Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1995, Qupperneq 18
18
LAUGARDAGUR 10. JÚNl 1995
Dagur í lífi Rósu Ingólfsdóttur listamanns:
Þúsund verk á einum degi
Rósa Ingólfsdóttir hefur verið að undirbúa í heilf ár viðamikla sýningu í Perlunni. DV-mynd GVA
Klukkan hringdi klukkan hálfsjö.
Ég dró sængina upp fyrir haus og í
gegnum hugann þaut allt þaö sem
ég átti eftir aö gera áður en deginum
lyki. Þaö var æöi margt. Með til-
komumikilli sveiflu þeytti ég sæng-
inni af mér og stökk í einum rykk
fram á gólf, fram á bað, skrúfaöi frá
krananum í baðkarinu og helltí. Rose
Cardin, uppáhaldsfreyðibaðinu
mínu, út í baðvatnið. Setti allt sem
ég ætlaði að framkvæma yfir daginn,
þ.e.a.s. tossamiöana, á eldhúsborðið.
Ég fór yfir þá í einum grænum um
leið og ég hellti upp á könnuna, rist-
aði mér tvær brauðsneiðar og klæddi
mig á hlaupum fram og aftur um
húsið eins og ég væri stödd á keppn-
isvellinum, enda eins gott að hafa
sláturhúsið hraðar hendur á hreinu
því næstu átján klukkustundir voru
nánast fullbókaðar.
Eftir að hafa snyrt mig og sett allt
niður í tösku smurði ég nesti handa
Heiðveigu minni, sem átti að byija í
skólagörðunum þennan daginn. Síð-
an gaf ég frú Steinu, læðunni minni
og sonum hennar, sinn kattamat og
opnaði eldhúsgluggann svo þeir
kæmust út. Þá óð ég út í bíl og ók
af stað. Klukkan var orðin hálfníu
en ég var komin niður í Sjónvarp um
níu.
Síminn stoppaði ekki
Á teikniborðinu var ársskýrsla
Ríkisútvarpsins, sem ég var að enda
við að ljúka hönnun á, það er að segja
forsíðan, og ég bretti upp ermar. Sím-
inn stoppaði ekki hjá mér. Það var
hringt frá öllum landsfjórðungum
út af ÍÐUM því nú voru bara tveir
sólarhringar þar til sú sýning yrði
opnuð með pompi og prakt í Perl-
unni. Undirbúningur hefur staðið
yfir undanfarið ár, geipilega
skemmtilegur undirbúningstími sem
nú var að skila sér - allir hlutar að
falla saman og verða að einni heild.
Ég þakkaði mínum sæla fyrir að hafa
passað upp á að viðhalda vinalegum
fíflagangi allan þennan tíma, gert
grín að sjálfri mér í stað þess að láta
stressið taka völdin þegar mest gekk
á.
Fordrykkur ákveðinn
Kem ég öllu þessu fólki fyrir? Ég
ætlaði upphaflega að vera með 40
umsóknir en núna á lokastiginu voru
þær orðnar 180 ... en allt gengur
þetta upp með góðu og björtu hugar-
fari ef vilji er fyrir hendi. Ég brunaði
út í Perlu í hádeginu á fund með
þeim SS-foringjum Stefánunum og
gekk frá opnunarfordrykknum meö
veitingastjóranum. Ég hringdi í
Mjólkurbú Flóamanna og talaði við
Sigurð Mikaelsson og þakkaði hon-
um fyrir Garpana sem yrðu bomir
fram, síðan hringdi ég í Þóri Stein-
grímsson hjá Eldhaka sem ætlaöi að
leggja á móti í fordrykkinn hið klass-
íska íslenska brennivín. Hljóp út í
bíl og ók til Hafnarfjarðar til að
kaupa þéttiskífur sem nota átti í fest-
ingar á sýningunni.
Þegar ég kom niður á teiknistofu
aftur lá heilt búnt af skilaboðum á
boröinu mínu. Ég lá nánast í síman-
um eins og óð manneskja næstu tvær
klukkustundirnar.
