Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1995, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1995, Blaðsíða 42
50 innlent fréttaljós LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1995 JjV Ríkisstjórnin komst hjá því að leggja nokkuð til lausnar í kjaramálunum nú annað.en það sem hún hafði lofað við gerð febrúarsamninganna. Verkalýðsfor- ingjarnir áttu marga fundi með oddvitum ríkisstjórnarinnar í vikunni sem er að líða og er þessi mynd af einum þeirra. DV-mynd BG Reiði hjá Verkamannasambandsmönnum vegna niðurstöðu í launanefnd: ætti að segja sig úr ASÍ. „Ég svaraði því þannig að það væri mjög stutt í næsta þing Al- þýðusambandsins og nær væri að taka til hendinni og rétta kúrsinn af fyrir það þing og gera málin upp á þinginu. Það verður haldið áður en þessir kjarasamningar renna út,“ sagði Kristján Gunnarsson. Benedikt Davíðsson sagðist full- komlega vita um þá miklu óánægju sem væri út um allt land. Það hefðu bara ekki verið forsendur til staðar að segja kjarasamningunum upp nú. Þess vegna hefði orðið að taka þess- ari lendingu. „Gæslumenn" lífeyrissjóðanna Því er haldið fram af ýmsum verkalýðsforingjum að þeir sem ráða ferðinni hjá lífeyrissjóðum landsins ráði einnig ferðinni í verkalýðsmálunum. Benedikt Dav- íðsson var formaður stjórnar Sam- taka almennra lífeyrissjóða, sem eru afskaplega voldug samtök með alla milljarðana á bak við sig. For- maður stærsta verkalýðsfélags landsins, VR, er Magnús L. Sveins- son. Hann er jafnframt formaður stjórnar Lifeyrissjóðs verslunar- manna sem er stærsti einstaki líf- eyrissjóður landsins. Ásmundur Stefánsson, fyrrverandi forseti ASÍ, fór beint í bankastjórastól hjá ís- Klofningurinn innan ASI kominn upp á yfirborðið - „gæslumenn" lífeyrissjóðanna sagðir hafa sigrað Allt gekk eftir í byrjun nóvember var skrifað fréttaljós í DV um stöðuna í kjaramálun- um. Þar var reynt að spá fyrir um hvernig þróun mála yrði og hefur það bókstaflega allt gengið eftir. Fréttaljósinu lauk svona: „Nú hefjast mikil fundahöld innan launanefndarinnar. Hún er skipuð þremurfulltrúum frá verkalýðshreyfingunni og þremurfrá vinnuveitend- um. Gera má ráð fyrir einhverjum þæfingi til að byrja með. Síðan kæmi ekki á óvart þótt ríkisstjórnin kæmi að lausn málsins. Samið verði um ein- hverja matarverðslækkun í gegnum GATT-samninga eða með öðrum hætti. Jafnvel getur verið að einhver breyting verði gerð á fjárlagafrum- varpinu til að þóknast verkalýðshreyfingunni sem hefur gagnrýnt frum- varpið mjög. Sú launahækkun sem koma á um næstu áramót heldur sér. Hugsanlegt er að eitthvað verði gert sérstaklega fyrir þá allra lægst launuðu. Otrúlegt er að nokkur kauphækkun komi til. Ef menn reyndu kauphækkun í krónum talið til þeirra lægst launuðu færi allt af stað. All- ar aðrar stéttir í landinu mundu heimta sitt. Líka þær sem fengið hafa mect eftir aó aðilar vinnumarkaðarins sömdu í febrúar. Þess vegna spái ég því að þessi leið verði farin sem að framan er lýst eða að lausnin verði mjög nærrí henni. Átök á vinnumarkaði þykir mér ólíklegasti kosturinn." -S.dór Enn einu sinni hafa flestir leið- togar verkalýðshreyfingarinnar kyngt stóru orðunum í sambandi við kjarasamninga. I hvert sinn sem kjarasamningalotan hefst eru menn uppi með stór orð um að nú skuli kjörin bætt, nú verði barist tii þrautar. Síðan gerist heldur fátt. Þannig hefur það verið í meira en 15 ár og þannig varð það líka að þessu sinni eftir allan þann óróa sem ver- ið hefur á vinnumarkaðnum í allt haust. Aðeins foringjar Verkamanna- sambandsins hafna niðurstöðu launanefndar og Björn Grétar, for- maður þess, skrifaði ekki undir álit hennar. Aðrir hafa kyngt stóru orð- unum frá í haust. í haust, þegar alþingismenn, ráð- herrar og embættismenn fengu 17 til 62 þúsund króna kauphækkun á mánuði, reis verkalýðshreyfingin upp og mótmælti ranglætinu sem kallað var. Útifundir voru haldnir víða um land í nafni Alþýðusam- bands íslands og fólk var fullt af heilagri reiði og heimtaði launa- hækkanir tU handa félögum innan ASÍ. Launajöfnunarstefnan hefði verið rústuð og ekkert nema umtals- verðar bætur kæmu til greina og skorað var á verkalýðsfélögin að segja upp kjarasamningum. Verkamannasambandið hélt framkvæmdastjórnarfund í Vest- mannaeyjum seint í september og þar var samþykkt að skora á aðild- arfélög VMSÍ að segja upp samning- um. Benedikt Davíðsson, forseti Al- þýðusambands íslands, tók undir þetta og sagði í samtali við DV. „Tónninn sem Verkamannasam- handið sendi frá Eyjum hljómar um allt land. Ég heyri það á formönnum landssambanda innan ASÍ að þessi sami tónn hljómar um allt land.