Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1995, Qupperneq 33
LAUGARDAGUR 10. JÚNl 1995
41 '
Trimm
Reykjavíkurmaraþon 20. ágúst:
Götunum lokað
í fyrsta sinn
„Þetta hefur tekist meö góöfúslegri
samvinnu við lögregluna í Reykjavík
og sérstaklega hefur Sævar Gunn-
arsson veriö okkur innan handar í
þessu máli,“ sagöi Ágúst Þorsteins-
son, framkvæmdastjóri Reykjavík-
umaraþons, í samtali við trimmsíð-
una.
Reykjavíkurmaraþon fer fram í 12.
sinn 20. ágúst nk. og í fyrsta sinn
verður hlaupaleiðinni að mestu lok-
að fyrir bílaumferð líkt og tíðkast í
götuhlaupum erlendis. Vegna þess
hvernig hlaupaleiðin liggur getur
lokunin þó ekki orðið 100%. Þannig
verður t.d. ekki hægt að loka alveg
hringnum á Seltjarnarnesi en mestu
munar að frá gatnamótunum við
JL-húsiö verður leiðinni lokað um
Eiðisgranda og Sæbraut alla' leið
austur að Skeiðarvogi.
„Að auki munum við reyna að
bægja umferð frá leiðinni með áróðri
og auglýsingum og hvetja fólk til
þess að fara út úr bænum fyrir
klukkan 11 þennan dag ef það ætlar
í burtu. Við höfum undanfarin ár
fengið mikið af kvörtunum, sérstak-
lega frá erlendum hlaupurum sem
hefur blöskrað hraðakstur á Sæ-
brautinni.
Ný leið í
skemmtiskokki
Fyrir utan þessi tíðindi, sem flest-
um munu þykja gleðitíðindi, fer
Reykjavíkurmaraþon fram að mestu
leyti samkvæmt venju. Þó er uppi
það nýmæli að hlaupaleiðinni í
skemmtiskokkinu hefur verið breytt
og nú fara þeir sem taka þátt í því
aðeins að litlu leyti sömu leið og aðr-
ir hlauparar.
„Þetta er gert vegna þess að við
höfum verið í vandræðum með að
samræma skemmtiskokkið, þar sem
ekki er tímataka, við 10 kílómetra
hlaupið þar sem tekinn er tími. Kepp-
endur í báðum vegalengdum hafa
verið að koma í mark á sama tíma
og það hefur myndast örtröð," sagði
Ágúst.
Þessu verður breytt þannig að
keppendur í skemmtiskokki hlaupa
eftir Fríkirkjuvegi og Sóleyjargötu
að Hringbraut, þaðan um Laufásveg
og Þingholtsstræti og niður Banka-
stræti og koma í mark á eystri ak-
rein Lækjargötunnar en vestari
helmingur götunnar verður notaður
fyrir aðra hlaupara.
„Þessi vegalengd en um það bil 3
kílómetrar en við höfum ekki mælt
það upp á metra. Þetta er fyrst og
fremst skemmtiskokk."
Láttu skrá þig
í tíma, annars...
Það nýmæli verður tekið upp við
skráningu í Reykjavíkurmaraþon að
þessu sinni að beitt verður nokkurs
konar viðurlögum til þess að fá fólk
til að skrá sig tímanlega. Skráningar-
gjald í hlaupið verður 1.500 krónur í
heilt maraþon, 1.300 krónur í hálft
maraþon, 1.100 í 10 kílómetra hlaup
og 900 krónur í skemmtiskokk. 700
krónur greiða allir 12 ára og yngri
en ekki er mælt með því að svo ung-
ir þátttakendur hlaupi meira en
skemmtiskokk nema vera í sérlega
góðri æfingu.
Þeir sem skrá sig fyrir 16. ágúst
greiða ofangreind skráningargjöld
en eftir það verða þau hækkuð um
100% og þá kostar t.d. 2.200 í 10 kíló-
metra hlaup. „Þetta er fyrst og fremst
gert til þess að reyna að hafa hemil
á því að fólk skrái sig allt of seint.
Undanfarin ár höfum við verið að fá
um 1.500 skráningar á föstudegi og
laugardegi og þetta skapar gífurlega
vinnu og mikið álag á starfsfólk við
að útbúa keppnisgögn sem síðan eiga
að liggja fyrir á laugardag."
Umsjón:
Páll Ásgeir Ásgeirsson
Eins og undanfarin ár verða
keppnisgögn afhent í Ráðhúsi
Reykjavíkur laugardaginn 19. ágúst
og seinnihluta laugardagsins verður
hin hefðbundna pastaveisla sem að
þessu sinni verður í Ráðhúsinu en
ekki í tjaldi eins og undanfarin ár.
Að vanda verða veitt sérstök verð-
laun fyrir sérstæöasta búninginn í
skemmtiskokki, 10 kílómetra og
hálfu maraþoni. Nýmæli er að veita
slík verðlaun í hálfu maraþoni en það
er gert vegna fjölda áskorana. Um
þessi verðlaun hefur jafnan verið
hörð keppni. Maraþonbolurinn, sem
er sérhannaöur, verður að vanda
glæsilegur en það nýmæli ep viðhaft
að nú verður hægt að kaupa mara-
þonbolinn en það er Reykjavíkurm-
araþon sem stendur að því hlaupi að
þessu sinni. Miðnæturhlaupið verð-
ur 23. júní nk.
