Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1995, Síða 4
4
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1995
Skoðanakönnun DV um fylgi ríkisstjórnarinnar:
Ríkisstjórnin eykur
fylgið á nýjan leik
- innan við þriðjungur kjósenda tekur afstöðu gegn stjórninni
Fylgi ríkisstjórnarinnar
805fc——•— -----------'■
Fylgi ríkisstjórnarinnar
Niöurstööur skoöanakönn-
unarinnar uröu þessar:
Svara ekki
Oákv.
Ef aðeins eru teknir þeir sem tóku afstööu
verða niðurstöðumar þessar:
Fylgjandi
Andvígtr
Andvíglr
Fylgjandi
59,3%
Fylgi ríkisstjórnar Davíðs Odds-
sonar hefur aukist nokkuð á und-
anfomum vikum eftir samfelldan
mótbyr í haust. Innan við þriðjung-
ur kjósenda tekur núna afstöðu
gegn ríkisstjóminni. Þetta kemur
fram I skoðanakönnun sem DV
gerði í vikunni á fylgi kjósenda við
ríkisstjómina.
Úrtakið í skoðanakönnun DV var
1.200 manns sem er helmingi stærra
úrtak en DV styðst venjulega við.
Jafnt var skipt á milli kynja og eins
á miili landsbyggðar og höfuðborg-
arsvæðisins. Spurt var: „Ertu fylgj-
andi eða andvígur rikisstjóminni?"
Skekkjumörk í könnun sem þessari
em tvö til þrjú prósentustig.
Sé tekið mið af svörum allra í
könnuninni sögðust 46,6 prósent
styðja ríkisstjómina en andvig
henni vom 31,9 prósent. Óákveðnir
vom 17,6 prósent og 3,9 prósent neit-
uðu að gefa upp afstöðu sína sem er
nokkra hærra hlutfall en í fyrri
könnunum DV á kjörtímabilinu.
Ef einungis er tekið mið af þeim
sem afstöðu tóku í könnuninni sögð-
ust 59,3 prósent vera fylgjandi ríkis-
70 Fyfgjándi
60 -----—^—^5
40 -----
30 —---------Andvíglr
20 ----——--------------
io------—:--------------
° U/5 '95 30/11 '95
..
stjóminni en 40,7 prósent sögðust
andvíg.
Miðað við síðustu könnun DV á
fylgi ríkisstjómarinnar, sem fram
fór í september síðastliðnum, hefur
fylgi stjómarinnar aukist um 3,4
prósentustig miðað við allt úrtakið.
Andstæðingum stjómarinnar hefúr
að sama skapi fækkað um 7,4 pró-
sentustig. Ef hins vegar er tekið mið
af fyrstu könnun DV eftir kosningar
hefúr stuðningsmönnum stjómar-
innar fækkað um 18,1 prósentustig
en andstæðingunum fjölgað um 12,6
prósentustig.
Ef einungis er tekið mið af þeim
sem afstöðu taka í könnunum DV
hefúr fylgi rikisstjómarinnar aukist
um 7,0 prósentustig frá könnun DV
í september en minnkað um 17,7
prósentustig frá því í maí.
Þótt fylgi ríkisstjómarinnar um
þessar mundir sé mun minna en
fyrst eftir kosningamar síðastliðið
vor þá nýtur hún engu að síður
meiri stuðnings kjósenda en síðasta
rikisstjóm Davíös Oddssonar í upp-
hafi síns ferils. Sú ríkisstjóm Sjálf-
stæðisflokks og Alþýðuflokks mæld-
ist með 43,8 prósenta fylgi rétt eftir
myndun hennar en tveimur mánuð-
um síðar höfðu vinsældir hennar
hrapað um 10 prósentustig. Óvin-
sælust varð sú ríkisstjóm i janúar
1993 þegar eimmgis 22,3 prósent að-
spurðra kváðust styðja hana. -kaa
Sumarhúsið, veröndin, göngubrúin, bað- og geymsluhúsin eru um 300 fermetrar að flatarmáli. DV-mynd GVA
Mál ákæruvaldsins gegn sumarbústaðareigendum í landi Þinpralla:
Dæmt um hvort rífa eigi
sumarbústaðarstórhýsið
Fulltrúi lögreglustjórans á Sel-
fossi krafðist þess í réttarhaldi á
fimmtudag að sumarbústaðarbygg-
ing og verönd upp á samtals 300 fer-
metra verði fjarlægð af landi Kára-
staða í Þingvallasveit. Héraðsdóm-
ari á Suðurlandi mun á næstu
tveimur vikum fella dóm um það
hvort stórhýsin, sem era 128 fer-
metra sumarbústaðabygging, 170
fermetra verönd, 82 fermetra göngu-
brú og 18 fermetra bað- og geymslu-
hús, verði numin á brott.
Eigendumir hafa verið ákærðir
fyrir brot gegn hyggingalögum og
lögum um friðun Þingvalla. Brot
gegn þjóðgarðslögum varða sektum,
varðhaldi eða fangelsi en sé ekki
farið að hyggingalögum er hægt aö
krefjast brottnáms mannvirkja.
Heimir Steinsson, fyrrverandi
þjóðgarðsvörður, ffamkvæmdastjóri
Þingvallanefndar, mætti sem vitni í
réttarhöldin á fimmtudag. Hann
sagði í samtali við DV í gær að hann
hefði haft afskipti af málinu árið
1991 enda hefðu mannvirkin verið
miklum mun umfangsmeiri en
reglugerðir hefðu heimilað.
Heimir bað byggingafulltrúa um
að hafa afskipti af málinu en hann
fór til eigendanna og krafðist þess
að framkvæmdir yrðu stöðvaðar.
Fulltrúanum var hins vegar ekki
sinnt og var framkvæmdum haldið
áfram þrátt fyrir fyrirmæli yfir-
valda. Samningaviðræður bára eng-
an árangur. Hið stóra sumarhús og
það sem því tilheyrir er fullbyggt en
algjörlega án tilskilinna leyfa. Millj-
óna hagsmunir era því í húfi. -Ótt
Fjórir læknar á
eftirlaunaaldri
í tímavinnu hjá
Tryggingastofnun
Að minnsta kosti fjórir sérfræði-
læknar um eða yfir sjötugt hafa ver-
ið hjá Tryggingastofúun að undan-
fömu í forfollum tryggingalækna.
Dr. Bjami Jónsson, 86 ára, hefur
verið í tímavinnu vegna bæklunar-
lækninga hjá stofnuninni og er
hann elstur læknanna en Víkingur
Amórsson bamalæknir, 71 árs, hef-
ur einnig verið í starfi hjá stofnun-
inni auk Tryggva Þorsteinssonar,
fyrrum yfirlæknis á Borgarspitalan-
um, 73 ára, og Emils Als augnlækn-
is en hann er yngstur þessara
lækna, 67 ára.
„Við vitum að það skapar leiðindi
og umtal að hafa svona gamla menn
í vinnu héma, eins og ástandið er í
þjóðfélaginu, þó að þessir menn séu
mjög hæfir. Þeir hafa verið að að-
stoða okkur tima úr degi því að við
lentum í því að missa tvo trygginga-
yfirlækna hvom á eftir öðram. Nú
er verið að auglýsa eftir læknum til
að leysa vandarm því að við viljum
helst ekki vera með lækna sem era
komnir yfir sjötugt," segir Ólafur
Björgúlfsson, skrifstofustjóri í
Tryggingastofnun, en hann sér um
starfsmannamálin.
Dr. Bjami Jónsson hefúr þegar
hætt störfum hjá Tryggingastofhun
en hann hefur verið þar í tímavinnu
frá því í vor. Stofnunin auglýsti ný-
lega eftir bamalækni í 25 prósenta
starf í stað Víkings Amórssonar.
Sex umsóknir bárast og verður ráð-
ið í starfið fýrir áramót. -GHS
Keflavíkurflugvöllur:
Launadeila leyst
Ægir Már Kárason, DV, Suöurnesjum:
Rafiðnaðarmenn, sem starfa hjá
vamarliðinu á Keflavikurflugvelli,
fengu greidd rétt laun þegar þeir
fengu launaseðla sína í gæ, en þeir
vora búnir að hóta aðgerðum ef
laun þeirra yrðu ekki leiðrétt fyrir
1. des.
Trúnaðarmenn Rafiðnaðarsam-
bands íslands ásamt starfsmanna-
haldi varnarliðsins hafa síðustu
daga farið yfir útreikninga. Þeir
náðu samkomulagi og laun vora
greidd út samkvæmt úrskurði kaup-
skrámefndar frá í vor. Að sögn
Helga Gunnarssonar, skrifstofu-
stjóra Rafiðnaðarsambandsins, er
málinu lokið og ekki kemur til að-
gerða.
Smoby húsið er fallegt en þú ættir að sjá
eldhúsin, þvottavélina og VÖNdUÐ IKFÖNG GeRA
grænmetismarkaðinn.
gæfumuni n
Heildverslunin
Bjarkey
S: 5674151