og ég veit að sagnhafi á
kónginn. Ég skipti í laufatíu og sagn-
hafi lætur kónginn. Hann hikaði
samt aðeins þannig að allir vita að
hann á annað lauf. Makker drepur á
ásinn, tekur laufdrottningu og skipt-
ir í spaðasex. Sagnhafi lætur ásinn
og spilar laufgosa.
Hvað er að gerast? Hver er rétta
vörnin?
Það sem er að gerast er að sagn-
hafa vantar kóng eða drottningu í
tromplitinn. Með þéttan trompht
hefði hann tekið trompin og síðan
tekið frílaufm. Með þessari spila-
mennsku er hann að fiska eftir hjálp
í tromplitnum. Ég á tvo kosti í stöð-
unni, að trompa eða trompa ekki.
Og mér líst ekki á að trompa af því
að sagnhafi er að reyna að fá mig til
þess. Þess í stað kasta ég spaða. Sagn-
hafi kastar líka spaða og reynir aftur
með laufaníu. Ef ég á að vera sjálfum
mér samkvæmur þá trompa ég ekki
heldur núna. Ég kasta öðrum spaða
og sagnhafi kastar spaðadrottningu.
BUndur grípur síðasta laufið en
sagnhafi vill það ekki. Hann spilar
tígli á kónginn og trompar tígul. Ég
læt sjöið og drottninguna. Að lokum
spilar sagnhafi hjartaás og meiri
hjarta. Þegar ég er ekki með í seinna
hjartað þá gefst hann upp. Einn nið-
ur.
♦ K106
V D54
♦ G105
♦ ÁD42
♦ D75
V KG1082
♦ K96
+ K7
N
V A
S
♦ ÁG
V Á973
♦ 82
+ G9653
♦ 98432
V 6
♦ ÁD743
+ 108
eftir Mike Lawrence
Einn af afkastamestu bridge-rithöf-
undum seinni ára er bandaríski
bridge-meistarinn Mike Lawrence.
Fyrir utan að hafa unnið til allra
meiri háttar verðlauna í heimalandi
sínu hefir Lawrence unnið heims-
meistaratitilinn tvisvar sinnum, árið
1970 í Stokkhólmi og árið 1971 í Taiw-
an.
Ein af betri bókum hans er um
varnarspilið og nefnist hún á frum-
máhnu „Dynamic Defense" sem þýða
mætti „gríðarsterk vörn“. Það má
segja að Lawrence feti í fótspor eins
mesta bridge-rithöfundar heimsins,
Terence Reese, hvað framsetningu
efnisins varöar en eins og Reese gerði
í sinni þekktustu bók, „Spilaðu
bridge við mig“, sem komið hefir út
á íslensku, þá leysti hann vandamál-
in og hugsaði upphátt til hægðarauka
fyrir lesandann.
Við skulum fylgjast með honum
leysa vandamáhð í eftirfarandi spili
úr bókinni:
♦ 98432
V 6
♦ ÁD743
+ 108
Aðalatriðið í þessu spih er að reyni
einhver að fá þig til þess að gera eitt-
hvað er venjulega best að gera það
ekki. Ef sagnhafi hefði getað tekið
trompin hefði hann gert það. Þegar
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
hann gerði það ekki þá gat hann það
gKKí
Það er BARON BARCLAY BRIDGE
SUPPLIES, 3600 Chamberlain Lane,
Suite 230, Louisville, KY 40241, sem
gefur bókina út og hún kostar $9,95
ásamt $3,00 fyrir sendingarkostnaði.
Þeir sem vilja geta fengið senda fría
64 síðna vöruskrá.
Prince Polo
I nýjum búningi!
Nú er hið eina sanna Prince Polo komið í nýjar og betri umbúðir.
Fullkomnari framleiðsluaðferðir tryggja þér alltaf nýtt og ferskt Prince Polo.
Mundu eftir því næst þegar þú vilt taka þér góða Prince Polo pásu!