Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1996, Qupperneq 39
LAUGARDAGUR 30. MARS 1996
'éttir
Deila Alþýðusambandsins og ríkisstjórnarinnan
Verkalýðshreyfingin undirbýr alvöruátök
í fyrsta sinn síðan 1978 að slagurinn við ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar fór fram
Ef marka má fund formanna að-
ildarfélaga Alþýðusambandsins fyr-
ir viku og þann tón sem verið hefur
á þeim fundum sem forystumenn
verkalýðshreyfingarinnar hafa síð-
an haldið vítt og breitt um landið
um frumvarp ríkisstjórnarinnar um
stéttarfélög og vinnudeilur má bú-
ast við átökum á vinnumarkaði ætli
ríkisstjómin sér að keyra frumvarp-
ið óbreytt í gegnum þingið.
Reynslan frá 1978
FÍillyrða má að ekki hafi
hitnað jafn mikið í kolun-
um milli ríkisstjórnar og
verkalýðshreyfingar og nú
síðan árið 1978. Það ár tók
ríkisstjóm Geirs Hallgríms-
sonar ákveðna þætti kjara-
samninga úr sambandi og
hugðist þannig draga úr
verðbólgu. Þessu var mætt
og mótmælt með skyndi-
verkfalli tvisvar sinnum
yfir veturinn og útskipun-
arbanni á fiski. Það var
Verkamannasambandið,
undir forystu Guðmundar
J., sem stóð fyrir því. Rétt á
eftir var Ásmundur Stef-
ánsson kjörinn forseti ASÍ
og í forsetatíð hans beitti
verkalýðshreyfingin aldrei
afli til eins eða neins.
Mikið undir
Benedikt Davíðsson, for-
seti ASÍ, bendir réttilega á
að það sé ekki lítið undir í
þeim slag sem ríkisstjómin
hefur hafið við verkalýðs-
hreyfinguna. Það er ekki
bara frumvarpið um stétt-
arfélög og vinnudeilur,
heldur líka frumvarpið um
starfskjör starfsmanna rík-
isins. í þeim hópi eru á
milli 8 og 12 þúsund félagar
úr aðildarfélögum ASÍ. Svo
er það frumvarpið um
breytingar á atvinnuleysis-
tryggingunum og loks er
nefnd að störfum á vegum fjármála-
ráðherra um almenna lífeyrissjóða-
kerfið. Hún er komin vel á veg án
þess að hafa eytt einu orði á verka-
lýðshreyfinguna að því er Benedikt
segir.
Viðbrögðjn komu á
óvart'
Enda þótt viðbrögð opinberra
starfsmanna við frumvörpunum
tveimur, sem skerða umsaminn rétt
þeirra, hafi verið hörð, komu hin
hörðu viðbrögð forystumanna Al-
þýðusambandsins stjórnarliðum á
Alþingi í opna skjöldu. Ég er viss
um að enginn þeirra átti von á svo
mikilli hörku.
Mótmæli stjórnarþingmannsins
Guðmundar Hallvarðssonar og af-
sögn Hrafnkels A. Jónssonar á Eski-
firði á störfum innan Sjálfstæðis-
flokksins voru mikill styrkur fyrir
verkalýðshreyfinguna. Þau komu
forystumönnum stjórnarflokkanna
á óvart.
Þegar Páll Pétursson félagsmála-
ráðherra ákvað að taka málið af ASÍ
og VSÍ, sem voru að reyna samn-
ingaleið um umdeildustu atriði
frumvarpsins, hefur hann vanmetið
verkalýðshreyfinguna. Hún hefur
að vísu lítið bært á sér í 18 ár. Hún
lét valtra yfir sig í haust. Hún mót-
mælti vegna 40 þúsund krónanna
sem þingmenn tóku sér án mikils
árangurs. Síðan kom endurskoðun
á kjarasamningunum skömmu síð-
ar. Þá komu upp deilur innan ASÍ
sem veikti samtökin.
En verkalýðshreyfingin er mikið
afl ef hún beitir sér og fátt fær þá
stöðvað hana. Því fengu stjórnar-
flokkarnir, Sjálfstæðisflokkur og
Framsóknarflokkur, að finna fyrir
1978.