Sprettharðir gestir
Ágúst sagði að búist væri við harðri
keppni í Reykjavíkurmaraþoni en
framkvæmdastjórn hlaupsins fær
frægan götuhlaupara, Júlíus Korir
frá Kenía, til þess að koma hingað
Reykjavíkurmaraþon 20. ágúst:
Teygja vel eftir æfingar
-10 km, hálfmaraþon og maraþon
Það er nauðsynlegt að teygja vel
eftir sérhverja æfingu. Gott er að
hafa teygjurnar fáar en fara vel í
gegnum þær. Grundvallarreglan er
sú að byija neðst á kálfavöðvunum
og færa sig síðan upp líkamann og
3. vika. 11/6-17/6
enda á öxlum og hálsvöðvum. Hverja
teygju ætti að halda í 20-40 sek. Þeg-
ar við teygjum ættum við að fara
rólega í teygjuna og halda þar sem
spennan kemur. Við ættum að forð-
ast allar rykkingar. Með því að teygja
vel viðhöldum við liðleika og minnk-
um líkur á harðsperrum daginn eft-
ir. Við skulum því ekki vanrækja
teygjurnar.
Jakob Bragi Hannesson.
10 km 21 km 42 km
Sunnudagur 8 km ról. 14 km ról. 4 km þeir sem fóru í Akraneshlaupið í gær annars 26 km
Mánudagur Hvíld Hvíld Hvíld
Þriðjudagur 6 km (Hraðaleikur). Fyrst 2 km ról. og síðan 2 km með stuttum sprettum og joggi á milli. Síðan 2 km ról. í lokin. 8 km (Hraðaleikur). Fyrst 2 km ról. og síðan 4 km með stuttum sprettum og joggi á milli. Síðan 2 km ról. í lokin. 8 km (Hraðaleikur). Fyrst 2 km ról. og síðan 4 km með stuttum sprettum og joggi á milli. Síðan 2 km í lokin.
Miðvikudagur 5 km 9 km ról. 14 km ról.
Fimmtudagur Hvíld 6 km ról. 8 km ról.
Föstudagur 3 km jafnt Hvíld Hvíld
Laugardagur 4 km ról. 8 km jafnt 10 km jafnt
Samt.: 26 km 45 km 44-66 km
Agúst Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Reykjavikurmaraþons, boðar þær
breytingar að á hlaupdegi verði leiðinni aö mestu lokað fyrir bilaumferð.
DV-mynd GVA
til lands og taka þátt í hlaupinu.
Hann hefur verið í fremstu röð götu-
hlaupara í heiminum um skeið og
mun hlaupa hálft maraþon. Kappinn
er sprettharður í betra lagi og besti
tími hans í hálfu maraþoni er 60
mínútur svo hann mun velgja öðrum
hlaupurum undir uggum svo um
munar en þessi tími er um 7 mínút-
um betri en gildandi íslandsmet.
Árlega hafa milli 100 og 200 útlend-
ignar tekið þátt í maraþoninu. Síð-
astliðið sumar tóku um 4.300 manns
þátt í Reykjavíkurmaraþoni og fjölg-
aði um 200 á milli ára. Ágúst telur
raunhæft að búast við einhverri
íjölgun en ekki mikilli. Undanfarin
tvö ár hefur veðrið leikiö við hlaup-
arana og því ekki ósennilegt að veð-
urguðirnir hafi síðasta orðið hvað
varðar fjöldann. „Veðrið skiptir höf-
uðmáli upp á stemninguna." Rúm-
lega 200 starfsmenn verða við
Reykjavíkurmaraþon á hlaupdegi og
stór hluti þeirra verður einnig önn-
um kafmn við undirbúning á föstu-
degi og laugardegi.
í dag eru um 10 vikur til hlaups.
Er allt tilbúið? „Já, það má segja að
í stórum dráttum sé allt tilbúið. En
það kemur alltaf eitthvað upp á sem
verður leyst þegar þar að kemur,“
segir Ágúst sallarólegur, enda er
hann enginn nýgræðingur í starfi,
en hann var framkvæmdastjóri
maraþonsins 1988-89 og hefur unnið
eitthvað við hlaupið í mörg ár. En
hleypur hann sjálfur?
„Ég er ekki eins sprettharður og
fyrirrennari minn í starfi (Sigurður
P. Sigmundsson, íslandsmeistari í
maraþoni) en ég skokka svolítið og
fer oft á hverjum degi. Ég hef aldrei
tekið þátt í Reykjavíkurmaraþoni
sem keppandi og geri það áreiðan-
lega ekki í ár.“
VOLVO 850
Styrktaraðili Reykjavíkurmaraþons
er styrktaraðili
Reykjavíkurmaraþonsins
FLUGLEIDIR/**
asics
jf