Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1995, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1995, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 1995 ' 3 Fréttir Skilnaðarbörnum líður verst fráskildir feður vilja sameiginlegt forræði, samkvæmt nýbirtri könnun félagsmálaráðuneytisins Páll Pétursson félagsmálaráð- herra boðaði til blaðamannafundar í félagsmálaráöuneytinu í fyrradag vegna útkomu bókarinnar Barna- fjölskyldur, Samfélag - lífsgildi - mótun. Bókin er gefín út á vegum Landsnefndar um Ár fjölskyldunn- ar 1994 og félagsmálaráðuneytisins. í bókinni eru birtar niðurstöður úr umfangsmestu könnun sem gerð hefur verið á högum foreldra og barna hér á landi. Að rannsókn- inni unnu Friðrik H. Jónsson, Nanna Sigurðardóttir, Sigurður J. Grétarsson og Sigrún JúJíusdóttir sem jafnframt ritstýrði verkinu. Fimm hópar fengu senda ítarlega spurningalista: giftir foreldrar eða í sambúö, fráskildir foreldrar, með og án forsjár bama, ekkjur og ek- klar og einhleypir foreldrar. 846 svör bárust eða frá 75% þeirra sem spurðir voru og er það með því besta sem gerist í slíkum könnunum. Einstæðir foreldrar illa settir Ein meginniðurstaðan úr rann- sókninni er sú að einstæðir foreldr- ar búa að mörgu leyti viö lakari efnahagslegar aðstæður en giftir foreldrar eða í sambúð og búa börn í þeim fjölskyldum við mun óhag- stæðari skilyrði. Fráskildu foreldr- arnir búa við erflðustu skilyröin, þá ekki síst andlega. Vinnuálag er mikið á íslenskum barnafjölskyld- um en ekki var minnst á atvinnu- leysi á fundinum. Giftir foreldrar lifa oft mjög fábrotnu lífi, skiptast á að vinna og gera ekki meira með börnum sínum í frístundum en ein- stæðir. Skilnaður er greinilega sú breyt- ing sem felur í sér mesta röskun og álag, bæði fyrir foreldra og börn. í könnuninni voru börn ekki spurð heldur foreldrar aðeins. Börn skilnaðarforeldra þóttu ekki sýna minni sorgarviðbrögð en þau börn sem misst höfðu foreldri og virðast oft fá minni stuðning við að vinna úr sorginni. - Erfiðara virðist fyrir börn að missa föður sinn út í bæ eða í næsta þorp en í gröfina, svo notuð séu orð félagsmálaráðherra. Efnahagslegt og félagslegt öryggi barna sem hafa misst foreldri sitt virðist svipað og hjá börnum giftra foreldra. Börn sem missa foreldri njóta sama stuðnings og hafa áfram sama sess og látnu foreldrarnir í fjölskyldunni höfðu, ólíkt börnum fráskibnna foreldra. Þar rofna iðu- lega tengslin við fiölskyldu þess foreldris sem ekki hefur forsjá barnsins. Erfitt hjá forsjár- lausum feðrum Sá hópur sem virðist búa við minnstan stuðning fiölskyldu og er ósáttastur viö tengslin við börn sín eru fráskildir feður án forsjár. Þeir virðast fáa vini eiga, vera þjakaðir af einmanakennd, svefntruflunum og dapurleika. Það var einnig frá þeim sem heimtur spurningalist- anna voru lakastar. Þá er. athyglis- vert að fráskildir feöur segjast í 76% tilvika vilja sameiginlegt for- ræði en þeir sem hafa forsjá, sem oftast eru mæður, óska þess ein- göngu í 20% tilvika. Forsjárlausir feður bera sig einnig illa undan háum meðlagsgreiðslum. Mest tengsl og bestan stuðning frá upp- runafiölskyldu virðast hins vegar einhleypir foreldrar með forsjá hafa. Úrbætur Félagsmálaráðherra sagði að könnunin yrði leiðbeinandi fyrir stjórnvöld og ljóst að úrbætur yrði að gera á ýmsum sviðum, t.d. að lækka meðlagsgreiðslur. Leggja þyrfti drög að heildstæðri fiöl- skyldustefnu, auka mikilvægi fiöl- skyldna og beina sjónum meira en gert hefði verið að aðstæöum barna. Engar ákvarðanir hefðu verið teknar enda væri könnunin alveg ný. JCR-185 Geislaspilari með útvarpi, 18 minni í útvarpi, 2x25 vött, þjófavörnT^^. Kr. 25.900 stgr.^' TARGA Q-3500 Geislaspilari með útvarpi 24 minni, 2x35 vött og 2x15 vött, þjófavörn. Kr. 28.900 stgr. YCR - 20 Útvarp - kassettutæki og hátalarar. Ótrúlegt tilbod, kr. 1.990 stgr. TARGA Utvarp 05A (assettutæki minni í útvarpi: Pjófavörn Kr. 11.900 stgr. TS - 930 3-way" hátalarar, 229 V í, kr. 7.900 parið stgr. YCR-118 Útvarp og kassettutæki 2x25 V magnari, 30 minni i útvarpi, hægt er að tengja geislaspilara. þjófavörn. Kr. 7.900 stgr. ifl wmm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.