Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1995, Page 22
22
Frumskógarlögmálið er ekki í gildi í Hafnarfirði:
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1995 JjV
Við hús í gróðursælu hverfi í
Hafiiarfirði hafa tveir litlir félagar
gert sig heimakomna í vetur. Annar
þeirra hefúr reyndar verið kost-
gangari hjá húsfreyju í einu hús-
anna í bænum um þriggja ára skeið
og þáð hjá henni beina með góðri
list. í vetur brá svo við að hann
byrjaði aö koma með lítinn félaga
sinn í heimsókn. í sjálfu sér væri
þetta ekki í frásögur færandi nema
hvað hér er á ferðinni skógarþröst-
ur og hettusöngvari, en dagsdaglega
sækja fuglar sér ekki félagsskap til
bræðra sinna af öðru kyni.
„Skógarþröstiurinn er búinn að
vera hér í þijú ár og er mjög spakur
en sá litli er öllu styggari. Það er
eins og skógarþrösturinn eigi heima
hér,“ segir Sigríður húsfreyja.
Þegar DV menn bar að garði hafði
Sigríður fínsaxað epli fyrir litlu fé-
lagana þannig að Ijóst er að þeir
deyja seint úr sulti í Haftiarfiröin-
um. Skógarþrösturinn, Lingi eins og
nábúinn í næsta húsi kallar hann
fyrir styttingu á heimalingur, fer
fýrstur að matarkörfunni sem hang-
ir i furutrénu fyrir utan gluggan.
Hettusöngvarinn bíður álengdar eft-
ir að sá stóri ljúki máltíðinni og
vappar öðru hvoru í kringum hann,
eins og til að reka á eftir. Allir þurfa
jú sitt. Eftir að Lingi hefúr étið
nægju sína víkur hann fyrir hettu-
söngvaranum sem heldur áfram þar
sem Lingi skildi við.
Svona gengur þetta dag eftir dag
hvort sem jarðbönn eru eða ekki.
Skógarþrösturinn kemrn- í birtingu
og sest í tréð fyrir utan gluggann og
í kjölfar hans flýgur hettusöngvar-
inn.
Leitar til nágranna
Eins og Sigríður segir hefur Lingi
vanið komur sínar að heimili henn-
ar í þrjú ár. Hann er orðinn mjög
spakur, svo spakur að hann hreyfír
sig vart frá körfunni þótt bætt sé í
hana. Ef Sigríöur getur ekki gefíö
fúglinum einhverra hluta vegna fer
Lingi í næsta hús sest á greinina
þar og lætur vita af svengd sinni.
Þar gefur nafngjafi hans honum að
borða og þar endurtekur sama sag-
an sig, hettusöngvarinn tekur við
þegar Lingi hefur borðað nægju
sína.
„Það er mjög gaman að fylgjast
með þeim og þeir eru alveg rólegir
þótt þeir verði varir við mig. Bama-
bömin em líka mjög hrifin af skóg-
Einnig bjóðum við á frábæru verði:
★ Skrifborð
★ Fataskápa
★ Sjónvarpsskápa
★ Kommóður
★ Bókahillur
★ Skenka
HiRZLAN
Lyngási 10 - Garðabæ
Sími 565-4535.
Margir litir
Ótal möguleikar á uppstillingu
1ÍIATILBM
á VEmmmsvMmM
Hettusöngvarinn bíður álengdar eftir að sá stóri Ijúki máltíðinni og vappar öðru hvoru í kringum hann, eins og til að
reka á eftir. Allir þurfa jú sitt. Eftir að Lingi hefur étið nægju sina víkur hann fyrir hettusöngvaranum sem heldur
áfram þar sem Lingi skildi við. DV-mynd Brynjar Gauti
arþrestinum og svo sýnir kötturinn
í næsta húsi honum áhuga en lætur
hann þó vera,“ segir Sigríður.
Henni finnst málið sérstaklega at-
hyglivert þar sem sá litli fylgi skóg-
arþrestinum en telur þó hæpið að
hann lifi veturinn af. Bæði vegna
veðurfarsins og þess að hann er hér
einn á ferð að kalla.
Hettusöngvari, sylvia atricapiila,
á heimkynni sin í Miðevrópu og allt
norður til Norðurlandanna en er þó
alitiður flækingur hér við land og í
Færeyjum. Hettusöngvarinn í Hafn-
arfirði er kvenfugl: rauðbrúnn á
kolli og brúnni að neðan. í fuglabók
AB er söng hans lýst sem þróttmikl-
um, dillandi og tilbrigðaríkum.
Það sem er athyglivert við vin-
áttu fuglanna tveggja er að skógar-
þrösturinn rekur iðulega kynbræð-
ur sína í burtu frá sér. Sérstaklega
er hann varasamur þegar þeir nálg-
ast matarkörfuna hans. Hann sér
hins vegar enga ógn né samkeppni í
hettusöngvaranum heldur virðist
þvert á móti hafa brugðið sér í hlut-
verk vemdara hans við þær hrjóstr-
ugu aðstæður sem hann hefur valið
sér að búa við i vetur.
Hettusöngvari, sylvia atricapilla, á heimkynni sín í Miðevrópu og allt norður til Norðurlandanna en er þó alltíður flæk-
ingur hér við land og i Færeyjum. Hettusöngvarinn í Hafnarfirði er kvenfugl: rauðbrúnn á kolli og brúnni að neðan.
í fuglabók AB er söng hans lýst sem þróttmiklum, dillandi og tilbrigðaríkum.