Hvers vegna núna?
Menn spyrja eflaust hvers vegna
vaknar risinn nú eftir 18 ár. Full-
yrða má að hin almenna óánægja,
sem ekki fékk útrás við endurskoð-
un kjarasamninganna í haust, eigi
Fréttaljós á
laugardegi
Sigurdór Sigurdórsson
stóran þátt í hörku hins almenna fé-
lagsmanns í verkalýðshreyfingunni.
En það sem veldur alvöruhörku for-
ingjanna er Alþýðusambandsþing
eftir tvo mánuði. Mikil valdabarátta
á sér stað bak við tjöldin innan ASÍ.
Tekist er á um forsetaembættin og
miðstjórnina. Og nú þegar ríkis-
stjórn vegur að verkalýðshreyfmg-
unni ætlar enginn að vera öðrum
minni í að berjast gegn áformum
hennar. Við allt þetta bætist að
kjarasamningar eru lausir eftir níu
mánuði. Verkalýðsforingjar vita
ofur vel um þá miklu óánægju sem
ríkir innan verkalýðshreyfingarinn-
ar vegna bágra kjara. Hver sá for-
ingi, sem ekki sýnir hörku nú og
eins þegar kemur að kjarasamning-
um, á ekki stól sinn vísan næst þeg-
ar kosið verður. Vegna þess alls „er
ekki við mann að eiga“, eins og sagt
er, þegar verkalýðshreyflngin er
annars vegar um þessar mundir.
Breytinga að vænta
Það var greinilegt að Davíð
Oddsson forsætisráðherra gerði sér
grein fyrir þessu þegar hann tók við
mótmælum formannafundar ASÍ
fyrir viku. Enda þótt hann gæti ekki
slegið á fingur Páls Péturssonar og
sagt: „Svona gera menn ekki,“ því
menn flengja ekki annarra manna
börn, þá var ljóst þegar hann tók á
móti mótmælum formannafundar
ASÍ að hann ætlar að leita samn-
inga við Pál og verkalýðshreyfíng-
una um málið. Davíð getur varla
látið Pál draga frumvarpið til baka.
Heldur ekki að svæfa það í nefnd.
En hann getur komið því svo fyrir
að þær breytingar verði gerðar á
frumvarpinu sem Alþýðusambandið
getur sætt sig við.
Þegar mest gekk á í Alþingishús-
inu vegna frumvarpsins
um stéttarfélög og vinnu-
deilur og lotan um frum-
vörpin sem snerta starfs-
menn ríkisins var nýaf-
staðin, var niðurstaða úr
skoðanakönnum Gallups
kynnt. Framsóknarflokk-
urinn tapaði umtalsverðu
fylgi en Alþýðubandalagið
fór yfir 20 prósent. Þá brá
mörgum þingmanni Fram-
sóknarflokksins. Þeir fóru
ekkert leynt með það að
þeir töldu fylgistapið þess-
um frumvörpum að kenna.
Þeir munu því leggja sig
fram við að ná fram breyt-
ingum á frumvarpinu og
þeim öðrum frumvörpum
sem um er deilt og plaga
launþegahreyfinguna. Þeir
vilja mikið til vinna að ná
sáttum við hana.
Leiftursóknin
gengur ekki
Gera má ráð fyrir að
tekið verði fyrir þá leiftur-
sóknar-taktík sem Friðrik
Sophusson hefur notað við
frumvarpið um réttindi og
skyldur opinberra starfs-
manna og lífeyrisréttinda-
frumvarpið. Einnig við
nefndarstörfin um endur-
skoðun almenna lífeyris-
kerfisins. Það, að ekkert
samráð hefur verið haft
við verkalýðshreyfinguna, hefur
reitt hana í heild sinni til reiði. Svo
virðist sem nýsjálenska aðferðin
gangi ekki upp hér.
Ekki er ólíklegt að komandi helgi-
dagar verði eitthvað notaðir til að
ná sáttum í þessu máli. Eitt er alveg
víst, ríkisstjómin leggur ekki í átök
við verkalýðshreyfinguna í þessum
ham. Mönnum er enn í minni
hvemig fór fyrir Sjálfstæðisflokkn-
um og Framsóknarflokknum eftir
átökin 1978.
