Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1995, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1995, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1995 UV Sendiherrar NATO tilnefndu næsta framkvæmdastjóra NATO í gær: Einhugur um að Javier Solana taki við starfinu Sendiherrar NATO voru einhuga í þeirri ákvöröun sinni að mæla með Javier Solana, utanríkisráð- herra Spánar, sem næsta fram- kvæmdastjóra Atlantshafsbanda- lagsins. Þar með er sex vikna óvissa um arftaka Willys Claes að baki en hann neyddist til að segja af sér 20. október vegna gamals mútumáls heima í Belgíu. Endanleg ákvörðun um ráðningu Solana, sem er 53 ára, verður tekin á fundi utanríkisráð- herra NATO á þriðjudag. Mikill þrýstingur var kominn á að finna nýjan framkvæmdastjóra í stað Willys Claes en NATO mun stýra friðargæslu nær 60 þúsund hermanna í Bosníu. Fyrstu her- mennirnir á vegum NATO verða sendir til Bosníu í dag. Þetta er í fyrsta skipti sem fram- kvæmdastjóri NATO kemur frá landi sem ekki á beina aðild að her- afla bandalagsins. En diplómatar lögðu áherslu á að Spánveijar væru aöilar að kjamorkusamstarfí aðild- arþjóðanna og tækju þátt í hernað- arlegri skipulagningu. Viðbrögðin við útnefndingu Javiers voru öll á mjög jákvæðum nótum. „Þetta er fyrsta flokks maður í starfíð," sagði Klaus Kinkel, þýskur starfsbróðir Solana. „Solana sam- einar evrópsk viðhorf, sterk tengsl yfir Atlantshafið og stjómunarhæfi- leika. Þetta hefur hann sannað á þeim tíma sem Spánn hefur haft for- mennsku í Evrópusambandinu.“ Malkolm Rifkind sagði Solana hafa þá hæfileika og reynslu sem þyrfti til að gegna jafn krefjandi starfi. Fréttirnar um tilnefningu Solana komu nokkrum mínútum áður en Uffe Ellemann-Jensen, fyrrum utan- ríkisráðherra Dana, dró framboð sitt til baka á blaðamannafundi i Kaupmannahöfn. Hann óskaði Sol- ana til hamingju og sagðist vona að hann treysti böndin við Bandaríkin og gmndvöll Atlantshafsbandalags- ins. Solana þótti líklegastur til að hreppa stööuna eftir að Bandarikja- menn höfðu hafnað Ruud Lubbers, Javier Solana verður ráðinn fram- kvæmdastjóri NATO á þriðjudag. Símamynd Reuter fyrrum forsætisráðherra Hollands, og Frakkar neituðu að styðja Uffe Ellemann, sem aftur hafði stúðning Bandaríkjanna. Spánverjum var mjög í mun að forðast sömu mistök og Hollending- ar gerðu þar sem Lubbers var nán- ast auðmýktur eftir starfsviðtal í Bandaríkjunum, þrátt fyrir stuðn- ing Breta, Frakka og Þjóðverja. Biðu þeir með að útnefna Solana þar til þeir voru vissir um að hann yrði út- nefndur. Vandi spænskra sósíalista En um leið og Solana er almennt fagnað sem næsta framkvæmdastjóra NATO skilur hann eftir sig stórt tómarúm hjá spænskum sósíalistum. Reiknað var með að hann mundi leiða flokkinn í næstu þingkosningum sem fyrirhugaðar eru í mars. Solana hefur verið í hverri ríkisstjórn Spánar síðan 1982 og helsti kandidat sem eftirmaður Gonzalesar í formannsstól flokksins. Reiknað var með að Gonzasles drægi sig loks í hlé en bið getur orðið á því. Solana fær himinhá laun sem framkvæmdastjóri NATO, hús og bil. Reuter Ferðamenn bíða á Orlyflugvelli í París en flugvallarstarfsmenn lögðu niöur vinnu í gær og hindruðu umferð um flug- brautirnar. Símamynd Reuter Áframhaldandi verkföll stuttar fréttir ÍHandtaka viö Hvíta húsiö Bandaríska öryggislögreglan handtók mann viö Hvíta húsið en hann hafði riffil, hnífa og skotfæri í bíl sínum. Clinton fagnað Clinton Bandaríkjaforseta var fagnað sem hetju þegar hann kom til Dublin í gær og fullvissaði hann íra um að þeir mundu fá frið. Talsmenn stjórn- valda sögðu heimsókn Clintons lyftistöng fyrir atvinnulífið. Sumir fussuðu þó þegar hann gat ekki kláraö nema hálfan bjór á krá. Hermenn til Bosníu NATO gaf í gær grænt ljós á flutning 2.600 hermanna til Bos- níu en þeir eiga að undirbúa komu 60.000 hermanna þangað. Kohl hvergi hræddur Talsmaður Kristilegra demó- krata í Þýskalandi sagði aö Kohl kanslari væri ekki hrædd- ur við kosningar í mars ef sprungur kæmu í samstarfið við Frjálsa demókrata. Kommúnistar vinna á IFormaður rússneskra kommúista, Gennedy Zyuga- nov, sagöi að flokurinn renndi hýru auga til forsetakosning- anna í júní á næsta ári. Komm- únistum er spáð sigri í þing- kosningum 17. desember. Reuter/TT Erlendir markaðir: Veröá bensíni