Hampiöjan var búinn að sníða fyrir
mig netin í básana um hálffjögur,
prentgögnin voru að verða tilbúin í
Litbrá. Eg var búin að fá lánaða að-
stöðu hjá John Lindsey svo Hjalti
aðstoðarmaður minn, reddinga-
meistari og myndlistarnemi með
meiru, gæti ásamt hjálparkokkum
sínum lokið við að hanna síðustu
skreytingarnar fyrir þessa viða-
miklu list- og handíðasýningu.
Rættvið
lögreglustjóra
Ég skaust í Litinn í Síðumúla til
að kaupa límband og rúllur, hringdi
í Unni út af tískusýningunni og at-
hugaði hvort fegurðardrottningarn-
ar yrðu ekki örugglega með.
Því næst hringdi ég í Böðvar Braga-
son lögreglustjóra og bað hann um
að semja opnunarræðu, hafði því
næst tal af förmanni Lögreglukórs-
ins, en kórinn átti að syngja við opn-
unina. Þegar hér var komið sögu var
klukkan orðin fimmtán mínútur yfir
fjögur. Ég stökk út í bíl til að ná í
Heiðveigu og Sollu frænku hennar í
skólagarðana og afgreiddi ein tutt-
ugu skilaboð sem höfðu safnast upp
á borðinu mínu.
Ég kom heim um hálfsjö og skellti
mér í matseldina, sem var svona í
sportlegri kantinuin aö þessu sinni,
skipti um föt og dreif mig í einum
grænum á æfingu hjá Módelsamtök-
unum. Við Unnur vorum með loka-
æfingu á tískusýningunni. Allar feg-
urðardrottningarnar voru mættar og
ljósmyndari Morgunblaðsins. Viö
skelltum okkur í að fara yflr allan
þann glæsilega fatnað sem átti að
sýna. Allur fatnaðurinn er eftir
nokkra af okkar ágætu fatahönnuð-
um. Ég kom heim um hálfellefu og
þá lékum við Heiðveig okkur við
kisuna smástund. Á meðan ég var á
æflngunni hafði hún tekið til í öllu
húsinu fyrir mömmu sína og fékk
fínan koss fyrir dugnaðinn. Þá tók
síminn upp á því að hringja hvað-
anæva af landinu til klukkan hálftvö
um nóttina.
Framlág og fyndin
Það var fremur framlág og fyndin
kona sem lagðist á koddann kluÉkan
tvö. Hún vissi ósköp vel að hennar
biðu þúsund hiutir sem þyrfti að
framkvæma næsta morgun hvaö
sem tautaði og raulaði. Ég ætlaði að
reyna að finna tíma síðdegis til að
setja frú Sigríði í gang og svo fram-
vegis ... og svo framvegis. Um að
gera að vera hress ... það þýðir ekk-
ert annar... Er ekki allt í lagi! Vel-
komin á sýninguna.
Finnur þú fimm breytingar? 313
Gleymdu nú ekki að segja Einari lækni frá eyrnabólgunni sem
þú fékkst 1984.
Nafn:
Heimili:
Vinningshafar fyrir þrjú hundruðustu og elleftu get-
raun reyndust vera:
1. Sigríður Hermannsdóttir2. Guðbjörg Guðmundsdóttir
Helgafelli 11 Skeljagranda 2
735 Eskifirði 107 Reykjavík
Myndirnar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð
kemur í ljós að á myndinni til
hægri hefur fimm atriðum verið
breytt. Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með krossi
á myndinni til hægri og senda
okkur hana ásamt nafni þínu og
heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurveg-
aranna.
1. verðlaun:
Zodiac Sigma 300 simi, að verðmæti kr.
4.950, frá Hljómbæ, Hverflsgötu 103,
Reykjavík.
2. verðlaun:
Örvalsbækur. Bækumar sem eru í verð-
laun heita: Líki ofaukið og Bláhjálmur,
úr bókaflokknum Bróðir Cadfael, aö verð-
mæti kr. 1.790. Bækurnar eru gefhar út
af Frjálsri fjölmiölun.
Vinningarnir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú Funm breytingar? 313
c/ó DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík