Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1995, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1995, Page 15
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1995 15 X;- . ; , .■ x’i v n-nr'Tí" ■■■rm . I ú \ 1 I minnisblaðinu segir: „Bandarísk stjórnvöld eru reiðubúin að aðstoða íslensk stjórnvöld í efnahagsmálum, með því að semja samtímis um lánveitingu að upphæð 3 milljónir dollara og þau mál sem varða varnarsamninginn.“ íslensku ríkisstjórninni tókst svo að fá lánið hækkað í 4 milljónir dollara! Pólitískar goðsagnir Hin síðari ár hafa nokkrir íslenskir sagnfræðingar kannað af umtals- verðum dugnaði margvísleg gögn í erlendum skjalasöfnum um sam- skipti íslendinga viö umheimfmn fyrr á þessari öld. Nægir þar að nefna nokkrar merkar bækur Þórs Whiteheads um ísland í aðdrag- anda síðari heimsstyrjaldarinnar og nýleg rit um tengsl íslenskra sósíslista við ráðamenn í Austur- Þýskalandi sem var. Eðli málsins samkvæmt er auð- vitað margt forvitnilegt um sam- skipti þjóða og einstakra valds- manna fyrr á öldinni ennþá falið undir leyndarstimpli í skjalasöfn- um erlendra ríkja og stofnana. Það hefur víöa og lengi tíðkast að stjómvöld á hverjum tíma reyni að fela fyrir samtímanum ýmsar ákvarðanir og viðhorf sem sett em fram i viðræðum milli ríkisstjórna og sendimanna þeirra. Stundum er því haldið fram að nauðsynlegt sé að ljúga að almenningi í viðkom- andi löndum vegna ótilgreindra þjóðarhagsmuna. Framferði Ric- hards Nixons, forseta Bandaríkj- anna, er líklega alræmdasta dæmið um slíkt hin síðari ár. Sagan sýnir hins vegar að raunverulegar ástæður feluleiksins eru oftast póh- tískar. Þetta átti vissulega við á tímum kalda stríðsins þegar ýmsir stjóm- málamenn og embættismenn töldu það verkefni sitt að hafa vit fyrir kjósendum með því m.a. að leyna þá veruleikanum og fegra um leið eigin málstað. Viö slíkar aðstæður urðu gjarnan til ýmsar póUtískar goðsagnir sem hljóta að láta verulega á sjá þegar leyndinni er svipt af opinberum skjölum og upplýst hvað forystu- menn voru raunverulega að gera og segja á bak við tjöldin. Feimnismál Eitt helsta feimnismál margra stjórnmálamanna, sem vom áhrifamiklir hér á landi á árunum eftir síðari heimsstyrjöldina, er samtvinnun varnarmála og pen- inga. Það átti til dæmis lengi vel við um þann fjármálalega gróða sem íslenskt þjóöarbú hefur haft af dvöl bandaríska hersins á Kefla- víkurflugvelli. Skipulegt hermang var eitthvað ógeðfellt sem margir stjórnmála- menn vildu aUs ekki viðurkenna að ætti sér stað - fyrst og fremst af póUtískum og áróðurslegum ástæðum. Þó vissi þjóðin auövitað betur enda nutu þúsundir lands- manna beint góðs af fjárstreyminu sem fylgdi bandaríska hemum, ekki síst á sjötta og sjöunda ára- tugnum. A sama hátt var það oft feimnis- mál ráöandi stjórnmálamanna hvemig dvöl og aðstaða bandaríska hersins hér á landi var í reynd notuð af íslenskum stjómvöldum til að ná fram vilja sínum á öðmm sviðum. Þar nægir að sjálfsögðu að nefna deUurnar við nokkrar bandalagsþjóðir innan Norður- Atlantshafsbandalagsins (NATO) i kjölfar endurtekinnar útfærslu ís- lensku fiskveiðilögsögunnar. Þá var Keflavíkurtrompinu gjaman spilað út með einum eða öðmm hætti. Og það hafði oftar en ekki tilætluð áhrif á ráðamenn mikil- vægustu bandalagsþjóðanna. Afhjúpanir Kúvending vinstri stjórnar Her- manns Jónassonar varöandi brott- för bandaríska varnarliðsins síðari hluta ársins 1956 er dæmigerð fyrir pólitískt feimnismál af þessu tagi. Einmitt þess vegna hefur verð- launaritgerð Vals Ingimundarson- ar sagnfræðings í nýjasta tölublaði tímaritsins Sögu.vakiö vémlega athygh - og um leið mótmæli frá þeim sem telja sig enn þurfa að verja pólitískar goðsagnir fyrir köldum staðreyndum leyndar- skjalanna sem nú em að koma fram í dagsljósið. Lítum aðeins á forsögu málsins. Um miðbik sjötta áratugarins gerðu forystumenn Framsóknar- flokksins og Alþýðuflokksins til- raun til að ná saman meirihluta á Alþingi. Leið þeirra að þessu markmiöi var myndun kosninga- bandalags þessara