Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1995, Page 19
LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 1995
19
Skák
Ivan Sokolov varð
hollenskur meistari
Jan Timman tók ekki þátt í skák-
þingi Hollands, sem lauk fyrir
skemmstu í Amsterdam, en aö hon-
um frátöldum voru þar saman komn-
ir allir sterkustu skákmenn Hollend-
inga. Mótiö hefur aldrei veriö jafnvel
skipað, meö átta stórmeistara meðal
tólf keppenda og meðalstig 2513 á
Elo-kvarða, sem telst ellefti styrk-
leikaflokkur Alþjóðaskáksambands-
ins.
Stórmeistarinn Ivan Sokolov frá
Sarajevo, sem nú er búsettur í Amst-
erdam, og stórmeistarinn ungi, Jero-
en Piket, börðust um sigurinn og
tefldu raunar úrslitaskák í síðustu
umferð. Piket varð að vinna til þess
að komast upp að hbð Sokolovs og
komst býsna nálægt markinu. So-
kolov tókst að meija jafntefli um síð-
ir og þar með varð hann-einn efstur.
Sokolov hélt rakleiðis til Amster-
dam frá stórmeistaramótinu í Malmö
í Svíþjóð, með sigurlaunin í fartesk-
inu. Sokolov vann fjórar síðustu
skákirnar í Malmö (þar á meðal Jó-
hann Hjartarson í úrslitaskák í síð-
ustu umferð) og þegar hann kom til
Amsterdam hélt hann uppteknum
hætti. Þar vann hann sex fyrstu
skákirnar og hafði þá unnið tíu skák-
ir í striklotu gegn sterkum mótherj-
um!
Lokastaðan á mótinu varð þessi:
1. Sokolov 9,5 v. af 11
2. Piket 8,5 v.
3. Reinderman 7 v.
4. van Wely 6,5 v.
5. van der Sterren 5,5 v.
6. -7. Nijboer og Brenninkmeijer 5 v.
8.-9. Cifuentes og Riemersma 4,5 v.
10. van der Wiel 4 v.
11. Sosonko 3,5 v.
12. Wiersma 2,5 v.
Dimitry Reinderman, sem er 18 ára
gamall sálfræðinemi við háskólann í
Amsterdam, kom verulega á óvart
með þriðja sætinu og krækti í sinn
fyrsta áfanga að stórmeistaratitli.
Hann mun þekktur í háskólanum
fyrir að sitja við tölvu í anddyrinu
og spinna mátnet á vefnum.
Loek van Wely tókst ekki að blanda
sér í baráttuna um efstu sætin en
Gennadi Sosonko, sem er 52 ára gamall, var aldursforseti mótsins, en ekki mátti merkja að ungu mennirnir sýndu
honum tilhlýðiiega virðingu.
hann er talinn eitt helsta efni Hol-
lendinga. Paul van der Sterren hefur
misst flugið eftir að honum skaut
óvænt upp á stjörnuhimininn og van
der Wiel og Sosonko áttu ekki sjö
dagana sæla. Sosonko, sem er 52 ára
gamall, var aldursforseti mótsins, en
ekki mátti merkja að ungu mennirn-
ir sýndu honum tilhlýðilega virð-
ingu. Eftirfarandi skák ber þess
a.m.k. ekki merki.
Hvítt: Gennadi Sosonko
Svart: Jeroen Piket
Móttekið drottningarbragð.
1. d4 d5 2. Rf3 Rf6 3. c4 dxc4 4. Da4+
Algengara er að hvítur kjósi að
sækja c-peðið með biskupi sínum,
eftir 4. e3, fremur en að hreyfa
drottninguna svo snemma tafls.
4. - Rc6 5. Rc3 e6
Annar möguleiki er 5. - Rd5!? sem
Petrosjan valdi í heimsmeistaraein-
víginu við Botvinnik 1963.
6. a3!?
Trúlega ný hugmynd Sosonkos, í
stað 6. Dxc4 sem er vel svarað ineð
6. - Rb4, eða 6. e4 Bb4, sem jafnframt
gefur svörtum góð færi.
6. - a6!? 7. Dxc4 Bd6 8. Bg5
Ef 8. e4 er 8. - e5 gott svar.
8. - h6 9. Bh4 0-0 10. Hdl
Staðan hrópar á hógværan leik á
borð við 10. e3 og skipa út liðinu
kóngsmegin.
10. - g5 11. Bg3 Hb8!? 12. e4?
Grunar ekki hvað í vændum er.
Umsjón
Jón L. Árnason
12. -b5!
Án þessa beinskeytta leiks væri
svartur ekki of sæll af stöðu sinni
en nú nær hann að hrifsa frumkvæð-
ið í sínar hendur. Ef 13. Dxc6 Bb7 og
drottningin er fonguð.
13. Dé2 b4 14. axb4 Bxb4 15. Dd3 Ba5
16. Hd2 Rb4 17. Dbl
Gæfist hvítum ráðrúm til að leika
Be2 og hróka stutt mætti hann vel
viö una. En nú grípur svartur tæki-
færið.
