Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1996, Side 14
14
sælkerinn
LAUGARDAGUR 30. MARS 1996
irf
Mangokjuklingur
hrísgrjónum og s
„Systir mín býr í London og við
höfum reynt að halda sambandi
með því skiptast á bréfum. Þegar lít-
ið er í fréttum, tíminn lítill eða
andagiftin ekki upp á marga fiska
kemur fyrir að við sendum hvor
annarri uppskrift á póstkortum.
Eitt póstkort er mjög mátulegt fyrir
eina uppskrift og þannig kom þessi
uppskrift uþprunalega til mín en ég
Lambakjöt
með jógúrt
- fyrir fjóra
Hægt er að matreiða lamba-
kjöt á marga vegu. Hér kemur
uppskrift að auðveldum og
bragðgóðum lambakjötsrétti með
jógúrt, hvítlauki og valhnetu-
kjömum.
500-600 g beinlaust lambakjöt
1 stór laukur
2 hvítlauksrif
1 steinselja
ferskt eða þurrkað koriander
1 rauð paprika
1 hnefi hakkaðir
valhnetukjarnar
2í2 dl jógúrt
2 msk. olía
salt
pipar
Aðferðin
■ Hreinsið kjötið og skerið það í
2 cm stóra teninga. Skerið niður
lauk, hvítlauk, steinselju og
koriander. Hitið olíuna í potti og
brúnið kjötið. Takið kjötið úr
pottinum og brúnið lauk og hvít-
lauk. Setrjið kjötið aftur í pottinn
og bætið steinselju, koriander og
jógúrt út í.
Látið krauma stutta stund og
bætið út í niðurskorinni papriku
og grófúm valhnetukjamabitum.
Kryddið.
Leggið lokið á pottinn og látið
réttinn krauma við lítinn hita í
um 45 mínútur. Borið fram með
hrísgrjónum og brauði. -GHS
Panasonic
HiFi myndbandstæki HD600
Nicam HiFi stereo, 4 hausa Long Play, Super Drive,
Clear view control, fjarstýringu, 2x Scart tengi ásamt
þvi að sýna allar aðgerðir á skjá. HD6PO fékk 10 fyrir
myndgæði, og var valið besta fjölskyldu- og
heimabiómyndbandstækið
Tækið endurgreitt!
Einn heppinn viðskiptavinur fær tæklð endurgrelttl
«*
10 leigumyndir frá
Videohöllinni fylgja Panasonic |
myndbandstækjunuml '
hef síðan breytt henni allri,“ segir
Anna Ágústsdóttir, sælkeri vikunn-
ar, en hún fékk aukaverðlaun fyrir
uppskrift sína að mangókjúklingi í
uppskriftasamkeppni Vöku-Helga-
fells og Manneldisráðs.
Anna segir að upprunalega upp-
skriftin sé alveg prýðileg en bara
allt öðruvísi en verðlaunauppskrift-
in. Hún segist vera búin að senda
systur sinni þá uppskrift sem hlaut
verðlaunin núna á póstkorti því að
hún eigi lítið sameiginlegt með upp-
runalegu uppskriftinni nema nafn-
ið. Mangókjúklingurinn er mikill
hollusturéttur, að sögn Önnu, og
vinsæll á heimilinu.
Uppskriftin
- fyrir fjóra
4 stórar skinn- og heinlausar
kjúklingabringur eða 5-6 litlar
1 mangóávöxtur
4 gulrætur
2 laukar
2-3 hvítlauksrif
1 msk. rifið, ferskt engifer
1 kjúklingateningur leystur
upp í % 1 af vatni
% tsk. turmerik
í2 tsk. cumin
Anna Ágústsdóttir fékk aukaverðlaun í uppskriftasamkeppni Vöku-Helga-
fells og Manneldisráðs fyrir uppskrift sína að hollum og bragðgóðum
mangókjúklingi. Hún er hér með dóttur sinni, Ingibjörgu Kjartansdóttur.
DV-mynd GS
1 tsk. koriander
í4 tsk. chiliduft ef vill
2 msk. olía
salt ef vill
Hreinsið gulrætur og brytjið gróft
og sjóðið í kjúklingasoðinu i stórum
potti. Saxið laukinn og látið krauma
í 1 msk. olíu án þess að brúnast.
