Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1996, Qupperneq 29
JL>V LAUGARDAGUR 30. MARS 1996
29
Einkaviðtal DV við Robert Downey Jr.
Skemmtilegasta mynd
sem ég hef unnið að
Robert Downey Jr. Einn athyglisverðasti leikarinn í Hollywood af yngri kyn-
slóðinni.
Robert Downey Jr. er töffaralegur
en ósköp blátt áfram náungi. Hann
er klæddur í bláar gallabuxur og
bláa skyrtu og hann er með efstu
tvær tölurnar fráhnepptar. Hann
virkar svolítið pattaralegur á mig;
ekki feitur en ekki beint grannur
heldur. Það á ágætlega við þessa
mynd af honum að þegar hann
gengur inn í herbergið heldur hann
á kúífullum disk af pasta. Klukkan
er tólf á hádegi og Downey er svang-
ur eftir erfiðan morgun með blaða-
mönnum.
Á meðan viðtalið fer fram smjatt-
ar hann á þessu, að því er virðist,
gómsæta pasta og í annarri hend-
inni er servíetta sem hann notar til
að þurrka munnvikin af og til.
Hann biðst afsökunar á þessu um
leið og hann heilsar en það er ekki
eftir neinu að bíða, Downey er al-
vanur því að tala og borða um leið.
Þetta er ekki fyrsta viðtalið sem
hann fer í í hádegismatnum.
Besti vinurinn hommi
- í Home for the Holidays leik-
urðu samkynhneigðan mann.
Hvernig fórstu að því að búa þig
undir hlutverkið?
„Einn besti vinur minn er hommi
og þegar ég las handritið þá hugsaði
ég að þetta gæti verið mjög gott og
skemmtilegt hlutverk að leika.
Þessi vinur minn var sammála mér
og sagði sem svo: passaðu þig bara
á að verða okkur ekki til skammar.
Það sem ég furða mig samt mest á
er að árið 1995 erum við enn að skil-
greina fólk eftir kynhegðun sem
mér finnst fáránlegt. Ef ég get lagt
mitt af mörkum til að reyna að
losna við þessa skilgreiningu þá er
ég glaður. Þessi hommahræðsla er
ekki að mínu skapi. Ef ég væri
hommi þá myndi ég strax viður-
kenna það opinberlega. Ég myndi
einfaldlega segja: „Ég er hommi og
hef alltaf verið hommi. Þetta er
kærastinn minn og í sannleika sagt
þá elska ég tippi og allt sem því við-
kemur.““
Haldinn
fullkomnunaráráttu
- Þú hefur sagt að þú sért haldinn
fullkomnunaráráttu. Hefur það ekki
mikil áhrif á daglegt líf þitt?
„Jú, það er rétt. Ég er hins vegar
alveg búinn að sætta mig við þessa
staðreynd og eftir að ég áttaði mig á
þessu þá varð lífið auðveldara."
- Er erfitt að finna vel skrifuð
handrit í Hollywood í dag - handrit
n
mál
næsta lítið til þess. Inn í söguþráð-
inn er svo fléttað vandamálum sem
sngin fjölskylda er án þótt misalvar-
leg séu.
Páll Grímsson hitti fyrir
skemmstu leikstjórann, Jodie Foster,
ag Robert Downey jr„ einn aðalleik-
ira myndarinnar, í englaborginni
Los Angeles.
með vel gerðum persónum?
„Já, guð minn góður, það er erfitt,
og það er ekki vegna þess að ég sé
haldinn fullkomnunaráráttu heldur
er það bara staðreynd málsins fyrir
leikara yfirhöfuð. Mjög lítill hluti
handrita sem ég les er sérlega vel
skrifaður."
- Hvernig gekk ykkur þremur,
þér, Jodie Foster og Holly Hunter,
að vinna saman, öll haldin full-
komnunaráráttu?
„Það kann að hljóma furðulega en
þetta er örugglega ein auðveldasta
og skemmtilegasta mynd sem ég hef
unnið að. Og ég er mjög stoltur af
þessari mynd. Jafnvel sá hluti af
mér sem heimtar fullkomnun er
mjög sáttur og ánægður með útkom-
una.“
- Þú ert nýorðinn pabbi. Ertu
íhaldssamur faðir?
„Ég held ég sé raunsær faðir. Ég
geri mér grein fyrir að það eru
ákveðnir hlutir í uppeldinu sem ég
hef litla stjórn á. Það er aðeins eitt
sem ég get gert og það er að gefa
gott fordæmi. Ég er að reyna að
gera mitt besta og reyna að gera fá
mistök."
- Hvernig breytti það lífi þínu að
verða faðir?
„Ég veit það eiginlega ekki. Ég
reyni ekki að plata sjálfan mig og
segja að þetta sé kvöð, þetta er
sjálfselska og ekkert annað. Það
sem ég á við er að ég er að gera
þetta fyrir sjálfan mig og engan ann-
an.“
- Hvað heitir barnið og hvað er
það gamalt?
