Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1995, Page 19
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1995
19
Gerður Pálmadóttir, á árum áður gjarnan kölluð Gerður i Flónni, hefur
opnað lista- og gjafavöruverslun á nýju verslunarsvæði á neðstu hæð flug-
stöðvarbyggingarinnar á Schiphol í Hollandi. Gerður verslar með íslenska
listmuni og hollenskar gjafavörur með áprentuðum myndum sem hún fram-
leiðir og selur í heildsölu. DV-mynd GHS
Gerður í Flónni opnar gjafavöruverslun á Schiphol-flugvelli:
íslenskir
fjoru-
steinar losa
streitu úr
kroppnum
Eyþór Eðvarðsson, DV, Hollandi:
Gerður Pálmadóttir kaupmaður, á
árum áður gjarnan kölluö Gerður í
Flónni, hefur opnað lista- og gjafa-
vöruverslun á nýju verslunarsvæði
á Schiphol-ílugvelli í Hollandi ásamt
dóttur sinni, Svönu Gunnarsdóttur,
og tengdasyni, Þórarni Guðmunds-
syni. Verslunin heitir ARTitlS og er
ein af 40 fyrirtækjum sem fengu að-
stöðu á nýtískulegu verslunarsvæði
sem kallað er Schiphol-Plaza og er á
neðstu hæð ílugstöðvarinnar. Eig-
endur verslunarhúsnæðisins þekktu
til Gerðar og umsvifa hennar i Hol-
landi og buöu henni verslunarpláss
en eftirspurn hefur verið mikil eftir
þessu góða verslunarhúsnæði.
í versluninni ARTitlS er fjölbreytt
og frumlegt vöruúrval sem að mestu
leyti er framleitt af heildsölufyrir-
tækinu Freezing Point, sem er fyrir-
tæki í eigu Gerðar og fjölskyldu
hennar, og í samvinnu við nokkra
þekkta listamenn eins og Dadara,
sem meðal annars er nefndur Keith
Haring of the 90’s, GiBi og Leendert
Jan Vis. Á boðstólum eru glaðar og
íjörmiklar, málaðar styttur úr gormi
og tré, bolir, pennastokkar, skrif-
blokkir, bollar og aUs kyns hlutir
með fallegum, og litríkum myndum
sem smekklega er stillt upp í búð-
inni. Einnig eru íslenskar vörur frá
Koggu og Magga, Dagmar Kaldal og
fleiri.
Blaöamaður DV var á ferð í Hol-
landi fyrir nokkru og kom þá viö í
verslun Gerðar á Schiphol Plaza. Svo
vel vildi til að Gerður var við af-
greiðslu og var stríöur straumur
fólks í búðina. Allir viðskiptavinir
fengu gefms litla íslenska fjörusteina
úr Breiðamerkursandi til að losa
streitu úr kroppnum og tryggja góð
tengsl við náttúruna. Með fylgdi
ábending til viðskiptavina um að
snerta steininn daglega og var greini-
legt að Hollendingarnir höfðu miklu
meiri áhuga á galdrasteinum úr ís-
lenskri náttúru en tugprósenta
kynningarafslætti í hinum verslun-
unum.
Grýla á Schiphol
„Ég fékk vini mína úr Súgandafirði
til að tína" steinana. Þeir sendu mér
nokkur hundruð kíló. Fólki finnst
þetta æðislega spennandi og gaman.
Það fara allir með stein héðan svo
að steinarnir eru að verða búnir. Það
hefur alltaf verið sérstaklega míelt
með krafti úr svona steini fyrir fólk
sem hættir aö reykja og til að losa
streitu," sagði Gerður þegar hún
fékk tóm til að slíta sig frá afgreiðsl-
unni.
Á Schiphol Plaza er von á kunnum
gestum frá Fróni um næstu jól en
þá breytist verslunarsvæðið í Huldu-
heima, fyrir tilstilli Gerðar og fjöl-
skyldu, og Grýla og allt hennar lið
sjá um jólastemninguna.
Nýja verslunarsvæðið á Schiphol-
flugvelli er með lengsta afgreiðslu-
tímann í Hollandi, frá 7 til 22 alla
daga ársins. Áætlað er að 16 milljón-
ir gesta versh þar fyrsta árið.
-GHS
ÞVOTTAKUSTAR
Tveir í setti m/Halogen-perum
VINNUUÓS
HLEÐSLUTÆKI
HLIÐARSPEGLAR
F/TENGIVAGNA
SÆTAAKLÆÐI
BARNAREIÐHJÓL
Kr. 2.600,- settið. Á allan bílinn
Tweed eða 100% bómull
Hitamælir,
klukka, áttaviti
MÆLASETT
SP0ILER M/ LJOSI
0FLUG RYKSUGA
. þétta er aðeins
brot af úrvalinu!
SÍÐUMÚLA 34
(Fellsmúlamegin)
CÖMfflESStj
Fl i JllJ
■ i'(li iíi
i! ii i i
1
fi \ \ \
OPIÐ: MÁNUD. - FÖSTUD. 9-18 - LAUGARDAG 10-14