Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1995, Síða 51
LAUGARDAGUR 10. JÚNt' 1995
59
Afmæli
Helgi Hallgrímsson
Helgi Hallgrímsson, Lagarási 2, Eg-
ilsstööum, veröur sextugur á morg-
un.
Starfsferill
Helgi er fæddur í Holti í Fella-
hreppi í N-Múlasýslu og ólst upp á
Arnheiðarstöðum og Droplaugar-
stööum í Fljótsdal. Hann er stúdent
frá MA1955, stundaði nám í líf-
fræöi, með grasafræði sem aöal-
grein, við háskólann í Göttingen í
Þýskalandi 1955-57,1958-59 og
1960-61 og við háskólann í Hamborg
1963. Helgi lauk fyrrihlutaprófi í
Hamborg.
Helgi var kennari við Alþýðuskól-
ann á Eiðum 1957-58 og Mennta-
skólann á Akureyri 1959-60,1961-62
og 1963-69, safnvörður við Náttúru-
gripasafnið á Akureyri frá 1963 og
forstöðumaður þess 1963-73 og
1977-87 og forstöðumaður Rann-
sóknarstöðvarinnar Kötlu á Víkur-
bakka á Árskógsströnd 1971-76.
Helgi var formaður SUNN, Sam-
taka um náttúruvernd á Norður-
landi, frá stofnun 1969-80 og forseti
Vísindafélags Norðlendinga frá
stofnun 1971-87, að fáum árum und-
anskildum.
Helgi; sem hefur skrifaö fjölda
greina og ritgerða, fékk viðurkenn-
ingu Hagþenkis, félags höfunda
fræðirita og kennslugagna, árið 1987
fyrir fræðiritgerðir.
Helgi hefur verið búsettur á Egils-
stöðum frá 1987.
Fjölskylda
Helgi kvæntist 23.4.1958 Krist-
björgu Gestsdóttur, f. 19.10.1932,
húsfreyju. Foreldrar hennar: Gest-
ur Kristjánsson, f. 10.11.1906, d. 9.8.
1990, bóndi í Múla í Aðaldal og síðar
á Húsavík, og kona hans, Guðný
Árnadóttir, f. 6.3.1904, d. 3.11.1933,
húsfreyja.
Börn Helga og Kristbjargar: Hall-
grímur, f. 12.8.1958, BA í ensku,
búsettur í Reykjavík; Gestur, f. 14.5.
1960, verkstjóri á Fosshóli í Ljósa-
vatnshreppi, maki Hólmfríður Ei-
ríksdóttir, sjúkraliði; Heiðveig Agn-
es, f. 23.10.1970, starfsstúlka; Björk
Þorgrímsdóttir (stjúpdóttir Helga),
f. 29.5.1953, sjúkraliði á Akureyri.
Systkin Helga: Ólafur; Agnar;
Guðrún Margrét; Guðsteinn; Berg-
Ijót.
Helgi Hallgrímsson.
Foreldrar Helga: Hallgrímur
Helgason, f. 29.8.1909, bóndi á Drop-
laugarstöðum, og Laufey Ólafsdótt-
ir, f. 31.5.1912, húsfreyja á Droplaug-
arstöðum.
Til hamingju með afmælió 11. júní
90 ára
50 ára
Þorsteinn HansHreggviðsson,
Gagnvegi, hjúkrh. Eír, Reykjavík.
80 ára
Þorlákur Ebenesersson,
Kleppsvegi 64, Reykjavík.
Sigríður Guðmundsdóttir,
Grænumörk 1, Selfossi.
Hún verður með kaffi á afmælis-
daginn að Grænumörk 5 frá kl. 15.
75 ára
Ola v Davíð Davíðsson,
Hraunbæ 102a, Reykjavík.
70 ára
Guðbjörg Hákonardóttir,
Hlíðarhjalla 68, Kópavogi.
Reynir Ólafsson,
Múlakoti 3, FJjótshlíðarhreppi.
Helgi Sigurðsson,
Hávegi 8, Siglufirði.
Héðinn Höskuldsson,
Bólstað, Bárðdælahreppi.
Vigfús Sigurðsson,
Einigrund 2, Akranesi.
Árnína Gréta Magnúsdóttir,
Digranesvegi 58, Kópavogi.
Margrét Jónsdóttir,
Lindarbraut 3, SeltjarnamesL
Gunnar G. Bergmann,
ÖðinsvöUum 21, Keflavík.
Sæbjörn Eggertsson,
Lagarási 6, Egilsstöðum.
JónínaK. Helgadóttir,
Lambastaöabraut 10, Seltjarnar-
nesi.
Margrét Oddsdóttir
deildarfúlltrúi,
Laxakvísl 10. .
Reykjavík.
Maðurhennar
erDavíðJóns-
sonprent-
smiðjueigandi.
Margréterað
heiman.