„Það er tveggja ára og heitir
Indio.“
- Indio! Hvers vegna völduð þið
það nafn?
„Ja, ætli þetta hafi ekki verið
nafniö sem hann vildi. Og svo
reyndi hann að láta það líta út eins
og við hefðum átt þessa hugmynd
(hlær). Hann er alveg ótrúlega klár,
að mér finnst, og hefur svo sterkan
persónuleika að ég trúi orðið alger-
lega á endurholdgun. Hann kom í
heiminn með sína eigin verkfæra-
tösku og hugmyndir um hvernig
gera á hlutina. Það er ekki nokkur
möguleiki á að hann hafi getað á að-
eins tveimur árum myndað sér þær
skoðanir sem hann hefur. Hann hef-
ur einfaldlega ekki upplifað og séð
nógu mikið til að hafa getað það.
Þess vegna hlýtur hann að hafa
fæðst með þær - það er allavega
mín skoðun.“
Samsæri
eða misskilningur
- Jodie Foster þykir mjög ákveð-
in og pólitísk kona. Ert þú mjög
pólitískur dags daglega?
„Ég er mjög undrandi og reiður
yfirleitt vegna stöðu mála í heimin-
um. Mín kenning er sú að annað-
hvort er allt saman eitt stórt sam-
særi eða þá að þessi kenning mín er
stórlega ýkt. Annaðhvort er ég sjúk-
lega tortrygginn eða þá að heimin-
um er stjórnað af illum öflum.
Stundum spyr ég sjálfan mig þeirr-
ar spurningar hvað sé eiginlega að
gerast baksviðs í heiminum. Þetta
er eflaust bæði hræðsla við það
hvað verður um mig og mína og
einnig mín persónulega tortryggni.
Ég er kannski bara ímyndunarveik-
ur og allt er í góðu lagi.“
Hér var kappinn kominn á mikið
flug - sannarlega einn einlægasti
maður sem ég hef hitt úr kvik-
myndabransanum - en hann er
tímabundinn eins og aðrir og í þess-
um orðum töluðum kemur aðstoðar-
kona Roberts og segir að tíminn sé
útrunninn og Robert þakkar fyrir
sig.
Páll Grímsson
FRÁ STARFSMANNAFÉLAGINU SÓKN
ALLSHERJARATKVÆÐAGREIÐSLA
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu við
kjör fulltrúa á 38. þing Alþýðusambands íslands 20. til 24. maí
1996. Tillögur uppstillingar nefndar liggja frammi
á skrifstofu félagsins, Skipholti 50a.
Frestur til að skila listum er til kl. 12 á hádegi fimmtudaginn
11. apríl nk.
Hverjum lista þurfa að fylgja meðmæli 100 fullgildra
félagsmanna.
Listum ber að skila á skrifstofu félagsins að Skipholti 50a.
Uppstillingarnefnd Starfsmannafélagsins Sóknar
Auglýsendur athugió!
PÁSKABLAÐ DV,
síðasta blað fyrir páska
kemur út miðvikudaginn 3. apríl.
Skil á stærri auglýsingum
í það blað er fyrir kl. 16.00 mánudaginn 1. apríl.
Fyrsta blað eftir páska
kemur út eldsnemma að morgni
þriðjudagsins 9. apríl.
Skil á stærri auglýsingum í það blað
er fyrir kl. 16.00 þriðjudaginn 2. apríl.
AUGLÝSINGAR
Þverholti 11 - Sími 550 5000
Einstök jörð tii sölu
í Borgarfirði
Uppbygging og staðsetning frábær með tilliti til
starfsemi samtengist hestamennsku og ferða-
þjónustu ýmisskonar ss.:
hestaleiga, skipulagðar hestaferðir, reiðkennsla,
tamningar, þjálfun og sýning hrossa, sumar-
búðir, sala á gistinóttum, söla eða leiga á
sumarbústaðalöndum og margt fleira.
Fallegt bæjarstæði - einstakt útsýni.
Tvö íbúðarhús - 30 hesta hús -
900 m2 reiðskemma, 200 m hringvöllur -
200 ha. land - 24 ha. ræktað afgirt með
rafmagnsgirðingu.
ALLT í TOPPSTANDI!
Einungis tekið við skriflegum fyrirspurnum sem sendist til aug-
lýsingadeildar DV fyrir 20. apríl, merkt „Fasteign 5466“.
ISPÓ - Góður og ódýr kostur!
Ispó er samskeytalaust akrýlmúrkerfi.
Yfir 600 hús
klædd ásíðast-
liðnum 14árum.
5áraábyrgð.
Gerum tilboð í efni
og vinnu, þér að
kostnaðarlausu.
Múrklæðning hf.
Smiðsbúð 3-210 Garðabæ - Si'mi 565 8826