Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1995, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1995, Side 40
48 menning LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1995 Bangsi ratar til sinna Mig minnir aö Þorsteinn frá Hamri hafi eitt sinn sagt að ljóðið rati til sinna og ísak Harðarson hefur þau orð greinilega í huga þegar hann ritar „Bætifláka skraddarans", eftirmála að nýjustu ljóða- bók sinni, Hvítum ísbirni. Hann virðist hins vegar ef- ast um að ofangreind yfirlýsing gildi í hans tilviki, sýnist hræddur um að ljóðin séu slæm og finnur sig knúinn til að afsaka afurðina sem hann líkir við ís- björn. Bókin skiptist í þrjá hluta og sá fyrsti, sem ber heitið „svartur ísbjörn“, er að mati höfundar með slitinn feld og rykugan. í annan hlutann, sem heitir „glefsandi rennilás!", segir ísak vanta tennur og hvíta loðskinnið á þeim þriðja, „hvítum ísbirni“, má kallast allt annað en flekklaust segir höfundur. Af orðum hans má merkja að hann óttist að bókin verði afgreidd sem samhengislaus óskapnaður, segist samt hafa ákveðið að sleppa ljóðunum (bangsa) út úr búr- inu og klykkir út með eftirfarandi orðum: „Vonandi ratar bangsi heim til sinna - ef einhverjir eru“ (87). Svo vægðarlaus afhjúpun á lítillæti og/eða minni- máttarkennd höfundar kom mér í opna skjöldu að af- loknum lestri hreint ágætra ljóða. Þau eru þó ekki al- veg gallalaus og þá hef ég sérstaklega í huga ljóðin í miðhlutanum. Þau eru eins og önnur ljóð bókarinn- ar snyrtilega samansett á fallegu máli, oft með glettnu ívafi en þó vill húmorinn og hugmyndaflugið fara fyrir ofan garð og neðan sökum fjarlægðar og sjálfhverfni höfundar. Lesandinn verður utangátta og saknar einlægninnar og þeirra frumlegu hugmynda sem birtast í fyrsta og þriðja hluta en ljóðin sem þar birtast eru hvert öðru betra. Þar yrkir ísak meðal annars um innantóma leit mannsins að tilgangi í ver- öldinni, leit sem er dæmd til að mistakast ef maður- inn leitar ekki á réttum stöðum. Ljóðabálkinn „Slý“ (21-47) i fyrsta hluta mætti vel túlka sem slíka leit en þetta eru áleitin ljóð þó orðalag sé stöku sinnum frá- hrindandi og uppskrúfað sbr. bls. 29 og 30: „Augn- stola/nemur að innan/ómennska raust/héla hlustim- ar:/ VELKOMINN HEIM!“. í „Slýi“ endar leitin í sjálfu helvíti þar sem myrkrið býr alls staðar, einnig í ljósinu: „Kemur hönd/kveikir kertið: birtist/myrkr- ið“ (21). Veröldin sem hér er lýst er hræðileg, grimm og ógnvekjandi og æðsta ósk Ijóðmælanda er sú að geta fæðst að nýju og gengið „í fóstbræðralag við ljós- ið“ (35). Manninum verður að ósk sinni og ljóðið end- Bókmenntir Sigríður Albertsdóttir ar í spurn: Hvert verður valið nú? Það vefst hins vegar ekki fyrir Ijóðmælanda í „Manni án höf- undar“ hvaða leið skal velja en hún liggur til himins þar sem „mannssmiður- inn“.......bíður og þráir og fylgist" með hirð sinni sem vafrar um í sjálfsblekk- ingu og kvöl (11-12). Þetta er með betri ljóðum bókarinnar, vel byggt og hnitmiðað og það sama gild- ir um ljóðabálkinn í þriðja hluta: „Himinninn snýr niður" (63—74). Þar líkir ljóðmælandi hugsunum sín- um við himin og/eða trygglynt dýr en þessi tvö fyr- irbæri eru náskyld og óaðskiljanleg í myndmálinu. Hugsunin er að vísu aldrei nefnd á nafn en líkingin er augljós. Himinninn er alls staðar og allt um kring og dýrið neitar að yfirgefa ljóðmælanda á hverju sem gengur. í ljóðinu er broddur og lúmsk ádeila á þjóð- félag þar sem frumlegum hugsunum er úthýst. .. en árangurslaust. Hugsanir lifa af boð og bönn, jafnvel limlestingar og dauða. Hugsanir eða öllu heldur hugsanaleysi er víðar lagt til grundvallar í ljóðum ísaks t.d. í „Haustleys- ingu“ (74) og „Aðeins meir í kollinn" (57) en í því ljóði veltir höfundur sér upp úr innantómu bulli - eða bullukollum - á kankvíslegan hátt. Það ljóð er í miðhluta bókar og er ásamt „Ég hef séð öll flögg“ (49), „Ó þetta skáld" (47) og „Nóttin hvíslar" (54) með því betra i þeim hluta. 