hef- ur lækkaö Benslnverð á erlendum mörkuð- um hefur lækkað talsvert undan- farna viku. 92ja oktana bensín lækk- aði um sjö dollara, fór úr 181 í 174 dollara, og 98 oktana bensín lækkaði um tíu dollara. Það fór úr 189 dollur- um í 179 dollara. Hjá Esso fengust þær upplýsingar í gær að skýringin á þessum verðlækkunum lægi í of miklum birgðum erlendis. Litlar sveiflur hafa verið í hluta- bréfaviðskiptum í erlendum kaup- höUum. Hlutabréfavísitalan í Lund- únum, Frankfurt og New York hefur haldist nokkuð stöðug og sama má segja um Hong Kong en hún hefur lækkað lítiUega í Tokyo. Verð á kaffi og sykri í Lundúnum hefur lækkaö. Reuter Viðræður fulltrúa franskra jám- brautarstarfsmanna við Bernard Pons, samgönguráðherra Frakka, fóru út um þúfur í gær. Rúmlega vikulangt verkfall þeirra heldur því áfram að lama nær aUar samgöng- ur.Verkfóllin eiga enn eftir aö þyngjast þar sem strætisvagnabU- stjórar og starfsmenn neðanjarðar- lestanna í París, sem eru í samúðar- verkfalli, munu lengja vinnustöðv- un sína ffarn yfir helgi. Þá fóru starfmenn Orlyflugvallar út á flug- brautimar í gær og töfðu þannig aUa umferð um völlinn. Talsmaður stjórnvalda varaði verkfallsmenn við að fyrirtæki mundu brátt neyð- ast tU að segja upp fólki. Almenn- ingur i París varð aö húkka sér far, ganga eöa hjóla tU vinnu. Margir héldu sig heima. Sumir vinnuveit- endur sögðu að þessir starfsmenn mundu missa orlofsdaga fyrir vikið. Reuter Leiðtogi Bosníuserba: I Vill betri samn- inga í skiptum s fyrir flugmenn : Radovan Karadzic, leiðtogi | Bosníuserba, segist viija koma ■; því í kring að tveir franskir hermenn, sem verið hafa í haldi Serba í fimm mánuði, verði látnir lausir. En í staðinn vUl hann að Jacques Chirac Frakk- landsforseti tryggi Serbum hag- •j stæðari samninga í Bosníu sem I aftur tryggi hverfi þeirra í Sara- jevo. Samkvæmt franska dagblað- inu Le Figaro var þessum skila- -i boðum komiö á áleiðis tU I Chiracs á dögunum og um leið ? upplýst að flugmennirnir, sem : skotnir voru niður í ágúst, væru í haldi óháðra hersveita j Serba. Talsmaður Chiracs full- yrðir að engin tengsl séu milli | tUboðs Karadzics og bréfs sem Chirac sendi Clinton Banda- * ríkjaforseta þar sem hann bað ! um tryggingar fyrir örlögum Serba í Sarajevo eftir að múslímar taka við stjórn borg- arinnar. ; Stafrænt vega- { bréfgefstvel TUraunir meö stafrænt vega- bréf í formi plastkorts á stærð við greiðslukort hafa gefist vel | og kann það að koma alveg í stað hefðbundinna vegabréfa. Með tUkomu stafrænu vegabréf- anna mun tíminn sem fer í J skráningu og eftirlit með ferða- v mönnum styttast til muna en P langar biðraðir I flughöfnum og við landamæri vegna vegabréfa- skoðunar hrella mUljónir ferða- manna á degi hverjum. Á segulrönd kortins verður i þrívíddarmynd af lófa viðkom- i andi auk annarra nauðsynlegra | upplýsinga. Kortinu verður ein- I faldlega rennt i gegnum lesara, | á sama hátt og gerist í verslun- um. Tilraunir á kortinu eru í ’ undirbúningi í Kanada, Þýska- j ■ landi, Hollandi og Bretlandi. Lögreglan sett í lygapróf Æðsti yfirmaður lögreglunn- ! ar í Suður-Afríku hefur fyrir- skipað öUum yfirmönnum sín- | um að gangast undir lygapróf meö hjálp lygamælis. TUgang- | urinn er að prófa traust þeirra j og áreiðanleika í starfi. Skipun- | in um lygapróf kemur í kjölfar | handtöku á fimm lögreglu- j mönnum, þar af einum varð- stjóra, sem eru sakaöir um að- Ud að bílþjófnuðum. Þeir störf- § uðu hjá sérstakri deUd lögregl- | unnar sem berst gegn þjófn- ; uðum og gáfu út „hreinleika- vottorð" á stolna bUa. ; Fyrsta bókin { um West-hjónin að koma út Fyrsta bókin um Fred og Ro- | semary West, sem misþyrmdu og myrtu að minnsta kosti 10 j stúlkur, kemur út í Englandi á | fimmtudag, aðeins hálfum mán- uði eftir að Rosmary var dæmd í tífalt lifstíðarfangelsi. Hún er | eftir Howard Sounes, blaömann sem vann fyrir dagblaöið Sunday Mirror. Að minnsta kosti sex manns vinna að bók um morðhjónin og er búist við aö þær aUar verði j metsölubækur. Þrír höfund- jj anna fylgdust með réttarhöld- | unum frá upphafi tU enda. Tvö bama West-hjónanna em með bók í smíðum. Útgefandi hefur ; keypt útgáfuréttinn að endur- minningum Freds sem hann skrifaði í fangaklefanum. Reuter/Ritzau
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.