Setjið gulræturnar og soðið, lauk-
inn, afhýddan og gróft skorinn
mangóávöxtinn, hvítlaukinn og rif-
ið engifer í blandara og maukið.
Skerið bringur í tvennt og brúnið
létt á pönnu í 1 msk. olíu og setjið í
pott ásamt maukinu og kryddinu
sem eftir er. Sjóðið í um það bil 40
mínútur eða þar til kjötið er gegn-
umsoðið. Borið fram með hrísgrjón-
um og salati.
Anna var ein fjögurra sem fengu
aukaverðlaun í uppskriftasam-
keppninni. Hinar verða kynntar hér
í blaðinu á næstu vikum. -GHS
matgæðingur vikunnar
JAPISS
3RAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI
Sigríður Zoega gefur uppskriftir að uppáhaldsréttunum sínum:
Sumarsalat frá Mónakó og
heitur sjávarráttur
„Við fengum þetta salat fyrst í
Mónakó fyrir 18 árum. Nafnið fór
eftir dögunum og breyttist alltaf
örlítið á hverjum degi þó að grunn-
uppskriftin væri sú sama. Á mánu-
degi var þetta salat kannski með
túnfiski, á þriðjudegi laxi og
kannski skinkubitum á miðviku-
degi og svo framvegis. Þetta hefur
verið partísalat hjá mér í fjölda
ára og mér fannst sniðugt að gefa
uppskriftina eftir öll þessi ár,“ seg-
ir Sigríður Zoega, matgæðingur
vikunnar að þessu sinni.
Sigríður gefur uppskrift að tveim-
ur réttum, köldu sumarsalati frá
Mónakó og uppáhaldsréttinum sín-
um, heitum sjávarrétti með humri,
rækjum eða hörpuskel. Báðir rétt-
irnir eru auðveldir í mat-
reiðslu og ljúffengir, ann-
aðhvort hversdags og þó
ekki síður þegar gestir
koma. Sigríður segir að
auðvelt sé að auka við
uppskriftina að salatinu
og segist hafa boðið upp á
það við hátíðleg tæki-
færi. Báðum upp-
skriftum er auð-
velt breyta.
Sumarsalat
frá Mónakó
1 iceberg-salat, rifið niður
1 púrrulaukur
4-6 tómatar
1 agúrka
4 harðsoðin egg, skorin
báta
3 avocado
200 g sveppir
Grænmetið er skorið niður
og því er blandað saman í
skál en ekki er gott að setja svepp-
ina saman við fyrr en alveg undir
lokin. Að lokum er sett út í:
A. 1 grillaður kjúklingur skorinn í
bita eða
B. 2 dósir túnfiskur eða
C. kaldur, soðinn lax eða silungur
sosa
1 dós sýrður
rjómi
1 tsk. Dijon
sinnep
1 hvít-
lauksrif,
pressað
oregano
Sigríður Zoéga er matgæðingur vikunnar. Hún gef-
ur uppskrift að sumarsalati frá Mónakó og heitum
sjávarrétti sem er í sérstöku uppáhaldi. Sjávarrétt-
inn má bera fram með grófu brauði eða grænu tagli-
atelli og pesto-sósu. DV-mynd BG
cayenne-pipar
salt
2-3 dropar af tabasco-sósu
Ef afgangur er af salatinu má
gjarnan setja það á pönnu með
ólífuolíu daginn eftir og hita upp.
Sigriður segir að í Mónakó hafi
einnig verið bananar og gular
baunir í salatinu en hún hafi
sleppt því og frekar notað avocado.
Uppáhaldsrátturinn
minn
4 stk. rauðlaukur
8 gulrætur, skornar í lengjur
250 g sveppir
brokkolí
2-3 hvítlauksgeirar, smátt
saxaðir
ólífuolía
Grænmetið er skorið nið-
ur. Allt er sett á pönnu
með ólífuolíu og
nokkrum dropum af
sesamolíu bætt út i.
Látið steikjast í örfá-
ar mínútur. Þar á eft-
ir er annaðhvort
humri, rækjum eða
hörpuskel eða öllu sam-
an bætt út í. Gæta verð-
ur þess að hafa það að-
eins í örskamma stund
svo að sjávarfangið
verði hvorki of þurrt
né of seigt.
