Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1996, Síða 15
LAUGARDAGUR 30. MARS 1996
15
Kristbjörg Kjeld leikkona:
Ávarp á
alþjóðaleik-
húsdaginn
Vegna mistaka vantaði hluta af
ávarpi Kristbjargar Kjeld leikkonu
sem birtist í DV þann 27. mars sl.
Kristbjörg er beðin velvirðingar á
þessum mistökum og er ávarpið
endurbirt í heild sinni.
„í dag, 27. mars, er alþjóðaleik-
húsdagurinn. Leikhúsfólk um allan
heim staldrar við í dag og hugar að
hlutverki leikhússins.
í nútímasamfélagi á leikhúsið í
stöðugt harðnandi samkeppni við
alls konar afþreyingarefni. Þess
vegna þarf leikhúsið að marka skýrt
sína sérstöðu.
Leiklistin á rætur í trúarþörf og
þeirri viðleitni mannsins að túlka
þessa þörf - gefa henni form. Leik-
list er þvi í innsta kjarna trúarat-
höfn - ritual.
í aldanna rás hefur leiklistin fjali-
að um stöðu mannsins í sköpunar-
verkinu, sannleiksleitina. Sannleik-
ann, sem gerir manninn frjálsan. Á
þeim sjaldgæfu stundum þegar list
leikhússins nær að snerta okkur
djúpt, upplifum við sannleikann.
Við verðum fyrir einstakri reynslu
sem nærir okkrn- andlega, gefur
okkur styrk. Þess vegna lifir leik-
húsið enn í dag.
En það er ekki bara listamaður-
inn sem er aflgjafi leikhússins,
áhorfandinn á þar einnig sinn þátt
og sá þáttur helgast af kröfunni um
andlegar þarfir, þannig er áhorfand-
inn samofinn leikhúsinu - ábyrgð
beggja er mikil. Ábyrgð leikhússins
er að feta braut sannleikans og
ábyrgö áhorfandans er að leikhúsið
víki ekki af þeirri braut.
Á tímum vaxandi hraða og
skyndilausna gefst minni og minni
tími til að sinna andlegum þörfúm.
Þegar svo er komið er full ástæða til
að staldra við og spyrja: Speglar
leikhúsið líf okkar - sannleikann?
Spyrjum þessarar spumingar,
leikhúslistamenn jafnt sem áhorf-
endur. Spumingin er brýn!“
Kristbjörg Kjeld
hljómtækjasamstæða SC CH72
Samstæða með 3diska spilara,
kassettutæki, 140W.surround
magnara, tónjafnara, útvarpi,
hátölurum og fjarstýringu.
BRAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI