Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1995, Page 21
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1995 '
21
DV Sviðsljós
Ringó Starr og Barbara Bachmæta
til fundarinns. Eric Clapton ræddi við
vinkonu sína á meðan hann beið
eftir að fundurinn byrjaði.
Frægir á
AA-fundum
Þaö eru varla margir rokktónleikar
sem státa af jafnstórum nöfnum og
litla gráa kirkjan í London getur gert.
í kirkjunni fara fram AA-fundir og
þar mæta stjörnurnar.
Ringó Starr hefur átt við áfengis-
vandamál að stríða og ákvað að
leggja alkóhólið á hilluna eftir að
hann hafði ráðist illilega á eiginkonu
sína, Barböru Bach, í einu fylliríinu.
Núna fer Ringó á AA-fundi og Bar-
bara styður hann með því að mæta
með honum.
Á þessum sama fundi mátti einnig
sjá Eric Clapton sem hætti að drekka
fyrir nokkrum árum og hefur gefið
margar góðar gjafir í þágu þeirra fé-
laga sem aðstoða fólk við aö hætta
að drekka.
Þá sást til Michaels Barrymore sem
kom akandi með einkabílstjóra á Li-
mósínu. Hann er nýr meðlimur á
fundum þeirra sem vilja breyta lífi
sínu til betri vegar. Ekki sakar að
heimsfræg nöfn eru þar á meðal.
Bruce Willis og Demi Moore.
Skiptir á böm-
unum og fer út
með ruslið
„Okkar hjónaband er alveg eins og
hjónabönd hjá öðru fólki,“ sagði
kvikmyndaleikarinn Bruce Willis í
nýlegu viðtali um hjónaband sitt og
Demi Moore. „Þetta er upp og niður.
Þetta er lítill garður sem þarf að
rækta allan tímann."
Willis og Moore hafa flutt frá Los
Angeles til Idaho til að geta lifað eðli-
legu fjölskyldulífi. Willis kveðst
skipta á börnunum, hirða upp eftir
hundinn, fara út með ruslið og þvo
þvottinn. „Fyrir nokkrum árum var
ég úti á lífinu á kvöldin. Núna felst
kvöldskemmtunin í því að leika öll
hlutverkin í Galdrakarlinum frá Oz
fyrir börnin mín.“
_ SYNINGARTJOLD
BÖRNIN FA BLÖÐRUR ÁTJALDSTÆÐI
illtafrJður
Veiðivörur
5 FYRSTU SEM VERSLA
FYRIR 10.000 kr. EÐA MEIRA
FÁ SVEFNPOKA
I KAUPBÆTI Á
e#t§ tilí m
ÞAR SEM FERÐALAGIÐ BYRJARt
SIGLAGERÐIN
Laugardag kl. 10-16
Sunnudag kl. 13-16
Eyjaslóð 7 Reykjavík s. 51 I -2200
ALURFA
GRILLPYLSUR
OGGOS
Daiwa
OPNUM KL. 10 A LAUGARDAG
i