Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1996, Side 38

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1996, Side 38
imglmgas, Rún Knútsdóttir fermist borgaralegri fermingu um helgina. Hún segir að fermingarundir- búningurinn hafi meðal annars falist í fræðslu um skyldur og til- gang, efahyggju og trúna á ann- að líf. DV-mynd ÞÖK LAUGARDAGÚR 30. MARS 1996 27 unglingar fermast borgaralegri fermingu um helgina: Aðallega fullorðinsvígsla Þetta er aðallega fullorðinsvlgsla og líka mikið fyrir krakka í öðrum trúflokkum. Borgaraleg ferming er líka fyrir krakka sem hafa átt erfitt með að aðlag- ast í skólanum og eru ekki kristinnar trúar. Þetta er ósköp svipað og venjuleg ferming," segir Rún Knútsdóttir, 13 ára nemandi í Hagaskóla, en hún er í hópi 27 bama sem eiga að fermast borgaralegri fermingu í ráðhúsinu á morgun. Rún segist hafa ákveðið sjálf að fermast borgaralegri fermingu enda hafi hún ekki veriö alin upp við kristna trú. „Foreldrar mínir sögðu aö þeim fyndist að ég ætti frekar að fermast borgaralegri fermingu ef ég tryði ekki á guð. Ég og systir mín höfum aldrei verið aldar upp við trú á guð. Ég er kannski vísindatrúar. Það er nýr trúflokkur, trúir aðallega á geimverur," segir Rún. En hvernig skyldi borgaraleg ferming fara fram? Rún segir að leikari stjórni at- hööiinni og nokkur fermingarbörn eigi að koma með dagskráratriði. Rún á að lesa ljóð eftir Jó- hannes úr Kötlum en svo leika fermingarbörn- in á píanó og fleira. Að lokum er afhent skjal um að þau hafi verið gegnum námskeið fyrir borgaralega fermingu en fermingarbömin hafa hist reglulega einu sinni í viku eftir jól- in. „Við höfum verið með heimspeking, sál- fræðinga og alls konar, aðallega að ræða skyldur og tilgang. Við höfum líka rætt -segir fermingarbarnið Rún Knútsdóttir um efahyggju og trúna á annað líf,“ segir hún um fermingarundir- búninginn. Rún verður í glænýjum fötum í fermingunni eins og flest önnur fermingarböm i landinu. Hún er búin að fá brúnan skokk með mjó- um böndum yfir axlirnar og beinhvítum bol innan undir til að fermast í og svo ætluðu þær mæðgur að kíkja á fermingarskó núna í vikunni. Hún bjóst við að fá hátt í 50 gesti i fermingarveisluna. -GHS Haukur Gottskálksson fermist borgaralegri fermingu um helgina. Hann segir að ferming- arfræðslan hafi meðal annars komið inn á kynfræðslu og vímu- efni, sér hafi þótt gott að vita hversu óholl vímuefni eru. DV-mynd ÞÖK Haukur Gottskálksson: Lærum um vímuefni og fáum kynfræðslu „Krakkamir sem fermast hinsegin læra aðallega um trúna. Mér fmnst að maður eigi að geta notað það sem maður lærir fyrir ferminguna seinna í lífinu. í borg- aralegri fermingu lærum við miklu meira um til dæmis vímuefni, kynfræðslu og svoleiðis," segir Haukur Gottskálksson, 13 ára nemandi í Öldutúnsskóla, en hann fermist borgaralega um helgina og flytur 2ja til 3ja mínútna ávarp. „Ég flyt ávarp um hvað ég hef verið aö gera í feimingartímunum, hverjir hafa haldið það og svoleiðis. Ég skrifa það al- veg sjálfur. Ég er kominn með þrjá fjórðu hlutana af því en á eftir að festa endinn á það,“ segir hann og telur sig geta notið góðs af fermingarundirbúningnum. Hann segir að sér hafi þótt kynfræðslan skemmtileg og fyrirlesturinn um vímu- efnin líka. „Það er gaman að vita úr hverju þetta er ræktað og hversu óhollt þetta er. Það er gott að vita það,“ segir Haukur. in hliðin I. I. : -j§ ' I Guðmundur E. Stephensen, íslandsmeistari í einliðaleik í borðtennis, sýnir hér á sér hina hliðina. DV-mynd BG - segir Guðmundur E. Stephensen borðtennismaður Guömundur E. Stephensen, borðtennismaður úr Víkingi, varð íslandsmeistari í einliðaleik í borðtennis um síöustu helgi eftir harða viður- eign við Kjartan Briem, sem æfir og keppir með dönsku félagsliði. Guðmundur er aðeins 13 ára gamall en hefur orðið íslandsmeistari í borð- tennis síðustu þrjú árin. Hann sýnir hér á sér hina hliöina: Fullt nafh: Guðmundur E. Stephensen. Fæðingardagur og ár: 29. 06.1982. Systkini: Ólafur P. Stephensen og Matthías Stephensen. Farskjóti: Hjól. Starf: Námsmaður. Vasapeningar: Mismikið á viku. Áhugamál: Borðtennis, golf, fótbolti og körfu- bolti. Hefur þú unnið í happdrætti eða lottói? Nei aldrei. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Keppa í borðtennis, leika golf, spila körfubolta og fótbolta og það sem ég er að gera i það og það skiptið. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Að taka til í herberginu. Uppáhaldsmatur: Pizza og hamborgarhryggur. Uppáhaldsdrykkur Egils grape. Hvaöa iþróttamaður stendur fremstur í dag að þínu mati? Michael Jordan. Uppáhaldstfmarit: íþróttablaðið. Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð? Þær eru svo margar að ég nefni engin nöfn. Ertu hlynnt eða andvíg ríkisstjóminni? Hlut- laus. Hvaða persónu langar þig mest að hitta? Jim Carrey. Uppáhaldsleikari: Jim Carrey. Uppáhaldsleikkona: Cyndi Crawford. Uppáhaldssöngvari: Coolio. Uppáhaldsstjómmálamaður: Davíð Oddsson. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Bart Simpson. Uppáhaldssjónvarpsefni: Spaugstofan og íþróttir. Uppáhaldsmatsölustaður: Pizzahúsið. Hvaða bók langar þig mest að lesa? Enga sérstaka. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? X- ið. Uppáhaldsútvarpsmaðuri'Enginn sérstak- ur. Á hvaða sjónvarpsstöð horfir þú mest? Stöð 2. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Þeir eru allir góðir, sérstaklega Hemmi Gunn og Arnar Bjömsson. Uppáhaldsskemmtistaður: Hard Rock. Uppáhaldsfélag 1 íþróttum: Vikingur og Fram. Stefnir þú að einhverju sérstöku í fram- tlðinni? Að lifa heilbrigðu lífi. Hvað ætlar þú að gera í sumarfríinu? Það verður ekkert sumarfrí hjá mér því ég verð í æfingabúðum í Danmörku og Svíþjóð í sumar og mun keppa á Evrópumóti unglinga í júlí, Norðurlandamóti unglinga í júní og á opnum mótum. -GHS Keppi í borðtennis og fæ því ekkert sumarfn ■miMmmmmmmmmmmmmmm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.