Erling Jónsson,
Suðurgötu 75, SiglufirðL
40 ára
60ára
Sólborg Marinósdóttir,
Laugarnesvegi 116, Reykjavík.
Torfi Emil Kristjánsson,
Drápuhlíð 8, Reykjavík.
Þorvarður B. Magnússon,
Jörundarholti 158, Akranesi.
Stefán Bjarnason,
Sólbergi 4, Hafnarfiröi.
Guðrún H. Hafsteinsdóttir,
Rjúpufelli 34, Reykjavík.
Þorfmnur S. Hermannsson,
Herjólfsgötu 20, Hafnarfirði.
Else KjærulffLauridsen,
Skildinganesi 25, Reykjavík.
Egill
Hallgrímsson
Egill Hallgrímsson, sóknarprestur í
Skagastrandarprestakalli í Húna-
vatnsprófastsdæmi, Hólabraut 1,
Skagaströnd, verður fertugur á
morgun.
Starfsferill
Egill er fæddur í Reykjavík en ólst
upp í Hveragerði. Hann er stúdent
frá MH1976. Egill stundaði nám í
sálarfræði við HÍ í tvo vetur og nám
í guðfræði á sama stað en hann lauk
embættisprófi í guðfræði 1991.
Egill var einn vetur kennari við
Grunnskólann á Bíldudal og í nokk-
ur ár sem gæslumaður á geödeild
Landspítalans. Hann vígðist til
prestsþjónustu í Skagastrandar-
prestakalli í Húnavatnsprófasts-
dæmi í maí 1991 og hefur veriö þar
sóknarprestur síðan.
Fjölskylda
Egill kvæntist23.9.1989 Olafiu Sig-
urjónsdóttur, f. 19.8.1956, hjúkrun-
arfræðingi. Foreldrar hennar: Sig-
urjón Guðbergsson, látinn, málara-
meistari, og Jóhanna Sveinsdóttir,
búsettíReykjavík.
Börn Egils ogólafíu: Sóley Linda,
f. 3.12.1989; Hallgrímur Davíð, f.
12.9.1993.
Bræður Egils: Jón, f. 12.1.1944,
bifreiðastjóri í Reykjavík; Páll, f.
Egill Hallgrimsson.
15.6.1958, gæslumaður í Reykjavík.
Foreldrar Egils: Hallgrímur H.
Egilsson, f. 13.7.1919, garðyrkju-
bóndi, og Sigurlaug Guðmundsdótt-
ir, f. 24.2.1919, húsmóðir. Þau eru
búsett í Hveragerði.
Ætt
Hallgrímur er sonur Egils Jóns-
sonar, b. í Reykjakotshjáleigu í Ölf-
usi, og konu hans, Svanborgar Eyj-
ólfsdóttur.
Sigurlaug er dóttir Guðmundar
Þorkelssonar, sjómanns á ísafirði,
og konu hans, Hólmfríöar Jónsdótt-
ur.
Sigurbjörg Halldórsdóttir
Sigurbjörg Halldórsdóttir verslun-
armaður, Kveldúlfsgötu 28, Borgar-
byggð, er fertug í dag.
Starfsferill
Sigurbjörg er fædd í Borgarnesi
og ólst þar upp. Hún er gagnfræð-
inguraðmennt.
Sigurbjörg hefur aðallega unniö
við gagnaskráningu og tölvur. Hún
starfaði í Verslunarbanka íslands í
Bankastræti 5 í Reykjavík 1973-80
með smáhléi, í Kaupfélagi Borgfirð-
inga um tíma, hjá SIS1981-83, Spari-
sjóði Hafnarfjarðar 1983-84, Al-
þýðubanka íslands á Laugavegi 32 í
Reykjavík 1985-86, dagheimili á
Kristnesi 1986-87, Rafveitu Hafnar-
fjarðar 1987 (sumarstarf), Skattstofu
Hafnarflaröar 1987-91, skrifstofu
Kaupfélags Borgfirðinga 1991-93 og
vinnur nú í kjörbúð Kaupfélags
Borgfirðinga.
Sigurbjörg söng með kór Lang-
holtskirkju veturna 1988 og 1990 og
hefur sungið með Kveldúlfskómum
íBorgarnesi.
Sigurbjörg bjó í Hafnarfirði í ára-
tug, 1981-91, að undanskildu einu
ári á Akureyri, 1986-87.
Fjölskylda
Sigurbjörg giftist 25.4.1981 ívari
DeCarsta Webster, f. 7.5.1955,
íþróttakennara. Þau skildu 1987.
Foreldrar hans: DeCarsta Webster
og Janet Marie Webster, búsett í
Bandaríkjunum.
BörnSigurbjargarogívars:Pálmi
ívar, f. 30.1.1981; Halldóra Janet, f.
8.8.1984. Synir ívars: Jón Kári, f.
24.2.1989; Árni, f. 23.11.1993.