1 Hvítum ísbirni eru mörg eftirminnileg og lista- góð ljóð og þó feldurinn sé ekki flekklaus með öllu tel ég ástæðulaust annað en ætla að bangsi þrammi til sinna. Hvítur ísbjörn ísak Harðarson Foriagið 1995 Það eru sjór og siglingar sem eru hinn yfirskipaði þáttur í sögu Ey- vindar P. Eiríkssonar um unglingana Gagga og Begga. Sagan gerist á okkar tímum við strendur Danmerkur að sumarlagi. Bræðurnir ætla að eyða sumrinu með föður sínum á siglingu því þeir fengu enga sumar- vinnu og pabbi þeirra er kennari með langt sumarfrí. Sagan hefst í lítilli höfn ekki langt frá Kaupmannahöfn. Blikinn er engin glæsiskúta en þeir eru búnir að mála hana og pússa svo þeir geta lagt í hann. Feðgarnir flækjast á milli hafna og skoða sig um og dag einn rekast þeir á gamlan vin sem þeir kynntust í fyrri bókinni um þá bræður. Með honum er skuggalegur maður sem þeir kannast ekki við en eiga eftir að lenda f vandræðum með síðar. Bræðurnir hafa báðir mjög fjörugt ímyndunarafl og sjá smyglara og glæpamenn í öllum hornum en gamanið tekur að kárna þegar þeir lenda fyrir alvöru í klóm slíkra manna. Það bjargar þeim hvað þeir eru úrræðagóðir og duglegir og þeir komast nánast óskaddaðir frá hildar- leiknum. Sárin eru þó fljót að gleymast þegar ástin tekur völdin og allt fellur í ljúfa löð. Það er Beggi, yngri strákurinn, sem segir söguna á „unglingamáli". Höfundi tekst að draga upp nokkuð sannfærandi mynd af unglingi sem er að taka út ákveðinn þroska og uppgötva eigin getu og hæfileika. Þetta er karlaheimur og svolítið ber á karlrembu enda bara að duga eða drepast úti á sjó í vondum veðrum. Sem leikmaður sé ég ekki betur en höfundur fjalli um siglingar og allt sem þeim viðkemur af mikilli kunnáttu. Lýsingar á vinnubrögð- um til sjós og sjóganginum í vondum veðrum eru svo góðar að lesandi fær nánast saltbragð í munninn. Málfar á sögunni er hins vegar mein- gallað og virðist dönskukunnátta höfundar m.a. flækjast fyrir honum. Hann talar um góða „ímyndun“ þegar hann meinar hugmynd og notar síðan „meinar" I merkingunni telur/álítur. Einnig gerir höfundur mik- ið að því að þýða dönsk sérnöfn en notar svo orðið kanal um síki. Það er spurning hvort þetta hefði ekki átt að slípast af við prófarkalestur. Mér fmnst þessi sjóarahugmynd Eyvindar ágætt innlegg í þröngan heim barna- og unglingasagna nútímans en úrvinnsla og frágangur hefði mátt vera betri. Eyvindur P. Árnason Meðan skútan skríður Mál og menning 1995 Bókmenntir Oddný Ámadóttir UPPBOÐ Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Skógarhlíð 6, Reykjavík, sem hér segir, á eftir- farandi eignum: Hofsvallagata 58, þingl. eig. Jón Krist- insson og Unnur Steingrímsdóttir, gerðarbeiðandi Landsbanki íslands, lögfræðideild, miðvikudaginn 6. des- ember 1995 kl. 10.00. Hyrjarhöfði 6, hluti, þingl. eig. Vagnar og Þjónusta h£, Kópavogi, gerðar- beiðandi sýslumaðurinn í Kópavogi, miðvikudaginn 6. desember 1995 kl. 10.00. Lækjarsel 4, þingl. eig. Ævar Breið- Qörð, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður verslunarmanna, miðvikudaginn 6. desember 1995 kl. 10.00. Merkjateigurð, Mosfellsbæ, þingl. eig. Bemharð Linn, gerðarbeiðandi Húsa- smiðjan hf., miðvikudaginn 6. desemb- er 1995 kl. 10.00. Njálsgata 36, 2. hæð, þingl. eig. Bragi S. Heiðberg, gerðarbeiðandi Valgarð Briem, miðvikudaginn 6. desember 1995 kl. 10.00. Rauðalækur 24, hluti, þingl. eig. Ág- úst M. Sigurðsson, gerðarbeiðendur húsbréfadeild Húsnæðisstofaunar og tollstjórinn í Reykjavík, miðvikudag- inn 6. desember 1995 kl. 10.00. Rauðás 14, íbúð á 3. hæð 0301 og rými í risi, þingl. eig. Klemens Ragnar Júl- ínusson og Halldóra María Hauks- dóttir, gerðarbeiðendur Byggingar- sjóður ríkisins og tollstjórinn í Reykjavík, fimmtudaginn 7. desember 1995 kl. 10.00.____________________ Seljabraut 34, hluti, þingl. eig. Sigurð- ur Jónsson, gerðarbeiðandi Gjald- heimtan í Reykjavík, miðvikudaginn 6. desember 1995 kl. 10.00. Skógarhlíð 10, 820 fin vinnslusalur t.h., merkt 02-0101, þingl. eig. ísam hf. og Norðurleið-Landleiðir hf., gerð- arbeiðandi Islandsbanki hf., miðviku- daginn 6. desember 1995 kl. 10.00. Skólavörðustígur 38, hluti, þingl. eig. Viðar Friðriksson, gerðarbeiðandi Gjaldheimtan í Reykjavík, miðviku- daginn 6. desember 1995 kl. 10.00. Æsufell 4, hluti í íbúð, merkt 6F, þingl. eig. Jón Már Ólason, gerðar- beiðendur Gjaldheimtan í Reykjavík og Æsufell 4, húsfélag, miðvikudaginn 6. desember 1995 kl. 10.00. SÝSLUMAÐUEINN í REYKJAVÍK UPPB0Ð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Bláskógar 12, þingl. eig. Gunnar Dag- bjartsson, gerðarbeiðandi Sparisjóður Reykjavíkur og nágr., miðvikudaginn 6. desember 1995 kl. 15.00. Dragavegur 11, þingl. eig. Sonja Berg, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður rík- isins, fimmtudaginn 7. desember 1995 kl. 16.30. Furugerði 15, íbúð 2. hæð til h., þingl. eig. Þröstur Pétursson, gerðarbeið- andi Lífeyrissjóður verslunarmanna, fimmtudaginn 7. desember 1995 kl. 14.30.____________________________ Hólaberg 42, þingl. eig. Kristjana Sig- urðardóttir, gerðarbeiðendur íslands- banki hf. og Pétur Þorgrímsson, mið- vikudaginn 6. desember 1995 kl. 13.30. Hverfisgata 82, íbúð 034)1, þingl. eig. G. Karlsson, heildverslun, gerðarbeið- endur Gjaldskil sf., Kaupþing h£, Lög- mannsstofan hf. og sýslumaðurinn í Keflavík, fimmtudaginn 7. desember 1995 kl. 16.00.___________________ Kelduland 15, íbúð á 2. hæð t.h., þingl. eig. Súsanna Erla Oddsdóttir, gerðar- beiðandi Gjaldheimtan í Reykjavík, fimmtudaginn 7. desember 1995 kl. 15.00. SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK | UPPB0Ð f Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Bæjarhrauni 18, Hafnarfirði, 2. h., sem hér segir, á eftirfarandi eignum: Grænakinn 9,0201, Hafnarfirði, þingl. eig. Guðmundur J. Ólaísson, gerðar- beiðendur Bæjarsjóður Hafnai'fjarðar, Húsnæðisstofnun ríkisins og Islands- banki h£, 5. desember 1995 kl. 14.00. Hellisgata 27,0101, Hafharfirði, þingl. eig. Ingólfur Amarson, gerðarbeið- andi Bæjarsjóður Hafnarfjai'ðai', 5. desember 1995 kl. 14.00. Hjallabraut 15; 0101, Hafharfirði, þingl. eig. Sigursteinn Húbertsson, gerðarbeiðandi Bæjarsjóður Hafiiar- fjarðar, 5. desember 1995 kl. 14.00. Hnotuberg 7, 0101, Hafiiarfirði, þingl. eig. Rannveig Ingvarsdóttir og Hörð- ur Siguijónsson, gerðarbeiðendur Búnaðarbanki íslands, Húsnæðis- stofnun ríkisins og íslandsbanki hf. 532, 5. desember 1995 kl. 14.00. Hrísmóar 2A, 0304, Garðabæ, þingl. eig. Guðrún Hinriksdóttir og Sveinn Magnússon, gerðarbeiðandi sýslu- maðurinn í Kópavogi, 5. desember 1995 kl. 14,00.