Sjávarrétturinn er bor-
inn fram með soðnum
hrísgrjónum eða grænu
tagliatelle með pesto-sósu.
Gróft brauð er gjarnan
haft með. -GHS
I
Hvernig halda
skal fermingar-
veislu á
heimilinu
Um síðustu helgu sögðum við
frá bókinni Heimilisalmanaki
eftir Helgu Sigurðardóttur en
það kver var gefið út í Reykjavík
árið 1942. í bókinni eru ýmsir
fróðleiksmolar fyrir húsfreyjur,
uppskriftir að sjaldgæfum rétt-
um og ábendingar um það hvern-
ig halda skuli veislu. í bókinni er
! sérstaklega íjallað um fermingar-
og skírnarveislur. Við skulum
sjá hvað Helga hefur að segja um
þessi veisluhöld:
„Eru veizlur þessar stundum
haldnar í veitingahúsum við
mikinn og margvíslegan fögnuð.
Flestir foreldrar afsaka sig með
því, að ekki sé nægilegt húsrúm
heima. En sé um sæmileg húsa-
kynni að ræða, er enginn vandi
að halda matarveizlu og hafa
standandi borðhald, því að þá
geta helmingi fleiri borðað í einu
: en ef setið er til borðs,“ segir í
Heimilisalmanakinu.
Tvær stofur eru notaðar
Helga gerir ráö fyrir því að á
heimilinu séu tvær stofur, borð-
stofa og setustofa, og að bera eigi
fram kaldan mat. Á borðstofu-
borðið, sem látið er standa á
miðju gólfi, er raðað matarfötum
og skálum, brauði og smjöri. Á
smáborð við hliðina eru diskar í
stafla með pentudúkum á milli
og hnífapörum í röðum. Drykkj-
arföng erú látin á annað smá-
borð. Ef nægilegt rúm er á mat-
arborðinu eru diskarnir og
drykkjarfóngin einnig þar.
„Húsmóðirin biður því næst
gestina að gjöra svo vel að taka
sér diska og áhöld, og hver tekur
j svo þann mat, sem hann hefir
löngun til, gengur þvi næst inn í
hina stofuna og situr þar eða
stendur eftir ástæðum og borðar.
Hver og einn sækir sér svo meiri
mat og drykkjarföng eftir vild og
lætur að endingu notuðu áhöldin
á borðstofuborðið," segir Helga
og bætir við að á sama hátt megi
bera fram miðdegisverð eða kaffi
og kökur.
Frjálslegt borðhald
. „Borðhald þetta er mjög frjáls-
mannlegt og skemmtilegt. Þarna
geta þeir verið saman, sem kæra
sig um, og undantekningarlaust
í verða viðræðurnar skemmtileg-
ar, og gestirnir geta valið sjálfir
á milli réttanna og borðað það,
sem þeim fellur bezt í geð,“ segir
í bókinni og bætt við:
„En auðveldast er þó slíkt
borðhald fyrir húsmóðurina,“
segir hún.
Áfagrautur
í Heimilisalmanakinu er fjöl-
breytt úrval af sjaldgæfum upp-
skriftum. Við kynnum hér upp-
skrift að áfa- og súrmjólkur-
graut.
% 1 áfir eða súrmjólk
1—1% 1 mjólk
250 g heilhveiti eða 220 g
hrísmjöl
30 g smjörlíki
l'/2 tsk. salt
Hveiti er sett í pott og áfunum
hrært út í smátt og smátt. Hitað
og stöðugt hrært í á meðan.
Heitri mjólk er hrært út í þar til
grauturinn er hæfilega þykkur
og soðiö í 4-5 minútur. Smjörlík-
ið og saltið látið út í. Grauturinn
er borðaður meö saft.
Rúgbrauðstoppar
250 g rifið rúgbrauð
75 g sykur
100 g smjörlíki
ÍRúgbrauði og sykri er blandað
saman og það brúnað í smjörlíki
á pönnu þar til byrjar að harðna.
Sett í eggjabikara eða lítil mót.
(Borðað með mjólkursúpum eða
heitri mjólk. -GHS