Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1995, Qupperneq 25
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1995
25
Sýning á myndum Kristins B. Eyjólfssonar ljósmyndara sett upp í Bogasal:
Þjóðminj asafnið
býður upp á gestaþraut
- leitað hjálpar hjá gestum við að bera kennsl á „aldamótafyrirsætur" ljósmyndarans
A fimmtudag var opnuö í Bogasal
Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu
sérstæð sýning á gömlum ljós-
myndum eftir Kristin B. Eyjólfsson
sem nýlega komu í leitirnar. Nær
allar myndirnar eru mannamyndir
eða myndir af einstaklingum sem
voru uppi skömmu eftir aldamót
en Kristinn rak hér ljósmyndastofu
frá 1904 til 1910.
Afar og ömmur
á myndunum
„Þetta er eins konar gestaþraut.
Þetta var nær allt óþekkt þegar
þetta kom hingað inn. Fólk þekkir
þjóðþekkta einstaklinga á mynd-
unum, eins og Einar Benediktsson
og karla eins og hann, en þarna eru
líka myndir af mörgum einstakl-
ingar sem ekki voru þekktir.
Ástæðan fyrir því að verið er að
sýna þetta er að við vonum að fólk
komi og beri kennsl á þá sem eru
á myndunum. Þetta er kannski
ekki nálægt okkur í tíma en ekki
fjarlægara en svo að ég þekkti
ömmu mína á einni myndanna, svo
ég nefni dæmi, og önnur kona sem
vinnur hérna þekkti afa sinn,“ seg-
ir Inga Lára Baldvinsdóttir, deild-
arstjóri ljósmyndasafns Þjóðminja-
safnsins, um sýninguna.
Myndirnar eru gerðar eftir gler-
plötum eða ljósmyndaplötum sem
fundust í risi húss sem stendur við
Laugaveg 46.
„Það kom nú kannski engum á
óvart að þarna skyldu finnast ljós-
myndaplötur því húsið var byggt
undir ljósmyndastofurekstur. Hitt
er annað að það kom manni
kannski á óvart að þær skyldu vera
úr þessari átt. Haraldur Blöndal,
afi ráðherrans, var þar ljósmynd-
ari um hríð, frá 1905 til 1910, Karl
Þjóðminjasafnið býður gestum og gangandi upp á eins konar gesta-
þraut þessa dagana. Til sýnis eru myndir úr Ijósmyndasafni Kristins
B. Eyjólfssonar sem starfaði i Reykjavík skömmu eftir aldamót við Ijós-
myndun. Myndirnar komu nýlega í leitirnar en um er að ræða rumlega
800 Ijósmyndaplötur
Myndir Kristinn B. Eyjólfsson, Þjóðminjasafn íslands
Ólafsson var þar ljósmyndari eftir
það, frá 1910 til 1918. Þriöji maöur-
inn, Jón Dalmann, var þar frá 1918
fram undir 1940. Við héldum fyrst
að þetta væri frá einhverjum þess-
ara manna en þegar við fórum að
taka eftir einhverjum af þessum
plötum, sem eru um 800 talsins,
kom í ljós við samanburð að þetta
reyndist vera ljósmyndasafn af
stofu sem Kristinn B. Eyjólfsson
eða Bjarni Kristinn Eyjólfsson,
hann skrifaði nú ýmist, rak í
Reykjavík frá 1904 til 1910 undir
heitinu Atelier moderne og þótti
ein íinasta ljósmyndastofa landsins
á sinni tíð. Þannig var maður fyr-
irlöngu búinn að afskrifa að
þetta væri til,“ segir Inga Lára.
Milljón myndir
í safninu
Hún segir að myndir eftir Kristin
hafi verið til fyrir þennan fund, ef
svo má að orði komast. Þessi fund-
ur gefi þó mun heildstæðari mynd
af starfi hans. Nær allar myndirnar
eru portrett eða mannamyndir en
þó er eitthvaö af þeim plötum sem
nú fundust af byggingum. Þetta sé
ekki óeðlilegt þegar haft sé í huga
að ljósmyndarar lifðu á því á þess-
um tíma að mynda fólk.
í ljósmyndasafni Þjóðminjasafns-
ins eru 700 þúsund til milljón ljós-
myndir, ljósmyndaplötur eöa film-
ur. Þar er að finna flest stærstu
atvinnumannasöfnin og segir Inga
Lára að það sem sé kannski áhuga-
verðast fyrir safnið í dag sé að fá
áhugamannasöfn sem tengist frum-
bemsku áhugaljósmyndunarinnar.
Stærstur hluti safnsins er skráður
en nú er unnið að tölvuskráningu í
hjáverkum, eins og Inga Lára oröar
þaö, en hún er eini starfsmaður ljós-
myndadefidarinnar.
Sýningin stendur yfir daglega,
nema mánudaga, frá kl. 11 til 17.
Henni lýkur 25. þessa mánaöar.
-PP
BLACK&
DECKER
Sláttu vélin
Rafmagns- garðsláttuvél
með grassafnara.
Laus við mengun og hávaða.
Þrjár stærðir.
Verð frá kr. 23.960
SINDRA
»■■■ buðin
SÖLUSTAÐIR UM LAND ALLT BORGARTÚNI31 ■ SÍMI 562 7222
RAL
QMI rallycross keppnin verður haldin sunnudaginn 11. júní, kl. 14.00
á Rallycross-brautinni við Krýsuvíkurveg (við Hafnarfjörð).
Aðgangseyrír 500 - kr. Frítt fyrir 12 ára og yngri.
Rallycross æfing og sýning á laugardaginn 10. júní, kl. 16.00 á Bílanaustplaninu
við Borgartún 26.