Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1995, Page 37

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1995, Page 37
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1995 45 „Viö leggjum áherslu á að vera meö heilsumat fyrir alla, mikið grænmeti og fisk. Kokkurinn okkar kemur frá Portúgal, hann hefur sérhæft sig í grænmetisfæði og er að koma hingað þriðja árið i röð. Einnig erum við með æfmgar, jóga, gönguferðir, kyrrðarstundir, fyrirlestra um heils- una og tónlistarfólk heimsækir okk- ur,“ segja þau Sigrún Olsen og Þórir Barðdal sem reka heilsuhótel að Reykhólum áttunda árið í röð í sum- ar. Hótelið verður opnað á miðvikudag en þá eiga þau hjónin von á stórum hópi Þjóðveija í heimsókn en þeir hafa einmitt sóst eftir að koma að Reykhólum. Boðið er upp á sjö daga hvíldar- og hressingardvöl. Sigrún og Þórir segja að aðsóknin sé aö auk- ast með hverju árinu sem líður og íslendingar sífellt að verða sér meira meðvitandi um heilsu sína og hvað þeir láti ofan í sig. DV-mynd Brynjar Gauti Sigrún og Þórir búa í Portúgal á vetrum en á sumrin reka þau heilsuhótel á Reykhólum, utanaðkomandi áreiti og biðjum því fólk að hringja ekki í fyrirtæki sín meðan þaö hvílist hjá okkur," segir hún enn fremur. „Sleppa farsíman- um,“ bætir hann við. Skóla breytt í hótel Það kostar um fimm þúsund krón- ur sólarhringurinn á Reykhólum og er þá allt innifalið utan nuddtímar. „Ég held að fólki finnist það ekki dýrt enda fær það alla þjónustu og er tilbúið að notfæra sér hana. Það mæta alltaf allir t.d. á kyrrðarstund- irnar hjá okkur. Við fáum líka frá- bært tónlistarfólk tii okkar, t.d. Gunnar Kvaran, Guðnýju Guð- mundsdóttur, Egil Ólafsson, Signýju Sæmundsdóttur og Bergþór Pálsson, svo einhverjir séu nefndir." Sigrún og Þórir voru á leið vestur þegar helgarblaðið ræddi við þau og þegar forvitnast var um hvert væri þeirra fyrsta verk þegar þangað væri Reka heilsuhótel á Reykhólum á sumrin en búa í Portúgal á vetrum: Finnum rosalega streitu hér Alvarleg veikindi voru kveikjan Upphaf þess að þau Sigrún og Þór- ir ákváðu að setja upp heilsuhótel á Reykhólum á sínum tíma má rekja til veikinda hennar. „Fyrir tíu árum fékk ég krabbamein í eitlu og lungu og leit það ekki vel út. Ég fór í hefð- bundna læknismeðferð sem mér fannst ófullnægjandi þótt hún hefði bjargað lífi mínu. Forvitni mín vakn- aði fyrir óhefðbundnum læknisaö- ferðum og ég gerði í raun allt, t.d. breytti ég mataræði minu, fór í nála- stungumeðferð og heilun. Á þeim tíma hafði fólk enga trú á slíku og hélt áreiðanlega að ég væri eitthvað skrítin. Ég hef síðan fylgt breyttum matarvenjum og ekki síður lífsstil. Starfið á Reykhólum höfum við þó yfirleitt hugsað sem fyrirbyggjandi starf þótt margir veikir einstaklingar komi til okkar líka. Það væri mjög gott ef fólk byijaði að hugsa um heils- una og mataræðið áður en það verð- ur veikt. Flestir vita nú að matar- æðið skiptir miklu máli,“ segir Sig- rún. Þau segja að alls kyns fólk komi sér til hvíldar og hressingar að Reyk- hólum, fólk á öllum aldri og úr öllum stéttum. „Það eru átján til tuttugu manns í hverri viku og margt af því kemur á hveiju sumri. Við vitum af fólki sem ætlar að koma í sumar í sjötta skiptið. Þessa viku byggir fólk sig upp bæði líkamlega og andlega. Sumir eru í sorg, aðrir eru sjúkling- ar. Einnig er fólk sem þarfnast al- gjörrar slökunar eftir erfiðleika eða áhyggjur og bara venjulegt fólk,“ segja þau. Breyttur lífsstíll „Við erum með ákveðnar aðferöir sem við höfum prófað á okkur sjálf- um og kynnum þær. Margir vilja breyta gömlum mynstrum í lifnaðar- háttum sínum og við hjálpum fólki til þess. Það getur verið mjög gott að komast burt úr sínu venjulega um- hverfi, þótt ekki sé nema í vikutíma, til að prófa að breyta lífsstíl sínum. Allir gestir, sem koma til okkar, eru þarna í sama tilgangi og njóta þess að vera í vernduðu umhverfi á af- skekktum stað. Sigrún og Þórir eru listamenn, hún er listmálari og hann myndhöggvari. - segja hjónin Sigrún Olsen og Þórir Barðdal Á veturna dvelja þau í Portúgal og starfa þar við list sína. Þegar vorar koma þau aftur til íslands og reka þetta sérstaka sumarhótel i skólan- um á Reykhólum. „Það er ólíkt minna stress í Portúgal en hér á landi en það er líka eins og að hverfa mörg ár aftur í tímann að koma þangað. Allar vinnuaðferðir eru nokkuð fomar en þetta er að breytast. Viö höfum séð allmikla þróun frá því við komum þangaö fyrst fyrir þremur árum.“ Leitaöi að heilsuheimili Þau segjast hafa verið á ferðalagi um Vesturland þegar þau komu að Reykhólum fyrst og sáu að skólahús- ið stóð þar autt en Edduhótel er hins vegar rekiö í Bjarkarlundi. Þeim fannst staöurinn fallegur og spuröu hvort hægt væri að fá skólann leigð- an. „Þá var hugmyndin um svona heilsustað eiginlega ekki orðin að neinni alvöru í hugum okkar. En Sigrún hafði verið að leita að heilsu- heimili fyrir sig án árangurs," segir Þórir. „Jón Sigurgeirsson var með heimili í líkingu við þetta á Varma- landi þótt þar væri ekki lögð áhersla á mataræði. Síðasta sumarið hans fékk hann mig til að elda hollustu- mat og þá kynntist ég slíkri starf- semi. Það má kannski segja að Reyk- hólar séu framhald af Varmalandi," segir Sigrún. Þau segjast lengi hafa haft áhuga á heilsufæði og andlegum málefnum. Þau stunduðu jóga og voru meðvituð um að breyttur lífsstíll geri fólki gott. „Það voru þó veikindi mín sem settu mig á fullan kraft í þetta en Þórir hafði verið leitandi alllengi," segir hún. Engir fjölmiðlar Þau segjast enn vera aö leita og reyna að koma með eitthvað ferskt á hverju sumri. í sumar verður sú nýbreytni í mataræðinu að ekki ýerður blandað saman eggjahvítu- efnum og kolvetni til að létta á melt- ingunni og hreinsun líkamans. „Við ætlum einnig að auka hug- leiðsluna enda finnum við rosalega streitu hér í höfuðborginni. Manni finnst allt víbra hérna," segir Þórir. „Sumir kalla þetta afstressunar- sjónvarp, engin blöð og ekkert út- komið, svöruðu þau: „Að breyta stöð,“ segir Sigrún. „Það er ekkert varp hjá okkur. Við viljum ekkert skólahúsnæði í lúxushótel."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.