17. - Rbd5! 18. Dc2
Ef 18. exd5 Bxc3 og þar sem b-peðið
er leppur tapar hvítum skiptamun
til viðbótar.
18. - Hxb2! 19. Dxb2 Rxc3
Ennþá sterkara en 19. - Bxc3. Nú
er fátt um varnir.
20. Re5 Rcxe4 21. Rc6 Bxd2+ 22. Dxd2
Rxd2 23. Rxd8 Hxd8 24. Kxd2 Hxd4 +
og með þremur peðum minna í
endataflinu fann hvítur ekki knýj-
andi þörf til að fefla áfram og gafst
upp.
Bridge
EM í Portúgal:
Áttunda sætið í opnum flokki
en fimmtánda í kvennaflokki
Islenska landshðið í opnum
flokki hafnaði í áttunda sæti af 32
þjóðum eftir ágætan lokakafla.
Byrjunin var hins vegar slök og því
vantaði herslumuninn til þess að
ná í fjórða sætið sem gaf rétt til
þátttöku á heimsmeistaramótinu í
Peking í haust. Liðið fékk 523 stig,
, eða að meðaltali 16,87 í hverjum
leik.
Þetta er allgóður árangur en gall-
inn er hins vegar sá að eftir sigur
íslands á heimsmeistaramótinu í
Japan 1991 eru gerðar miklu meiri
kröfur til landsliðsins en áður fyrr.
Menn vilja sjá landslið íslands í
baráttu um heimsmeistaratitilinn.
Það eru hins vegar ekki gerðar
eins miklar kröfur um frammi-
stöðu kvennalandsliðsins sem
hafnaði í fimmtánda sæti af 22 þjóð-
um með 296,5 stig, eða að meðaltali
tæplega 13,5 stig í leik. Auðvitað
hefðum við viljað sjá þær í hærra
sæti, þeim gekk betur til að byrja
með en gáfu eftir á lokakaflanum.
Það háði þeim áreiðanlega að vera
aðeins fimm, þar eð Hjördís Ey-
þórsdóttir komst ekki í slaginn frá
Bandaríkjunum. Þær unnu engu
að síður góða sigra og ég býst við
að Englendingar hafl verið ánægðir
með þær því þær tryggðu þeim
sæti í heimsmeistaramótinu í Pek-
ing með því aö gera jafnt við Aust-
urríki í síðustu umferðinni. Hefðu
austurrísku konurnar hins vegar
fengið fjórum vinningsstigum
meira hefði þeim hlotnast fjórða
sætið.
Við skulum skoða eitt spil frá
leiknum við Austurríki:
N/N-S
* KDG108
¥ 76532
♦ AG
+ 3
♦ 75432
V D
♦ 63
+ AD1095
N
v A
s
* A96
¥ A104
♦ D82
+ 8642
♦ .
KG98
♦ K109754
+ KG7
Noröur Austur Suður Vestur
pass pass ltígull 2 spaðar
pass 2grönd pass 3þjörtu
pass 3 spaðar pass 4spaðar
dobl pass pass pass
í lokaða salnum sátu n-s Valgerður
Kristjónsdóttir og Esther Jakobs-
dóttir en a-v Fischer og Weigkricht.
Tveggja spaða sögn vesturs sýndi
8-15 HP og a.m.k. fimm spaða og
fjögur hjörtu. Tvö grönd voru
spurning og þrjú hjörtu sýndu
flmmta hjartað. Þrátt fyrir að aust-
ur gæfist upp við geimið ákvaö
vestur að reyna það og þá var Val-
gerði nóg boðið. Hún doblaði og
spilaöi út trompi.
Vestur tók slaginn heima, spilaöi
hjarta á ás og meira hjarta. Gallinn
við það var að Valgerður gat kastað
tígli í seinna hjartað. Esther skipti
nú í lauf og stytti sagnhafa sem
hélt áfram með hjartað. Valgerður
kastaði aftur tígli og þar með fékk
sagnhafi engan tígulslag. Vestur
fékk því sjö trompslagi og hjartaás.
Það voru 300 til Islands.
í opna salnum sátu n-s Lindinger
og Erhart en a-v Ljósbrá Baldurs-
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
dóttir og Anna Ivarsdóttir. Nú
gengu sagnir á þessa leið:
Norður Austur Suöur Vestur
pass pass lhjarta lspaði
pass 2spaðar 3tlglar 3spaðar
dobl pass pass pass
Lindinger trompaði líka út en Anna
drap í blindum og svínaði strax tíg-
ulgosa. Síðan tók hún ásinn og
hjartaás og meira hjarta. Erhart
drap og spilaði laufi sem Lindinger
drap og trompaði aftur út. En sagn-
hafi spilaði bara meira hjarta og
vörnin var máttlaus. Það voru níu
slagir og 530 í viðbót. ísland græddi
því 13 impa.