“ I allt haust hafa verkalýðsforingj- ar tjáð sig í fjölmiðlum um að segja ætti samningum upp. Þessi launaó- jöfnuður yrði fekki þolaður lengur. Alveg fram á síðustu daga var bú- ist við að Benedikt Davíðsson og Bjöm Grétar myndu standa saman innan launanefndarinnar um að segja samningunum upp. Búist var við að Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, formaður Landssambands verslun- armanna, yrði því andvíg vegna þess að Verslunarmannafélag Reykjavikur var því andvígt. En það fór á annan veg. Benedikt og Ingi- björg mynduðu meirihluta gegn Birni Grétari og tóku undir með vinnuveitendum og forsætisráð- herra um að ekki væru forsendur til að segja kjarasamningunum upp. Rýr uppskera Það er ef til vill ekki að undra þótt leiðtogar Verkamannasam- bandsins séu svekktir. Það er svo ósköp lítið sem út úr öllu brölti haustsins kemur. Það sem vinnu- veitendur leggja til launabóta næsta árið er 7 þúsund króna eingreiðsla nú í desember eða 583 krónur á mánuði sé þessu deilt yfir árið. Ef síðan bætast við 3.700 krónur sem koma samkvæmt febrúarsamning- unum um áramót og 4 þúsund króna eingreiðsla sem kemur í desember á næsta ár-i þá nemur launahækkun verkafólks til loka samningstímans 1225 krónum á mánuöi. I haust fengu alþingismenn 17 þúsund króna hækkun á mánuði, auk kostn- aðargreiðslna, ráðherrar 50 þúsund króna launahækkun á mánuði og forsætisráðherra 62 þúsund krónur. Ýmsir háttsettir embættismenn fengu svipaðar hækkanir. Það sem ríkisstjórnin lagði til lausnar kjaramálunum á dögunum er alveg það sama og hún lofaði í sambandi við febrúarsamninga. Það sem gerst hafði var að hækkun tryggingabóta var tekin út í fjárlaga- frumvarpinu fyrir næsta ár og sömuleiðis átti að lækka persónu- frádráttinn. Hætt var við þetta og verkalýðshreyfingin • samþykkti þetta. Klofningurinn upp á yfirborðið Guðmundur J. Guðmundsson, for- maður Dagsbrúnar, hefur sagt að innan ASÍ sé kloíhingur. Hann sagði í samtali við DV fyrr á þessu ári að allt væri gert til að halda honum leyndum. Reynt væri að láta líta svo út sem allt væri slétt og fellt. Nú er komið í ljós að þetta er rétt hjá Guð- mundi J. Klofningurinn er til stað- ar. Hann er kominn upp á yfirborð- ið í sambandi við lausn kjaramál- anna nú. „Það er mikill hiti innan verka- lýðshreyfingarinnar, reiði og ágreiningur uppi,“ sagði Björn Grét- ar Sveinsson, formaður Verka- mannasambandsins, í samtali við DV í gær. Sumir halda því frám að hætta sé á að Alþýðusambandið klofni og Verkmannasambandið segi sig úr ASÍ. „Það vona ég að verði ekki. Það rignir aldrei svo mikið að það stytti ekki upp um síðir," sagði Björn Grétar. Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Kefla- víkur og nágrennis, segir forystu Al- þýðusambandsins ekki hafa haft þann kjark sem þurfti til að segja samningunum upp. Hann sagðist hafa heyrt þær raddir á fimmtudag, þegar niðurstaða launanefndar lá fyrir, að Verkamannasambandið landsbanka þegar hann hætti for- mennsku í ASÍ. Það ér að vísu kall- aður framkvæmdastjórastóll. Verka- lýðsfélögin eiga stóran hluta í þeim banka í gegnum Eignarhaldsfélag Alþýðubankans, auk þess sem bank- inn geymir mikið fé fyrir lífeyris- sjóðina. Þegar alþýðubandalagsmaðurinn Benedikt Davíðsson var kosinn for- seti ASÍ, á þingi ASÍ 1992, var það sjálfstæðismaðurinn Magnús L. Sveinsson sem var arkitektinn að því og sá er lagði harðast að Bene- dikt að taka starfið. Hann var jafn- framt einn harðasti talsmaður þess að segja ekki upp kjarasamningum nú. Á ASÍ-þinginu var Kári Amór Kárason, ungur formaður Verka- lýðsfélags Húsavíkur, talinn mjög efnilegur í forsetastarfið. Hann er vel menntaður og hæfur maður. Hann var hins vegar sagður enn of ungur. Hans tími kæmi eftir 4 ár. Mjög skömmu eftir ASÍ-þingið hætti Kári Arnór formennsku í Verka- lýðsfélaginu á Húsavík og tók við framkvæmdastjórastarfinu hjá Líf- eyrissjóði Norðurlands. Nú fyrir skömmu var hann orðaður opinber- lega við forsetastólinn hjá ASÍ á næsta ári og tók því ekkert ólíklega í samtali við DV. Hann hefur haft tæp þrjú ár til að læra á lífeyris- sjóðamálið og telst því útlærður til forseta ASÍ. Eign lífeyrissjóðanna í landinu er vel á þriðja hundrað milljarðar króna, eða hálf þriðju fjárlög ríkis- ins. Fyrir þá sem gæta þessara fjár- muna er stöðugleiki og ró á vinnu- markaði afar mikilvægt. Verkfóll og átök á vinnumarkaðnum gætu rask- að miklu fyrir þetta fjármálaveldi sem hefur fjárfest í sjóðum og fyrir- tækjum um allt land. Niðurstaðan í launanefnd er því lífeyrissjóðs- mönnum mjög að skapi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.