Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1995, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1995
31
Þolfimimeistarinn:
Er mikill hrak-
fallabálkur
- segir Unnur Pálmadóttir, 19 ára
„Ég varð íslandsmeistari í þolfimi
áriö 1994 og í framhaldi af því fór ég
til Búdapest til að keppa á Evrópu-
móti. Ég er mikill hrakfallabálkur
því daginn fyrir keppnina hoppaði
ég af sviðinu niður á steingólf og
sleit í mér krossbönd. Það þýddi sjö
mánuði frá æfingum og keppni," seg-
ir Unnur Pálmadóttir, 19 ára, sem
varð sigurvegari í úrtökumóti í
þolfimi um síðustu helgi. Keppnin
var haldin til að velja keppendur fyr-
ir heimsmeistaramótið sem fram fer
í París um miðjan desember.
Unnur náði ekki nógu góðri ein-
kunn til að komast tO Parísar en
hins vegar mun Magnús Scheving
halda utan.
Eftir að Unnur hafði farið í aðgerð
eftir slysið í Búdapest tók við þjálf-
unartími hjá sjúkraþjálfurum. Hún
byrjaði aftur að æfa þolfimi fyrir ári
og ákvað að prófa að vera með í
keppninni núna. „Ég fékk vissu fyr-
ir því að ég gæti gert allt það sama
og áður - það var góð tilhugsun,"
segir hún.
Hins vegar hafði Unnur ekki
marga andstæðinga í keppninni því
aðeins þrjár konur kepptu á mótinu.
Hún segist vonast til þess að á ís-
landsmeistaramótinu, sem verður í
mars, verði fleiri konur meðal kepp-
enda.
Hefur dómararéttindi
Unnur hefur þjálfað unglinga-
landsliðið í þolfimi að undanförnu,
auk þess sem hún hefur aðstoðað Magnús
Scheving. Þá hefur hún kennt í Eróbikk-Sport
og hefur öðlast dómararéttindi í þolfimi.
„Það skiptir miklu máli að beita sér rétt í
sambandi við æfingar. Eftir að ég slasaðist
finnst mér ég hafa lært betur á líkamann og
hvernig ég á að haga æfingaprógramminu.
Einnig hef ég verið að lyfta og það hefur gefið
mér aukinn styrk,“ segir Unnur.
Hún hefur æft þolfimi í sex ár og var því að-
eins 13 ára þegar hún byrjaði. Áður hafði hún
æft badminton og varð tvisvar sinnum ís-
landsmeistari í Free Style einstaklingsdansi.
„Ég fór í skíðaferðalag með skólanum, slasað-
ist þá og þurfti að ganga til sjúkraþjálfara. Þá
var mér bent á að fara í líkamsrækt og fór í
tíma hjá Magnúsi í World Class en segja má
að ég hafi ekki stoppað síðan. Hann
tók mig eiginlega upp á sína arma
og hefur kennt mér allt sem ég
kann,“ segir Unnur ennfremur.
Allar frístundir Unnar fara í æf-
ingar en hún segir að stór vinahóp-
ur hafi myndast í kringum þolfim-
ina. „Það er mjög góður andi hjá
okkur og við höldum vel hópinn.
Við hittumst hvert hjá öðru, erum
með videókvöld eða borðum sam-
an.“
Unnur Pálmadóttir var að vonum ánægð með sigurinn.
DV-myndir JAK
þolfimi hér á landi enda mörg þúsund manns
sem stunda hana á hverjum degi. „Allar lík-
amsræktarstöðvarnar eru troðfullar en þeir
eru fáir sem keppa. Ég býst við að tímasetn-
ingin á keppninni eigi þátt í því þar sem
margir eru í prófum. Ef keppnin hefði verið í
september hefðu keppendur verið fleiri," seg-
ir Unnur.
Víða um heim er mikill áhugi á þolfimi og
Unnur segir hann ótrúlega mikinn á Spáni og
í Ástralíu. „Þetta er ung keppnisgrein hér á
landi og hún á eftir að þróast.“
mótið nú hafi tekið talsverðan
tíma frá lærdómnum þar sem
ekki sé hægt að æfa af krafti
fyrr en eftir að líkamsræktar-
stöðvunum er lokað á kvöldin.
„Ég get samræmt skólatímann
og þolfimina en hef lítinn tíma
þess utan,“ segir hún.
Máni Svavarsson og Vilhjálmur
Guðjónsson sömdu tónlist fyrir
Unni en hún segir það töluvert mál
að fá réttu tónana með æfingunni.
„Það getur tekið tíma að setja æf-
ingaprógrammið saman og einnig
að finna rétta búninginn. I
rauninni er töluverð tauga-
spenna í kringum þetta.
Einnig þurfti ég að losa mig
við nokkur kíló en ég er
mikill sælgætisgrís og
borða allt of mikið af
nammi. Það tókst
þokkalega að skera
af mér fituna með
hjálp Debbie
Blyden. Það er
erfitt fyrir sæl-
gætisfíkil eins og
mig að breyta
mataræðinu en
sem betur fer hef-
ur það tekist ágæt-
lega. Núna er fisk-
ur besti matur sem
ég fæ.
Unnur segist ætla
að nota jólafríið til
æfinga, auk þess
sem hún ætlar að
aðstoða unglinga í þolfim-
inni. „Einnig ætla ég að
hjálpa Magnúsi fyrir heims-
meistaramótið," segir hún
sem stefnir sjálf á heims-
meistaramót í framtíðinni.
„Ég er enn þá svo ung að I
ég hef tímann fyrir
mér.“ / 4
-ELA **.
Á íþróttabraut
Unnur er á íþróttabraut í Fjölbraut í Breið-
holti og á eftir eitt ár í námi. Hún segir að
,Litla barnið"
Unnur segist vera litla barnið í
þolfimihópnum því yfirleitt sé fólk
að keppa sem komið er talsvert yfir
tvítugt. „Meðan ég átti í veikindun-
um stúderaði ég þolfimi mikiö,
horfði á öll mót á vídeói, lærði spor
og uppbyggingu á æfingum. Það
skiptir miklu máli að maður hafi
eróbikkhreyfingar i þolfimi og
blandi því ekki saman við jassball-
etthreyfingar eða fimleika. Hins
vegar er gott fyrir þolfimimann að
hafa verið í fimleikum og helst
þyrfti ég að leita mér að fimleika-
kennara. Hins vegar er greinin alls
ekki lík fimleikum sem slíkum."
Unnur segir gífurlegan áhuga á
AFSLÁTTU
Mikið úrval af húsgögiium og málverkum.
Alltaf eitthvað nýtt. Hreint ótrúleg verð í
gangi því mikið skal seljast. Opið laugar-
dag og sunnudag frá kl. 11:00 -16:00.
MUNIR &. MINJAR
Grensásvegur 3 (Skeifumegin)
Sími: 588 4011