Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1995, Blaðsíða 54
ÞARFTU AÐ
SELJA
EITTHVAÐ?
Við sérhæfum .okkur í símsölu og svarþjónustu
fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Ef þú þarft að selja eitthvað eða einfaldlega að
láta svara fyrir þig í síma, hvort sem það er að
taka á móti pöntunum eða taka niður svör við
auglýsingum, hafðu þá samband við okkur.
Sparileið hf.
markaös- og þjónustufyrirtæki.
Upplýsingar í síma 562-1188 - fax 562-1338.
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1995 JjV
Hann vó sjö kiló þegar hann fæddist
Risastórt smábarn
Hann Daniel Shkarina kom for-
eldrum sínum, læknum og hjúkrun-
arfræðingmn aldeilis á óvart þegar
hann kom í heiminn. Daniel fæddist
nefnilega tvisvar sinnum stærri en
önnur börn. Hjúkrunarkonan hélt
að vigtin væri biluð þegar hún setti
bamið á hana því hún sýndi sjö
kíló. Annað eins hafði aldrei sést og
athugað var hvort hugsanlegt væri
að vigtin væri í ólagi. Daniel var
talsvert lengri en önnur höm líka
því hann mældist 61 sentímetri.
Þetta gerðist fyrir stuttu á St. Jos-
ephs-sjúkrahúsinu í Washington.
„Við höfum aldrei séð svo stórt ný-
fætt bam fýrr,“ segir starfsfólk spít-
alans. Foreldramir em frá Rúss-
landi en fluttu til Bandaríkjanna
árið 1991. Þau eiga átta böm fyrir en
ekkert þeirra fæddist jafh stórt og
Daniel.
Samkvæmt heimsmetabók Guin-
ness mun stærsta bam í heiminum
hafa vegið 9966 grömm við fæðingu.
Damel litli asamt öðru smabarni sem var 16 marka við fæðingu. Hann er eng- Daniel nær því kannski ekki en stór
in smásmíði, strákurinn. er hann samt
sviðsljós
verður opin alla daga fram að jólum
/ dag verða allar verslanir
Kringlunnar opnar frá kl. 10 -18.
Á morgun, sunnudag, verður opið
frá kl. 12 - 18.
/ 1e .
Leikkonan og dýravinurinn Jennie
Garth með hænu í fanginu.
Ég get ekki
borðað kjöt
af þvíað
dýrin eru
vinir mínir
- segir Beveríy Hills leikkonan Jennie Garth
o
«8
c-
Við kveikjum á jólatrénu
á morgun, sunnudag, kl.15
Börn úr lítmsskóla Hermanm Ragnars sýnn tlans.
Erobikh sýning,
Áritanir á btekur og geisladiska.
Hin 23 ára gamla Jennie Garth,
sem leikur í Beverly Hills 90210 þátt-
unum, hefrn- ekki horðað rautt kjöt
í átta ár og hætti að borða fisk, egg
og kjúklinga á síðasta ári.
Ástæðuna segir hún vera þá að
hún sé svo mikill dýravinur. „ Það
er auðvelt fyrir mig að borða græn-
meti,“ segir hún. „Ég veit hversu
hollt það er og mér líður mjög vel.
Hin raunverulega ástæða er hins
vegar sú að ég elska dýr. Dýr af
mörgmn tegundum, sem fólk drepur
til að borða, eru vinir mínir. Ef
manni þykir reglulega vænt um
kjúkling eða kú er erfitt að ímynda
sér aö maður geti borðað þau,“ seg-
ir hún. Jennie ólst upp í sveit og
hún á sjálf búgarð norðan við Los
Angeles og þar á hún 20 dýr. „Ég á
geitur, kjúklinga og kanímu*. Ég
leik mér við þau og þau eru öll mjög
gáfúð og skemmtileg. Það að borða
þau væri eins og að borða góðan
vin. Ef böm fengju að kynnast dýr-
um betur væri meira borðað af
grænmeti í heiminum. Ég lít ekki á
dýrin sem gæludýr, þetta em vinir
mínir.“
Jennie er gift tónlistarmanninum
Dan Clark en ekki er getið um á
hveiju hann nærist.