Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1995, Qupperneq 18
Ég vaknaði um hálfellefu þenn-
an laugardagsmorgun, er yfirleitt
seinn fyrir. Þó reyni ég að ná kaffi-
bolla og brauðsneið áður en vinn-
an hefst. Það hefur verið mikið að
gera hjá mér undanfarið við lestur
og talsetningar. Ég hef lesið inn á
teiknimyndir hjá Stöð 2 og einnig
hef ég verið að lesa námsefni fyrir
blinda og ólæs börn hjá Blindrafé-
laginu við Hamrahlíð.
Þennan laugardag var ég hins
vegar að talsetja kvikmyndina Ag-
nesi sem frumsýnd verður á annan
í jólum. Ég fer þar með hlutverk
Guðmundar, bróður Natans Ketils-
sonar. Talsetningin fór fram í stúd-
íói á Lindargötu og þetta var svona
lokapunkturinn á kvikmyndinni.
Ástæða talsetningarinnar er sú að
stundum verður hljóðið ekki nægi-
lega gott í útisenum og þá þarf að
„döbba“ það.
Frístundir í hesthúsinu
Ég var í þessu fram eftir en dreif
mig þá upp í hesthús ásamt Bene-
dikt Erlingssyni, vini mínum og
leikara. Við erum að undirbúa
hesthúsin áður en hrossin verða
sett inn fyrir veturinn. Það þarf að
mála og þrífa og dytta að ýmsum
hlutum. Hesthúsin eru upp í Graf-
arkoti nálægt golfvelli Reykjavík-
ur. Mér finnst alltaf mjög gott að
koma upp í hesthús því þar fær
Hilmir Snær Guðnason slakar á milli atriða í leikhúsunum.
DV-mynd Brynjar Gauti
ekið greitt að Héðinshúsinu. Þang-
að var ég kominn kl. 11.20.
Ég vildi ekki láta fólk sjá að ég
væri að mæta svo seint svo ég háif-
faldi á mér andlitið þegar ég gekk
inn. Ég þarf sem betur fer ekki að
sminka mig fyrir þessa sýningu en
hleyp beint í jakkafbtin og breytist
í Brad á svipstundu. Geng frá því
sem ég þarf að nota í sýningunni
og beint inn á svið. Þetta hefur ver-
ið svona undanfarið.
Það var uppselt í Loftkastalan-
um þetta kvöld. í Rocky Horror er
mun meiri æsingur heldur en í
Þreki og tár þannig að maður þarf
að peppa sig svolítið upp. Það get-
ur verið mjög skrýtið að breyta svo
skyndilega um hlutverk. í hléinu
slappar maður af og reynir að
spara orkuna. Ég hef það fyrir
vana að drekka mikið vatn - heil-
an lítra af vatni. Yfirleitt dreg ég
mig I hlé og tala helst ekki við
riokkurn mann.
Þessi sýning var búin klukkan
hálftvö en þá tók ég langa góða
sturtu. Um tvöleytið gat maður
sest niður með félögum úr sýning-
unni og fengið sér einn til tvo
bjóra. Það var ósköp notalegt eftir
þennan langa vinnudag.
Horft á bíómynd
Þegar ég kom heim um þrjúleyt-
ið náði ég að horfa á eina bíómynd
maður eiginlega bestu frístundirn-
ar, getur gleymt amstri dagsins.
Við vorum að þessu stússi til
klukkan sex.
Þá var kominn tími til að fara í
bæinn aftur og fá sér eitthvað að
borða í mötuneyti Þjóðleikhússins
og undirbúa sýningu á Þreki og tá-
rum. Ég fékk steiktan fisk í mötu-
neytinu sem var ágætur enda er ég
alæta á mat.
Um hálfsjö var kominn tími á
smink og hárgreiðslu en ég fer með
hlutverk Davíðs í leikritinu. Hann
þarf ekki mikla búninga, einungis
buxur og skyrtu. Rétt fyrir sjö fékk
ég smástund til að slappa af, fá mér
kaffi og sigarettu.
Nákvæmlega kortér yfir sjö er
hljóðprufa á sviðinu. Þá er upphit-
un á röddinni og tekin hljóðprufa
fyrir míkrófóna. Þegar þessu lauk
fór ég í búninginn og gekk frá leik-
munum mínum á vissan stað, þar
sem ég vil hafa þá klára. Þá var allt
tilbúið fyrir sýninguna klukkan
átta.
Góðir áhorfendur
Þetta var góð sýning og frábær
salur. Uppselt var þetta kvöld og ég
verð að viðurkenna að þetta var
einstaklega skemmtilegur áhorf-
endahópur. Sýningin rann vel í
gegn án nokkurra óhappa.
Þegar þessari sýningu lauk
fimm mínútur fyrir ellefu varð ég
að flýta mér óskaplega mikið því
önnur sýning beið mín út í Loft-
kastala klukkan hálftólf. Ég tók af
mér sminkið í hvelli, fór úr bún-
ingnum og gekk frá honum í snar-
hasti, pantaði leigubíl og síðan var
á Stöð 2 og endaði daginn á því. Ég
fékk mér snarl með myndinni og
einn bjór til viðbótar. Það er mjög
gott að ná sér niður eftir eril
kvöldsins og slaka á t.d. yfir bió-
mynd. Þetta var nokkuð týpískur
laugardagur en helgarnar hafa all-
ar verið eins hjá mér síðan í sept-
ember. -ELA
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimilisfangi.
Að tveimur vikum liðnum
birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
TENSAI ferðaútvarp með kassettu, að
verðmæti kr. 4.990, frá Sjónvarpsmið-
stöðinni, Síðumúla 2, Reykjavík.
Hermóður minn! Viltu koma aðeins og aðstoða mig.
Nafn: _
Heimili:
Vinningshafar fyrir jjrjú hundruð þrítugustu og þriðju
getraun reyndust vera:
1. Elísa Guðrún Elísdóttir 2. ívar Már Ottason
Jörundarholti 25 Valhúsabraut 11
300 Akranesi 170 Seltjamarnesi
2. verðlaun:
Úrvalsbækur. Bækurnar sem eru í
verðlaun heita Líkþrái maðurinn og
Athvarf öreigans, úr bókaflokknum
Bróðir Cadfael, að verðmæti kr. 1.790.
Bækumar eru gefnar út af Frjálsri
fjölmiðlun.
Vinningarnir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 335
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík