Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1995, Qupperneq 12
Gífurlegt úrval köflóttra
efna í barnakjóla, búta-
\saum, gardínur ogföndur.
Jólaföndur - Jólagjaflr
Sendum í póstkröfu
Mörkin 3 • Sími 568-7477
—
sviðsljós
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1995
Hjúkkan á Bráðavaktinni varð kærastanum úti um hlutverk:
Kærustupar í lífi og leik
Julianna Margulies, sem
fer með hlutverk hjúkrun-
arkonunnar Carole Hat-
haway í sjónvarpsþáttunum
E.R., eða Bráðavaktinni,
hefur fundið nýja leið til að
vera með kærasta sínum í
fjölda ára, Ron Eldard, en
hann fer nú með hlutverk í
sjónvarpsþáttunum. Þar
leikur hann ekki erfiðara
hlutverk en sjúkraflutn-
ingamann og ástmann Hat-
haway.
Margulies hlaut Emmy-
verðlaunin í ár fyrir
frammistöðu slna í þáttun-
um sem teknir verða til
sýningar á ný í Sjónvarpinu
eftir áramót. Að sögn fjöl-
miðla notaði hún aðstöðu
sína og vinsældir til að
þrýsta á handritshöfunda
að skrifa Ron Eldard inn í
þættina.
Nýja starfið hans Rons,
sem var sviðsleikari á Broa-
dway í New York til
skamms tíma, gerir það að
verkum að þau hjónaleysin
geta eytt meiri tíma saman
en minni í ferðalög. í fyrra
flaug Margulies vikulega til
New York til að eyða sínum
fáu frístundum með sínum
heittelskaða.
Félagi skötuhjúanna seg-
ir að sú staðreynd að þau
séu saman í raunveruleik-
anum hafi ráðið úrslitum
um að Ron fengi vinnu við
þættina. Ást þeirra sé svo
heit að áhorfendur muni
ekki eiga I nokkrum vand-
Ron Eldard, kærasti Juliönnu Margulies, hefur fengiö
hlutverk í E.R.- þáttunum sem teknir verða til sýningar
hér á ný eftir áramót.
ræðum með að trúa því að
þau séu saman í þáttunum.
Þrátt fyrir að Ron hafi leik-
ið á sviði, í sjónvarpi og
farið með hlutverk í kvik-
myndunum True Love og
Scent of a Woman þá hafi
hann skotið mörgum leik-
urum sér hæfileikaríkari
ref fyrir rass.
Hann bendir á að í upþhafi
átti Margulies aðeins að
leika í tveimur fyrstu þátt-
unum og persóna hennar
aö deyja eftir að hafa tekið
inn of stóran lyfjaskammt.
Vinsældir hennar reyndust
hins vegar svo miklar strax
í byrjun að hún var vakin
til lífsins af handritshöf-
undum. Þeir þurfi ekki að
naga sig í handarbökin
vegna þeirrar ákvörðunar
enda var hún eini leikari
E.R. til að vinna til Emmy-
verðlauna á árinu.
Þegar Margulies tók við
Emmy- verðlaununum
þakkaði hún Ron meðal
annars fyrir stuðninginn. í
viðtölum hefur hún látið
hafa eftir sér að hún eigi
honum fleira að þakka en
stuðninginn. Hún hafi hald-
ið vextinum, þökk sé hon-
um, en eins og hún segir
sjálf: „Gott kynlíf kemst
ekki í hálfkvisti við
þolflmi.“ Jafnframt hefur
hún látið hafa eftir sér að
samband þeirra verði lög-
formlegt á næstunni en
þau hyggja á brúðkaup inn-
an skamms.
r
Jólagetraun DV - 5. hluti
Hvar er jolasveiiniinn?
Þá er komið að fimmta hluta jólagetraunar DV en hún mun birtast 12 sinn- glæsilegu vinninga sem í boði eru en verðmæti þeirra nemur samtals hálfri
um, síðast mánudaginn 11. desember. Ykkar hlutverk, lesendur góðir, er að milljón króna.
finna út hvar jólasveinninn er staddur.
Jólasveinninn þarf ekki að vera í vafa um hvað tímanum líður í dag, kunn-
ugleg hringing frá Big Ben sér til þess. Sveinki þarf að nota tímann vel enda ..........,
nóg að gera. Hann ætlar að heimsækja Elísabetu drottningu og James Bond,
fara í viðtal hjá BBC og hitta Björk.
Hvar er jólavsveinninn? Merkið við það sem þið teljið rétt svar, klipp-
iö getraunina úr biaðinu og geymið á vísum stað. Fyrst þegar allir 12
hlutar getraunarinnar hafa birst megið þið senda okkur lausnirnar. 1, J—* = I
Þegar nær dregur lokum getraunarinnar munum við kynna skilin. : I-1 W B j§fgraKft$£|| j
Þátttakendur í jólagetraun DV eiga möguleika á aö vinna einn hinna 19
4. verðlaun eru fullkomin Goldstar FFH-333 hljómtækjasamstæða með geisla-
spilara, útvarpi og tvöföldu snældutæki frá Radíóbúðinni að verðmæti 49.900
krónur.
póstnúmer
Hvar er jólasveinninn? ULondon UAkureyri JChicago
,
1
[j
j