Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1995, Side 52
.. .að draugabaninn og gaman-
leikarinn Dan Aykroyd hefði
verið staðinn að því að laumast
inn f herbergi 18 ára leiklistar-
nema í háskóla í Boston. Stúlk-
an býr á heimavist skóla og var
staðin að kossafiangsi með
Aykroyd, sem er 43 ára, giftur,
tveggja barna faðir.
.. .að Sandra Bullock hefði van-
ið komur sínar á knæpu eina í
stórborg þar sem verið er að
taka upp nýja mynd sem hún
leikur í. Urmull af karlmönnum
frétti af því og fór að venja kom-
ur sínar þangað og gera hosur
sfnar grænar fyrir henni.
Söndru leiddist athyglin og
skipti um knæpu og sækir nú
eina þar sem samkynhneigðir
venja komur sínar. Þar fær hún
frið fyrir körlunum en ekki fylgdi
sögunni hvort stelpurnar létu
hana vera.
. . .að Arnold Schwarzenegger
væri sérstaklega ánægður með
frammistöðu konu sinnar,
Mariu Shriver, f ár. Hann sást á
dögunum í skartgripaverslun í
Beverly Hills þar sem hann
keypti fimm milljón króna arm-
band í afmælisgjöf fyrir frúna.
. . .að verið væri að gera nýja
framhaldsþætti um Þyrnifugl-
ana eða The Thornbirds sem
Richard Chamberlain og Rachel
Ward léku í. Chamberlain fer
sem fyrr með aðalhlutverkið en
Amanda Donohoe tekur við
hlutverki Rachel Ward.
George Clooney, einn aðalleikar-
anna í sjónvarpsþáttunum E.R. eða
Bráðavaktinni eins og þeir heita
upp á íslensku, hefur mátt muna
timana tvenna. Það var ekki fyrr en
byrjað var að framleiða Bráðavakt-
ina sem stjarna hans byrjaði að
Kyntröllið Clooney má muna tímana
tvenna.
skína. Fram að því hafði hann leik-
ið í nokkrum sjónvarpsþáttum og
örlög hans virtust ráðin sem B-
mynda leikara.
Faðir Clooney, sem er kaþólikki
af írskum uppruna, var sjónvarps-
stjama í Kentucky. Clooney ólst því
upp i umhverfi skemmtanaiðnaðar-
ins en fóðursystir hans var fræg
söngkona og ein af ástkonum Bobby
Kennedys. Frami foður hans beið
hins vegar skipbrot þegar Clooney
var ungur að ámm og virtist fjöl-
skyldan hvergi festa rætur. Eftir að
hafa búið í stórhýsum í barnæsku
mátti Clooney þola það að þurfa að
flytjast í hjólhýsi með fjölskyldu
sinni. Eftir þrjú ár í fyrsta bekk
menntaskóla, með drykkjuskap sem
aðalfag, hætti Clooney námi og ák-
vað að freista gæfunnar í
Hollywood.
Um miðjan seinasta áratug flutt-
ist hann til föðursystur sinnar, Ros-
emary, sem hafði dregið sig í hlé frá
„Eg gerði ekki neitt annað þótt ég hefði aðeins verið með tíunda hluta þeirra kvenna sem
ég hef verið orðaður við,“ segir Clooney.
En öll él styttir upp
um síðir og hann
fékk hlutverk í
sjónvarpsþáttunum
Sisters eða Systum-
ar, eins og þeir
heita á ástkæra yl-
hýra. Loks fékk
hann í hendur
handrit að sjón-
varpsþáttum Mich-
ael Crichton’s:
Bráðavaktin og sá
að eitt hlutverkið í
þáttunum var skap-
að fyrir hann.
Clooney er sann-
kallað kyntákn eftir
að hanp náði
heimsfrægð með
leik sínum í Bráða-
vaktinni. Konur á
öllum aldri halda
vart vatni er þær
sjá kappann en
sjálfur segist hann
ekki ætla að binda
aftur sig, en Cloon-
ey er fráskilinn,
fyrr en hann finni
þá einu réttu. Und-
anfarið hefur hann
verið orðaður við
fjölda kvenna. Má
þar nefna Courtney
Cox, Kimberly
Russel, Lisu
Kudrow, Karen
Duffy og fleiri.
Sjálfur segir hann
að ef hann væri
með tíunda hluta
þeirra kvenna sem
hann er orðaður við
þá gerði hann hann
ekkert annað.
söngferli sínum eftir áralanga lyfja-
misnotkun og snúið sér að uppeldi
barna sinna. Hann bjó ekki lengi hjá
Rosemary. Segir hana og fjölskyldu
hennar hcifa umgengist sig eins og
Öskubusku og því flutti hann til fé-
laga síns og bjó þar í herbergis-
kompu, sem hann sjálfur segir ekki
hafa verið stærri en fataskápur. Um
það leyti byrjaði hann að drekka,
vann sem byggingaverkamaður, fór
á reiðhjóli í atvinnuviðtöl. Loks
komst hann á samning hjá ABC
sjónvarpsstöðinni.
Komið víða við
Samningurinn leidai til þess að
hann byrjaði að leika í sjónvarps-
þáttunum Fact of Life, Roseanne.
Clooney hefur líka gert stór axarsk-
öft á ferli sínum til dæmis var hann
rekinn úr sjónvarpsþáttunum Baby
Talk eftir að hann lenti í rimmu við
framleiðandann, þá hafnaði hann
hlutverki í kvikmynd Quentin Tar-
antino, Reservoir Dogs, á þeim for-
sendum að þarna væri á ferðinni
enn einn B-mynda framleiðandinn.
Eftir þetta nagaði Clooney sig í
handarbökin og skrapaði botninn.
Fékk magasár og drakk sig fullan.
Hann fékk hlutverk í myndum á
borð við: Morðóðu tómatarnir snúa
aftur og Brimbrettafjör en missti
síðan hlutverk í myndinni Thelma
og Louise í hendur Brad Pitt, hlut-
verk sem gerði Brad Pitt að stjömu.
Annað tækifæri með
Tarantino
Nú er vegurinn beinn og breiður
fyrir Clooney. Hann hefur fengið
annað tækifæri til að starfa með
Tarantino en kvikmynd hans: From
Dusk Till Dawn verður tekin til sýn-
inga í desember. Þar fer Clooney
með aðalhlutverkið. Sjálfur segir
hann að myndin muni annað
tveggja: tryggja honum frama á
hvíta tjaldinu eða koma í veg fyrir
frekari frama - hann fái ekki fleiri
tækifæri og verði að láta sér nægja
sjónvarpið.
Eddie Murphy ásamt lífverði sínum.
iðsljós
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1995
Kyntáknið George Clooney má muna tímana tvenna:
Drykkjurútur með
magasár en svo birti
- hefur nýlokið við að leika í kvikmynd Tarantinos, From Dusk Till Dawn
Ólyginn sagði.
. . .að Anna Nicole Smith
strandvörður hefði verið flutt í
skyndi í sjúkrahús á dögunum.
Vinir hennar segja hana hafa
fengið mígrenikast en óvinir
hennar segja hana hafa ofnotað
lyf og áfengi.
Eddie Murphy talinn vera ræningi
Konu, sem var á ferðalagi 1 New
York, brá í brún fyrir nokkru þegar
tveir blökkumenn komu að henni
þar sem hún beið eftir lyftu.
Tímaritið Star greinir frá því þeg-
ar Gisela Klein, 48 ára þýsk kona,
beið eftir lyftu á Ritz Carlton hótel-
inu á Manhattan þegar tveir blökku-
menn, annar samanþjappaö vöðva-
tröll, komu úr herbergi sinu og
gengu að henni. Lyftan kom og
spurði þá annar þeirra, eins og
herramaður, á hvaða hæð Gisela
ætlaði, til að þrýsta á hnappinn fyr-
ir hana. Sú þýska féll á hnéin,
minnug frásagna um gífurlega
glæpaöldu í stórborginni, og báð
blökkumennina að þyrma sér, hún
ætti hvort eð er enga peninga.
Blökkumennirnir vissu ekki
hvaðan á sig stóð veðrið, hlóu fyrst
en uppgötvuðu síðan að angist kon-
unnar var raunveruleg og skýrðu þá
út fyrir henni að þeim gekk gott eitt
til að ýta á lyftuhnappinn fyrir
hana. Sögðu þeir á sér deili, annar
þeirra væri Eddie Murphy, heims-
frægur kvikmyndaleikari og
skemmtikraftur, og sá þrekvaxni líf-
vörður hans.
Gisela sagði í samtali við Star að
hún hafi hreinlega farið í kleinu
útaf misskilningnum. „Eddie
Murphy er í uppáhaldi hjá mér. Ég
bara þekkti hann ekki. Þeir hlógu
og héldu að ég væri að grínast. Ég
skammaðist mín svo.“
Eddie Murphy var hins vegar
ekki af baki dottinn. Þegar Gisela og
maðurinn hennar ætluðu yfirgefa
hótelið og gera upp reikninga sína
kom í ljós að Murphy hafði greitt
alla þeirra reikninga og skilið eftir
kort sem á stóð:
„Frú! Stefnumót okkar var eitt af
þeim skemmtilegustu sem ég hef
upplifað. Aðeins ef allar konur féllu
á kné þegar þær hittu mig. En þar
sem þú hafðir ekki jafn gaman af
stefnumótinu og ég og félagi minn
þá borgaði ég hótelreikninginn fyrir
þig-“