Systur Sigurbjargar: Inga Björk,
var gift Markúsi Benjamínssyni,
þau skildu, eiga þrjú börn, Önnu
Dóm, Benjamín og Kristínu; Jenný
Svana, eiginmaöur hennar er Guð-
mundur Finnsson, þau eiga fjögur
börn, Halldór, Finn, Elínu og Sigur-
björn Inga; Ása Helga, eiginmaður
hennar er Ingvi Árnason, þau eiga
tvær dætur, Lilju og Fjólu.
Foreldrar Sigurbjargar: Halldór
K. Sigurbjörnsson, f. 17.12.1920, d.
7.12.1979, útibússtjóri Kaupfélags
Borgfirðinga, og Anna Pálína Jóns-
Sigurbjörg Halldórsdóttir.
dóttir, f. 14.7.1922, húsmóðir, búsett
íBorgamesi.
Ætt
Bróðir Halldórs er Jón Sigur-
bjömsson, leikari og söngvari. Hall-
dór var sonur Sigurbjörns Halldórs-
sonar og Ingunnar Kristínar Ein-
arsdóttur.
Anna Pálína er dóttir Jóns Rós-
mann og Magdalenu S vanhvítar
Pálsdóttur. Þau áttu ellefu börn.
Hermann K. Jónsson
Hermann Kristján Jónsson bókari,
Hrauntúni 13, Vestmannaeyjum, er
fimmtugurídag.
Starfsferill
Hermann er fæddur í Reykjavík
en ólst upp í Vestmannaeyjum.
Hann er gagnfræðingur frá Gagn-
fræðaskóla Vestmannaeyja.
Hermann starfaði sem verkamað-
ur að loknu námi, fyrst hjá Hrað-
frystistöð Vestmannaeyja og síðar
hjá Pósti og síma. Hann réðst til
starfa hjá Bæjarfógetaembættinu í
Vestmannaeyjum 1964 og var þar
gjaldkeri lengst af. Hermann fór til
starfa hjá Fiskimjölsverksmiðjunni
hf. í Vestmannaeyjum 1978 og
tveimur árum síðar til Samtogs hf.,
togaraútgerðar, og var þar skrif-
stofustjóri til 1991. Hann var við
bókhald hjá Fiskiðjunni hf. í eitt ár
en hefur verið aðalbókari Vinnslu-
stöðvarinnar hf. frá 1992.
Hermann er félagi í Knattspyrnu-
félaginu Tý og var í stjórn þess um
tíma. Hann starfaði í Knattspyrnu-
ráði ÍBV í áratug og var formaður
þess um skeið. Hermann er félagi í
AKOGES og sat þar eitt ár í stjórn
og var um nokkurra ára bil fréttarit-
ari Morgunblaðsins í Vestmanna-
eyjum.
Fjölskylda
Kona Hermanns er Herdís Teged-
er, f. 26.9.1940, bréfberi. Foreldrar
hennar: Heinrich Tegeder og Sigur-
ást Þóranna Guðmundsdóttir. Þau
erubæði látin.
Synir Herdísar: Sigurjón Hinrik
Adólfsson, f. 3.8.1958, bifvélavirki í
Vestmannaeyjum, maki Kristín Elfa
Elíasdóttir, þau eiga tvö börn;
Gunnar Adólfsson, f. 19.9.1961, bif-
vélavirki í Vestmannaeyjum, maki
Svava Bjarnadóttir, þau eiga þrjú
börn; Jón Steinar Adólfsson, f. 17.10.
1967. bifvélavirki í Vestmannaeyj-
um, maki Júlía Elsa Friðriksdóttir.
Systkini Hermanns: Gunnar Stef-
án, f. 20.8.1939, bæjargjaldkeri í
Vestmannaeyjum; Ágústína, f. 11.10.
1949, bankastarfsmaður í Reykja-
Hermann Kristján Jónsson.
vík.
Foreldrar Hermanns: Jón Stefáns-
son, f. 28.8.1909, d. 19.3.1991, nætur-
vörður í Vestmannaeyjaradíói, og
Elísabet Kristjánsdóttir, f. 1.12.1919,
húsmóðir, búsett í Vestmannaeyj-
um.
Hermann og Herdís taka á móti
gestum á heimili sínu frá kl. 20 á
afmælisdaginn.
Samtök
Psoriasis- og . . . ril.
exemsjúkiinga Psonasissjukungar
TRYGGINGASTOFNUN
RÍKISINS
Farin verður lækningaferð fyrir psoriasissjúklinga 20. september nk. til eyjarinnar Gran
Canaria á heilsustöðina Valle Marina. Verði önnur ferð farin verður hún auglýst síðar.
Þeir sem hafa þörf fyrir slíka ferð snúi sér til húðsjúkdómalækna og fái vottorð hjá
þeim. Sendið vottorðin, merkt nafni, heimilisfangi og síma, til Tryggingastofnunar ríkis-
ins, Laugavegi 114, 3. hæð.
Umsóknir verða að hafa borist fyrir 10. júlí 1995
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS