Þjóðviljinn - 11.09.1982, Blaðsíða 15
Helgin 11.-12. september 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
Gerður Gunnarsdóttir (t.v.) sem annast umsjón söluskrifstofunnar af-
greiðir viðskiptavin.
Flugleiðir:
Nýtt útibú í
Flugleiðir hafa opnað söluskrif-
stofu að Álfabakka 10 í Breiðholti.
Skrifstofan er til húsa í hinu nýja
útibúi Landsbankans í Mjóddinni.
Söluskrifstofan veitir margs kon-
ar ferðaþjónustu og það sparar við-
skiptavinum tíma og fyrirhöfn að
geta keypt erlendan gjaldeyri á
sama stað og farseðlana. Þessi nýja
söluskrifstofa Flugleiða er ekki síst
til hagsbóta fyrir íbúa Breiðholts-
hverfa og Kópavogs. Opnun henn-
Breiðholti
ar er þáttur í viðleitni Flugleiða til
að bæta stöðugt þjónustuna.
Fyrir skömmu var söluskrifstof-
an að Hótel Esju færð til á jarðhæð
hótelsins og er í stóru og rúmgóðu
húsnæði. 1 vor var lokið um-
fangsmiklum endurbótum á sölu-
skrifstofu Flugleiða í Lækjargötu.
Söluskrifstofan í Breiðholti er
opin kl. 9:15 - 16:00 virka daga og
auk þess er einnig opið milli klukk-
an 17:00 og 18:00 á fimmtudögum.
Fyrirlestur í Norræna húsinu:
Astir kvenna í norrænum
fornbókmenntum
Norski rithöfundurinn Vera
Henriksen heidur fyrirlestur og
les úr óútkominni bók sinni í
Norræna húsinu n.k. mánu-
dagskvöld. Fjallar fyrirlestur-
inn um ástir kvenna í norræn-
um fornbókmenntum, en Vera
hefur ritað fjölda skáldsagna
sem byggðar eru á fornsögum
og persónum þeirra.
Hlutverk kvenna, bæði í fortíð
og nútíð, er Veru mjög hugleikið
og í bókum hennar speglast umræð
an um hlutverk kynjanna mjög
víða. Síðasta ár gaf hún út fyrsta
bindið „Sagaens kvinner. Om
stolthet og trelldom, kjærleghet og
hevn“, og tileinkaði hún bókina
Vigdísi Finnbogadóttur, forseta ís-
lands.
Fyrirlesturinn er öllum opinn og
hefst kl. 20.30.
R0K0K0
Eigum ennþá ROKOKO
húsgögn í úrvali á mjög
hagstæðu verði
Ath
LEÐliR
HÚSGÖGN
í nýju línunni
- gott verð
- örfáum sett-
um óráðstafað.
Sýnum um helgina
nýjar gerðir
af leðursófasettum
• •
TM. HUSGOGN
Verslanir að:
Siðumúla 4, simi 31900 Siðumúla 30, simi 86822
Ingólfur Margeirsson
Rithöf-
unda-
kynning
íMos-
fellssveit
Mánudagskvöld 13. september
kl. 20.30 gangast Lcikfélag Mos-
fellssveitar og Héraðsbókasafn
Kjósarsýslu fyrir rithöfundarkynn-
ingu í Héraðsbókasafninu (Gagn-
fræðaskólanum, Mosfellssveit). Að
þessu sinni verður Ingólfur Marg-
eirsson, rithöfundur kynntur.
Lesið verður úr nýrri bók hans,
Erlend andlit, sem kemur út hjá
bókaútgáfunni Iðunni í næsta mán-
uði, og enn fremur mun Ingólfur
kynna sjálfan sig og verk sín.
STÓRSPARNAÐUR
I S0GUFERÐ
TIL AMSTERDAM
Flug og gisting
4 dagar verð frá
kr. 4.900.-
5 dagar verð frá
kr. 5.300.-
1 vika verð frá
kr. 6000.-
Innifalið: flug og gisting
Allar nánari upplýsingar og verð a
skrifstofu okkar.
Feröaskrifstofan Laugavegi 66
101 Reykjavik, Simi: 28633