Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1995, Blaðsíða 24
24
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1995
Aðventuljós í glugga á morgun:
Svo virðist sem íslendingar séu
talsvert á eftir öðrum þjóðum þegar
kemur að jólaundirbúningnum. Fyr-
ir aillöngu voru Danir, Svíar og
Norðmenn byijaðir að baka, pakka
inn jólagjöfum og skreyta húsin sin
ef marka má skandinavísku blöðin
sem eru uppfull þessa dagana af
jólastemningu.
Það er varla seinna vænna að fara
að byrja og fyrir þá sem eru mikil
jólaböm og vilja breyta umhverfi
sinu í jólamánuðinum eru til marg-
víslegar hugmyndir.
Flestir íslendingar setja aðventu-
ijós í gluggann hjá sér fyrsta sunnu-
dag í aðventu. Á morgun mun því
birta upp í gluggum landsmanna.
Margir eru líka famir að setja upp
jólagluggatjöld í eldhúsið og þannig
breyta stemningunni við jólabakst-
urinn.
Það getur verið gaman að breyta
umhverfi sínu svolítið í mesta
skammdeginu og vissulega er margt
hægt að gera. Við rákumst á nokkr-
ar skemmtilegar hugmyndir í
dönsku jólablaði. Til dæmis er hægt
að klæða blómsturvasa heimilisins
og líma jólastjömur á og setja kúlur
til skreytingar. Margir hafa líka
gaman af að föndra við jólagjafimar
og póstinn. Vel er hægt að búa jóla-
Tfmi jólaglöggsins er kominn og fyr-
ir þá sem vilja hafa fallega skreytt
borð er þetta góð hugmynd: jóla-
dúkur, bastkarfa með blómi og
jólakúlum og jólakerti.
Brauðristin getur fengið jólasvip ekki síður en eldhúsglugginn.
desember er skemmtilegt að heim-
sækja gamla fólkið og færa því smá-
kökur í skreyttri körfu eða boxi.
kortin til sjálfur og láta þá hug-
myndaflugið ráða með fallegum
glanspappír eða limmiðum.
Aðventuljós og aðventukransar
munu sjást í gluggum og á borðum
landsmanna á morgun. Skemmtileg-
ast er að gera aðventukransinn
sjálfur og láta hugmyndaf lugið ráða.
opnar í dag stærri
og endurbætta verslun
'Jutt táS af
njjjam uöxam
/r jl
skórinn
* *' Fríar póstkröfur Opið í dag 10-16 g^bæ.símimi^
Blómapottamir eiga skilið að fá jólasvip í desember og auðvett er að breyta
þeim með fallegum pappír og límmiðum.
Jólagjofín sómir sér vel í heimagerðum pakka. Hér eru nokkrar skemmtileg-
ar hugmyndir.
Kertastjaka heimilisins má líka
gera jólalega með fallegum böndum
eða snúrum, brauðristin ætti að fá
jólalega yfirhöfii og brauðkarfan
jólalegan dúk. Með smáhugmynda-
flugi er hægt að gera heimilið að fal-
legum samastað í desember. Böm
hafa mjög gaman af að föndra með
foreldrum sínum og ekki er verra að
leyfa þeim að vera með í bakstrin-
um og jólaskreytingunum.
Jólasmákökumar verða líka
miklu áhugaverðari ef þær em sett-
ar I skreytt kökubox og skreytt bast-
karfa er skemmtileg gjöf til aldraðra
vina eða jafiivel sild í skreyttri
krukku.
Á morgun er líka timi aðventukr-
ansa og þeir eru alltaf fallegastir
heimageröir. Nú er hægt að fá mik-
ið úrval af alls kyns fallegu skrauti
í blómabúðum svo minnsta mál er
að búa til kransinn. Og nú er bara
að setjast niður með fjölskyldunni
og hefja vinnuna.
ELA
Skreytt síldarkrukka er góð gjöf.