tveggja flokka. Andstæðingamir kölluðu þessa samtengingu framboðslistanna Laugardags- pistíll Elías Snæland Jónsson aöstoðarritstjóri „hræðslubandalag" og lifir sú nafngift í sögunni. Þessu samstarfi fylgdi samkomu- lag um tillögu til þingsályktunar sem samþykkt var á Alþingi vorið 1956. Þar var mælt fyrir um endur- skoðun vamarsamningsins viö Bandaríkin frá árinu 1951 með það fyrir augum að íslendingar tækju að sér gæslu og viðhald hemaðar- mannvirkjanna en herinn hyrfi úr landi. Næðist ekki samkomulag um slíka breytingu viö bandarísk sfjómvöld skyldi varnarsamningn- um sagt upp. Kúvending Hræðslubandalagið fékk ekki hreinan meirihluta í þingkosning- unum 24. júní 1956. Framsóknar- menn og kratar leituöu þá til Al- þýðubandalagsins um stjómar- samstarf. Hermanni Jónassyni tókst að inynda vinstri stjórn þess- ara þriggja flokka mánuði síðar. Eitt af stefnumiðum hennar var að framfylgja áðurnefndri samþykkt Alþingis um brottför hersins. Af því varð þó ekki. Viðræðum íslenskra og bandarískra stjórn- valda lauk síðar á árinu með sam- komulagi um óbreytt ástand. Af hálfu vinstri stjórnarinnar var kú- vendingin skýrð með tilvísun til þess að innrás heija Sovétríkjanna í Ungverjaland í byijun nóvember 1956 og árás breskra og franskra hermanna á Egypta viö Suez um svipað leyti hefðu gjörbreytt stööu heimsmálanna. Sjálfstæðismenn, sem vom í stjórnarandstöðu á þessum tíma, héldu því fram að ástæða þessarar kúvendingar væri annars eðlis: „Bandaríkjamenn hefðu veitt ríkisstjóminni stórlán til að greiða fyrir áframhaldandi dvöl hersins. Vinstri stjómin vísaði þessu á bug, og þeir stjómmálamenn, sem komu við sögu, ítrekuðu síðar að engin tengsl hefðu verið á milli her- og lánamálanna," segir Valur Ingi- mundarsson. Og hann bætir við um efni ritgerðar sinnar: „Færð verða rök fyrir því að varnar- og lánamál- in hafi verið nátengd, að Banda- ríkjamenn hafi veitt vinstri stjóm- inni lán með því skilyrði að herinn yrði áfram." í sjálfheldu Þessa fullyrðingu styður Valur með tilvitnunum í bandarísk skjöl frá þessum tíma sem legið hafa í þagnargildi í tæp 40 ár. Vinstri stjórnin hafði margháttuð framfaramál á stefnuskrá sinni. Til að hrinda þeim í framkvæmd þurfti stórt erlent lán. Eins og Valur rekur í ritgerð sinni reyndist erfitt fyrir ráðherra ríkisstjórnar sem hafði að rtiati forráðamanna helstu NATO-þjóða harða kommúnista innanborðs að fá peninga að láni á Vesturlöndum. Þeir komu alls staðar að lokuðum dyrum. Fljótlega eftir myndun stjórnar- innar stefndi því í mikinn pólitísk- an vanda. Valur orðar það svo: „Segja má, að vinstri stjórnin hafi verið komin í pólitíska sjálfheldu um miðjan september vegna hrak- fara hennar í lánamálinu. Hún stóð í raun frammi fyrir tveimur kost- um: Að ná sáttum viö Bandaríkja- menn og aðrar NATO-þjóðir í her- málinu til að greiða fyrir lánveit- ingum, eða hundsa hernaðarhags- muni Atlantshafsbandalagsins og leita til Sovétmanna um efnahags- aðstoð." Lausnin fundin Ljóst er að Alþýðuflokkurinn og Framsóknarflokkurinn vildu fara fyrrnefndu leiðina. Og Bandaríkja- menn voru tilbúnir að útvega stór- lán í skiptum fyrir óbreytt ástand í varnarmálum. Sú varð líka niður- staðan. Bandaríkjamenn settu þetta tfi- boð formlega fram í minnisblaði á fundi 25. október 1956 - nokkru áður en innrásin var gerð í Ung- veijaland. Valur segir þetta sögu- legan fund og vitnar ítarlega í minnisblaðið þar sem komið er beint að efninu: „Bandarísk stjómvöld em reiðu- búin að aðstoða íslensk stjórnvöld í efnahagsmálum, með því að semja samtimis um lánveitingu að upp- hæð 3 milljónir dollara og þau mál, sem varöa vamarsamning- inn... Unnt er að ná samkomulagi um þessa þriggja milljóna dollara aðstoð áður en viðræðunum um vamarsamninginn lýkur,“ segir þar. Á þessum nótum var skömmu síðar gengið frá samningum um bæði þessi mál. íslensku ríkis- stjórninni tókst jafnvel að fá bandaríska lánið hækkað úr þrem- ur milljónum dollara í fjórar! Elías Snæland Jónsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.