Það er ekki lítið undir í deilunni við ríkið
segir Benedikt Davíðsson, forseti Alþýðusambandsins
„Það er miklu fleira en bara
frumvarpið um stéttarfélög og
vinnudeilur sem er uppi í deilunni
við ríkisstjórnina. Það er verið að
vinna frumvarp um breytingar á
atvinnuleysistryggingunum í and-
stöðu við launaþegahreyfinguna.
; Þar er um sprengiefni að ræða úti í
verkalýðshreyfingunni ekkert síð-
ur en hitt frumvarpið.
Ekkert við okkurrætt
Breytingarnar á starfskjaralög-
um starfsmanna ríkis og bæja er
mál sem snertir ASÍ líka. Viö erum
með 8 til 12 þúsund manns úr aðild-
arfélögum ASÍ sem starfa hjá ríki
og sveitarfélögum.
Ofan á þetta allt saman bætist
svo að á vegum fjármálaráðuneytis-
ins er aö störfum nefnd sem vinnur
að úttekt á lífeyrismálum á al-
mennum vettvangi, fyrir utan líf-
eyrismál starfsmanna ríkisins.
Þessi nefnd vinnur á fullu og það
hefur alls ekkert verið við okkur
rætt, ekkert samráð verið haft viö
okkur um það mál. Þaö er því ekki
lítið undh' í deilu okkar við ríkis-
valdið," sagði Benedikt Davíösson,
forseti Alþýðusambands íslands, í
samtali viö DV.
Fundaherferð að Ijúka
Hann var spurður hvað liði
fundaherferð ASÍ og hver yrðu
næstu skrefin í deilunni um frum-
varpiö um stéttarfélög og vinnu-
deilur:
„Við ijúkum fundaherferð okkar
um landið um þessa helgi. Að
henni lokinni köllum við til for-
mannafundar og ráðum ráðum okk-
ar. Síðan munum við gera ráðherr-
unum grein fyrir því hvernig við-
horfin eru í hreyfingunni til þess-
ara mála. Það kom fram í málflutn-
ingi stjórnarþingmanna, þegar um-
ræðan um frumvarpið fór fram á
Alþingi, að þetta væri bara stormur
í vatnsglasi hjá verkalýðshreyfing-
unni. Nokkrir forystumenn væru
bara að verja stóla sína. Þeir væru
að blása tÚ óþarfa úlfúðar. Þess
vegna held ég að það sé mjög áríð-
andi að gera ráðherrunum grein
fyrir því, eftir þessa fundasyrpu,
hvert viðhorf hreyfingarinnar er til
málsins," sagði Benedikt.
Hann sagði að forystufólk í
verkalýðshreyfingunni hefði, þegar
frumvarpið var lagt fram, skýrt
bæði forsætisráðherra og félags-
málaráðherra frá því að þetta væri
litið mjög alvarlegum augum innan
verkalýðshreyfingarinnar. Þeim
var sagt að brugðist yrði við í sam-
ræmi við það.
Búast má við hverju
sem er
„Við sögðum þeim einnig að ef
viðhorfiö úti í hreyfingunni væri
eins og það var á formannafundi
aðildarfélaganna síðastliðinn fóstu-
dag mætti búast við hverju sem
væri ef ríkisstjórnin ætlaði að
keyra frumvarpið í gegnum þingið.
Mér skilst að félagsmálanefnd ætli
að senda frumvarpið til umsagnar
allra verkalýðsfélaga í landinu og
miklu fleiri aðila. Þær umsagnir
ættu að fara að koma inn í byrjun
næsta mánaðar. Þá um leið sjá
menn hvað þaö er sem helst er
gagnrýnt. Þá mun koma I ljós hvort
krafan um að frumvarpiö verði
dregið til baka veröi svo almenn að
ráöherrar telji betra að láta það
liggja eða hvort þeir fara út í aö
gera á því meiri háttar breytingar.
Og það er alveg á hreinu að engar
viðræður fara fram um þetta mál
við stjórnarliðið meðan hótunin
um að lögfesta frumvarpið liggur
fyrir,“ .sagði Benedikt Davíðsson.
-S.dór