Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1995, Page 48

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1995, Page 48
56 LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1995 II 904-1700 Verö aðeins 39,90 mín. l i Fótbolti 2; Handbolti 3J Körfubolti 4| Enski boltinn 51 ítaiski boltinn 61 Þýski boltinn 7 { Önnur úrslit 8 NBA-deildin lj Vikutilboð stórmarkaöanna 21 Uppskriftir 1 { Læknavaktin 2J Apótek 3 | Gengi 1; Dagskrá Sjónvarps 2 j Dagskrá Stöðvar 2 3 Dagskrá rásar 1 41 Myndbandalisti vikunnar - topp 20 5[ Myndbandagagnrýni 6 [ ísl. listinn -topp 40 7j Tónlistargagnrýni 8 Nýjustu myndböndin 9 J Gervihnattardagskrá ani f1 1} Krár 2 | Dansstaðir 31 Leikhús 41 Leikhúsgagnrýni 5j Bíó 6 1 Kvikmyndagagnrýni nrmgsimmer 1[ Lottó 2j Víkingalottó 3| Getraunir AIKIH. Olllítt DV 904-1700 Verð aðeins 39,90 mín. Asta Kristin ásamt foreldrum sínum, Arna Hjaltasyni og Vilborgu Benediktsdóttur. Þrettán ára stúlka á Sauðárkróki: Á leið í nýrnaskipti íannaðskipti Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkróki: Þrettán ára stúlka, Ásta Kristín Árnadóttir frá Sauöárkróki, er á leið til Bandaríkjanna í annað sinn til að gangast undir nýrnaskipti. Aðgerðin fer fram á barnaspítala Bostonborg- ar. Ásta fær nú nýra frá móðurömmu sinni og nöfnu, Ástu Steinsdóttur, sem er eitt margra systkina kenndra við Hraun á Skaga. Ásta Kristín fór fyrst í nýrnaskipti í nóvember 1984 og fékk þá nýra frá föður sínum. Líkami Ástu Kristínar sýndi fyrstu höfnun viö nýranu árið 1988 og síðan hefur hún orðið fyrir ýmsum sýkingum og átt við van- heilsu að stríða, auk þess sem hún hefur ekkert vaxið á þeim tíma. Það hefur því verið tímaspursmál hve- nær hún þyrfti á nýju nýra að halda og nú er stundin komin, að mati lækna. Ásta Kristín verður í nýrnavél í hálfan mánuð og býr vélin hana und- ir að taka við nýja nýranu. Foreldrar Ástu eru Vilborg Bene- diktsdóttir og Árni Hjaltason. Ásta Kristín á þrjú systkini. Brynja, sem er fjórum árum yngri en Ásta, fékk nýtt nýra árið 1987 og hefur lifað eölilegu lífi og þroskast vel. Arna, tvíburasystir Brynju, fæddist með heilbrigð nýru og einnig Benedikt sem er yngstur í systkinahópnum. Samiön: Þjófstavt að kanna vinnu í Noregi „Það er mikill áhugi á því að fara til Noregs en við höfum ekki fengið neinar upplýsingar þó að við höfum bæði leitað til vinnumiölana og okk- ar bræðrasamtaka. Þetta er hálfgert þjófstart í þessu máli því að það ligg- ur ekkert fyrir úti í Noregi hvað þetta er mikið umfang. Menn hafa bara lýst yfir að það sé líklegt að það þurfi erlenda iðnaðarmenn og eru þá fyrst og fremst að hugsa um Svía,“ segir Þorbjöm Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Samiðnar. íslenskir iðnaðarmenn hafa sýnt mikinn áhuga á því að fara til Noregs til að vinna á flóðasvæðunum þar ef Norðmenn hafa áhuga á að fá erlend- an vinnukraft þegar flóðunum linnir. Fulltrúi Samiðnar er nú kominn til Noregs til að kanna atvinnumögu- leika og er búist við aö strax í næstu viku skýrist hvort af þessu getur orðið. „Það er auðvitað alveg opið að ís- lenskir iðnaðarmenn geti fengið þarna vinnu en fyrst þarf þessum fióðum aö linna. Við höfum beðið um upplýsingar frá Noregi. Þetta fer að skýrast upp úr miðri vikunni hvaö þarna er á ferðinni. Ef það er nægileg vinna þarna eru margir hér sem hafa áhuga á að fara. Hér er mikið erfið- ara aö fá vinnu en hefur verið,“ seg- ir Þorbjörn. -GHS Tilkynriingar Félag eldri borgara I Reykjavik og nágrenni Bridgekeppni, tvímenningur í Risinu kl. 13 á sunnudag og félagsvist kl. 14. Dansað í Risinu kl. 20. Ásar og Pétur stjórna. Margrét Thoroddsen er til viðtals á þriöjudag. Panta þarf viðtal í s. 552 8812. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn í dag kl. 14 og 16 er sögustund: „Mærin mysu kisa“ og „Tröllið undir brúnni" leiknar. Á sunnudag kl. 14 verður sjó- stakkahlaup - flekahlaup, sögustund og söngur í víkingaskipinu. Kl. 16 „bryggju- ball" á bryggjunni, „Geirfuglarnir" spila fyrir dansi. Ferðalög Ferðafélag íslands Laugardaginn 10. júní er farin ferð á söguslóðir Njálu undir leiðsögn. Brottfór er kl. 09 um morguninn. M.a. er farið aö Hlíðarenda, Keldum, Bergþórshvoli, Hofi, Knafahólum og Þingskálaþingi. í 7. og næstsíðasta áfanga náttúruminja- göngu Ferðafélagsins verður gengið á Vatnsskarð, frá Hrútagjá yfir að Djúpa- vatni. Farið er á sunnudag kl. 13 (Ath. engin ferð kl. 10.30). Brottför frá BSÍ, austanmegin, og Mörkinni 6. Tapað fundið Snúlli er grár fressköttm- sem tapaðist frá Spóahólum 2. júní sl. Hann er eyrna- merktur R-4161. Ef einhver hefur séð hann eða veit hvar hann er niðurkominn er hann vinsamlegast beðinn að hringja í s. 5873054. t Tjaldvagnaeigendur Tökum aö okkur sölu tjaldvagna og fellihýsa. Góður sýningarsalur FÉLAG LOGGILTRA BlfREIÐASALA Skeifunni 6, sími 553-5555, fax 588-2086 muism.mi B0RG Sími: 588-2080 Leikhús dv ÞJÓDLEIKHÚSID Sími 551 1200 Stóra sviðið Söngleikurinn WEST SIDE STORY ettir Jerome Robbins og Arthur Laurents við tónlist Leonards Bern- steins kl. 20.00. í kvöld, næstsiðasta sýning, sud. 18/6, síð- asta sýning. Aðeins þessar 2 sýningar eftir. „Athyglisverðasta áhugaleiksýning leikársins" Frey vangsleikhúsió sýnir: KVENNASKÓLAÆVINTÝRIÐ eftir Böðvar Guðmundsson Á morgun, uppsell, mád. 12/6, uppsell. Smiðaverkstæðið TAKTU LAGIÐ, LÓA! eftir Jim Cartwright kl. 20.00. í kvöld, nokkur sæti laus, fid. 15/5, (öd. 16/5, föd. 23/6, nokkur sæti laus, Id. 24/6, sud. 25/6. Miðasala Þjóðieikhússins er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13 til 18 og fram aö sýningu sýningardaga. Einnig símaþjónusta frá kl. 10.00 virka daga. Græna línan 99 61 60. Bréfsimi 61 12 00. Sími 1 12 00 - Greiðslukortaþjónusta. IssBEia’ÍBJJUSKl * Leikfélag Akureyrar DJÖFLAEYJAN Aukasýning i kvöld kl. 20.30. Allra siðasta sýning! • • • • J.V.J. Dagsljós „í KAUPSTAÐ VERÐUR FARIÐ OG KÝRNAR LEYSTAR ÚT...“ Skemmtun i tali og tónum sunnudag 11/6 kl. 17.00. Aðgangur okeypis! Miðasalan i Samkomuhúsinu er opin alla virka daga nema mánudaga kl. 14-18og sýningardagafram aösýn- ingu. Sími 462-1400. Simsvari tekur við miðapöntunum utan opnunartima. Greiðslukortaþjónusta. Fyrirlestrar Norrænir brunnar Sunnudaginn 11. júní kl. 17 heldur þýski listfræðingurinn Heinz-Werner Lawo fyrirlestur í fundarsal Norræna hússins. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku og nefnist „The Fountain of Fountains. Fyr- irlesturinn er sá fyrsti í röð fyrirlestra sem haldnir verða í sambandi viö sýning- una Norrænir brunnar sem stendur til 9. júlí. Tónleikar Fyrstu sumartónleikar Kósý Hljómsveitin Kósý, sem getið hefur sér gott orð fyrir frumlega ogfjölbreytta tónl- ist, mun efna til fyrstu sumartónleika sinna í Kafíileikhúsinu í Hlaðvarpanum laugardaginn 10. júní kl. 21.00. Hljómsveitin hefur leikið víða í vetur en nú hafa þeir félagar Markús, Magnús, Ragnar og Ulfur æft glænýja lagadagskrá sem þeir munu frumflytja á laugardag- inn. Eins og ávallt þegar Kósý kemur fram verða óvæntar uppákomur og að þessu sinni er það sumarið, í allri sinni dýrð, sem myndar rammann um tónleik- ana. Á milli laga þregða piltamir á leik, sýna galdrabrögð, fara með gamanmál, rabba við áhorfendur og fleira. Andlát Ósk Sigmundsdóttir, Höfðagrund 6, Akranesi, lést í sjúkrahúsi Akraness 8. júní. Leopoldína Bjarnadóttir lést 8. júní. Gíslína Vilhjálmsdóttir, Hringbraut 90, Reykjavík, lést á heimili sínu 7. júní. Helga Dýrleif Jónsdóttir lést 7. júní í Héraðshælinu Blönduósi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.