____________________ Hverfisgata 17, 0201, Hafnarfirði, þingl. eig. Hanna Jónsdóttir, gerðar- beiðandi Bæjarsjóður Hafnarfjarðar, 5. desember 1995 kl. 14.00. Linnetsstigur 9A, 0101, Hafharfirði, þingl. eig. Sigrún Benediktsdóttir, gerðarbeiðandi Sameinaði lsj., 5. des- ember 1995 kl. 14.00. Miðskógar 6, Bessastaðahreppi, þingl. eig. Kristján Sveinbjömsson, gerðar- beiðandi Húsnæðisstofnun ríkisins, 5. desember 1995 kl. 14.00. Miðvangur 41, 0201, Hafnarfirði, þingl. eig. Inga Þuríður Þorláksdóttir, gerðarbeiðandi Húsnæðisstofhun rík- isins, 5. desember 1995 kl. 14.00. Reykjavíkurvegur 21, 0201, Hafnar- firði, þingl. eig. Jóhanna Guðbjörg Ámadóttir, gerðai'beiðendur Bæjar- sjóður Hafnarfjarðar og Húsnæðis- stofnun ríkisins, 5. desember 1995 kl. 14.00. Skeiðarás 10, 2. eining 1. hæð, Garðabæ, þingl. eig. Sjóvélar hfi, gerð- arbeiðandi Iðnlánasjóður, 5. desember 1995' kl. 14.00._______________ Smáraflöt 12, Garðabæ, þingl. eig. Karl Magnús Karlsson, gerðarbeið- andi Húsnæðisstofhun ríkisins, 5- des- ember 1995 kl. 14.00. Ásbúðþð, Garðabæ, þingl. eig. Svavar Helgi Ásmundsson og Guðrún P. Hin- riksdóttir, gerðarbeiðandi Búnaðar- banki íslands, 5. desember 1995 kl. 14,00,_________________________ SÝSLUMASURINN í HAFNARFIRSI UPPB0Ð Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Breiðvangur 10, 0401, Hafharfirði, þingl. eig. Brynja Björk Kristjánsdótt- ir, gerðarheiðendur Bæjarsjóður Hafiiarfjarðar, Húsnæðisstofhun rík- isins og Vátryggingafélag íslands hf., 5. desember 1995 kl. 15.30. Drangahraun 5, Hafnarfirði, þingl. eig. Þakpappaverksmiðjan hf., gerðar- beiðandi Bæjarsjóður HafhíU'fjarðar, 5. desember 1995 kl. 9.30. Hverfisgata 41, 0101, Hafharfirði, þingl. eig. Guðmundur Smári Guð- mundsson, gerðarbeiðendur Hús- næðisstofnun ríkisins, Kristinn Hall- grímsson og Samskip h£, 8. desember 1995 kl. 13.30.___________________ Hverfisgata 9, Hafnarfirði, þingl. eig. Sigmundur H. Valdimarsson-og Birg- itta Helgadóttir, gerðarbeiðandi Is- landsbanki hf. 513, 5. desember 1995 kl. 15.00.________________________ Háaberg 3, Hafnarfirði, þingl. eig. Skúli Óskarsson, gerðarbeiðendur Bæjarsjóður Hafníirfjarðar og Hús- næðisstofhun ríkisins, 8. desember 1995 kl. 14,00, _______________ Kelduhvammur 11, 0101, Hafnarfirði, þingl. eig. Ólöf Þórólfsdóttir og Hörð- ur Einarsson, gerðarbeiðendur Eftir- launasj. Hafnarfjarðar, Húsnæðis- stofhun ríkisins og Lífeyrissjóður verslunarmanna, 5. desember 1995 kl. 10.00. Kríunes 4, Garðabæ, þingl. eig. Magn- ús Stefánsson, gerðarbeiðendur Gjald- heimtan í Garðabæ, Sameinaði lsj. og sýslumaðurinn í Halharfirði, 5. des- ember 1995 kl. 11.00. Pálshús, lóð úr landi Pálshúsa, Garðabæ, þingl. eig. Jón Guðmunds- son, gerðarbeiðendur Gjaldheimtan í Garðabæ og sýslumaðurinn í Hafnar- firði, 8. desember 1995 kl. 10.00. Skeiðarás 4,0101, Garðabæ, þingl. eig. Skeiðarás h£, gerðarbeiðandi íslands- banki hf. 532, 5. desember 1995 kl. 11.30.____________________________ Sævangur 22, Hafharíirði, þingl. eig. Ásgeir Friðþjófsson, gerðarbeiðendur Bæjarsjóður Hafiiarfjarðar og sýslu- maðurinn í Kópavogi, 5. desember 1995 kl. 10.30.___________________ Þrastanes 15, Garðabæ, þingl. eig. Sig- urður H. Hilmarsson, gerðarbeiðend- ur Gjaldheimtan í Garðabæ, Hús- næðisstofhun ríkisins og íslandsbanki hf. 513, 8. desember 1995 kl. 11.00. SÝSLUMAÐURINN í HAFNARFIRÐI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.