Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1996, Blaðsíða 2
2
fréttir
LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1996 UV
Helsta gagnrýnin á frumvarpið um stjórn fiskveiða:
Afnám línutvöföldunar
og trillur á aflamarki
- ljóst að það verða engin stórátök um málið
Frumvarpið um stjóm fiskveiða,
það er frumvarpið sem byggt er á
samkomulagi sjávarútvegsráðherra
og smábátaeigenda auk afnáms
línutvöfoldunar, kom til 2. umræðu
á Alþingi í gær. Frumvarpiö verður
afgreitt á þessu þingi.
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur sjávarútvegsnefndar, gagnrýndi
harðlega tvö atriði. Annars vegar
sagði hann smábátaeigendur, sem
völdu aflamarkið á árunum upp úr
1990, vera nú skilda eftir á köldum
klaka. Hann kallaði þann hluta
trilluflotans „gleymdan flota“. Það
væra bara þeir trillukarlar sem
völdu krókakerfið sem verið væri
að hugsa um í þessu samkomulagi.
Þá gagnrýndi hann mjög harðlega
afnám línutvöföldunarinnar. Ekki
síst gagnrýndi hann að í framvarp-
inu er gert ráð fyrir að línubátamir
taki með sér 60 prósent af afla og sé
miðað við tvö bestu árin af síðustu
þremur. Hann sagði að miða ætti
við 5 ára tímabil. Nefndi hann dæmi
um báta sem koma hreinlega slypp-
ir og snauðir út úr þessu.
Svanfriður Jónasdóttir taldi
frumvarpið mjög til bóta en tók
undir gagnrýni Steingríms á afnám
línutvöföldunarinnar.
Síðari hluta dags í gær var um-
ræðunni frestað en ljóst er að ekki
er fyrirstaða á þingi og því líklegt
að þetta frumvarp renni í gegn. Það
er engu líkara en LÍÚ eigi „aungv-
an“ vin lengur á Alþingi.
-S.dór
Eva Lind Jónsdóttir og Karitas Sæmundsdóttir hafa stofnað kaffihús við Garðatorg í Garðabæ. Þær eru fjórtán ára
og selja gestum og gangandi vöfflur meö sultu og rjóma. DV-mynd ÞÖK
Fjórtán ára athafnakonur stofna kaffihús í Garðabæ:
Betra en að vera
í unglingavinnunni
- segja þær og telja að reksturinn standi undir sér
Alþingi:
Vandræðagang-
ur með skatta-
mál forseta ís-
lands
Framvarp sem þingmenn úr
| öllum flokkum, með Ólaf
Hannibaisson, þáverandi vara-
þingmann í broddi fylkingar,
lögðu fram í haust, um að skatt-
leggja laun forseta íslands var
rætt í allsherjarnefnd í gær.
Engin ákvörðun var tekin því
málið er allt hið erfiðasta. Sagði
Guðný Guðbjömsdóttir þing-
kona að nefndarmenn hefðu
I ákveðið að fresta málinu fram
| yfir helgi.
Samkvæmt heimildum DV er
þetta mál allt hið erfiðasta fyrir
þingið. Ef breyta á lögum um
forseta íslands hvað varðar
skattlagningu launa verður að
gera það núna. Eftir að forseti
hefur tekið við völdum má ekki
breyta kjörum hans nema með
stjórnarskrárbreytingu.
Laun forseta íslands eru 400
, þúsund krónur á mánuði, skatt-
fríar. Þá greiöir forsetinn ekki
tolla og yfirhöfuð engin opinber
gjöld. Menn spyrja hvernig á að
fara með þau mál. Ef skatt-
leggja á laun forseta veröur að
hækka þau í um 600 þúsund
krónur þannig að hann lækki
ekki í útborguðum launum frá
því sem nú er.
Maki forseta íslands greiðir
ekki heldur skatta af launum
sínum, séu þau einhver. Sam-
kvæmt heimildum DV er helst
| r*ú um að breyta þessu atriði
| þannig að forsetamaki greiði
skatta af sínum launum.
Þá óttast þingmenn að ef
| laun forseta yrðu hækkuð og
skattlögð neyddist kjaradómur
til að taka tillit til þess við
launaákvörðun annarra opin-
berra starfsmanna og að skriða
færiafstað. -S.dór
Neskaupstaður:
Bakkaöi á þrjá bíla og
mann á fótboltaleik
Fyrir ókunnugleika við notkun á
sjálfskiptum bílum varð ökumaður í
Neskaupstað fyrir því að bakka á
þrjá bíla og mann sem var aö horfa
á fótboltaleik.
Meiddist sá sem ekið var á lítil-
lega á hné. Tveir bílanna skemmd-
ust mikið en hinir tveir minna.
„Okkur vantaði vinnu i sumar og
vildum gera eitthvað annað en að
fara í unglingavinnuna," segir Eva
Lind Jónsdóttir, fjórtán ára athafna-
kona í Garðabæ, en hún hefur opn-
að kaffihús í félagi við Karítas Sæ-
mundsdóttur vinkonu sina.
Þær luku prófu í 9. bekk Garða-
skóla i vor og setjast í 10. bekk í
haust. Fyrir krakka á þeirra aldri
er fátt annað að gera en að stunda
unglingavinnuna eða að passa böm.
Hvorugt vildu þær gera og þvi var
Kaffi hornið - þar sem sólin skín -
stofnað.
Fyrstu gestirnir gæddu sér þar á
vöfflum og supu kaffi með síðasta
þriðjudag. Þær vinkonur hafa feng-
ið pláss fyrir rekstur sinn í homi á
verslunarmiðstöðinni við Garða-
torg.
„Pabbi keypti borð og stóla,“ seg-
ir Eva um húsbúnaðinn og ekki
þarf mikið meira til að reka kaffi-
hús. Vöfflujámið er t.d. gamalreynt
heimilisjám og vöfflurnar úr því
eru ósviknar heimavöfflur. Auk
þeirra er seld hjónabandsæla og
ýmsar smákökur.
„Við megum bara selja kökur
bakaðar í viðurkenndu eldhúsi.
Þess vegna getum við ekki bakað
þær sjálfar,“ segir Karitas. Þrátt
fyrir innkaupin telja þær vinkonur
að reksturinn standi undir sér.
Viðskiptavinimir koma einkum
milli þrjú og fimm. Þó er slæðingur
allan daginn og alltaf nokkuð að
gera rétt fyrir hádegið.
„Við héldum fyrst að það yrði
mest að gera í hádeginu en kaffitím-
inn er bestur," segir Karitas. Við-
skiptavinimir era flestir komnir á
efri ár en unglingarnir virðast ekki
hafa uppgötvað staðinn enn. Þó er
gos til sölu.
„Gamla fólkið, sem býr í þjón-
ustuíbúðunum hér við hliðina, kem-
ur mikið og einnig fullorðið fólk
sem kemur á Garðatorg," segir Eva.
-GK
-GK
r ö d d
FÓLKSINS
904-1600
Á að hafa verslanir
opnar á sunnudögum?
Þú getur svarað þessari
spurningu með því að
hringja í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
Já jJ
*" zj
stuttar fréttir
Olís í Fjarðarkaupum
Olís tók í gær fyrstu skóflu-
stungu að sjálfsafgreiðslubens-
ínstöð við Fjarðarkaup í Hafn-
arfirði í gær, í samstarfi við
stórmarkaðinn. Fleiri slíkar
stöövar veröa reistar af Olís á
næstu mánuðum.
Myllan verðlaunuð
Myllan fékk í gær viðurkenn-
ingu frá Heilbrigðiseftirliti
Reykjavíkur fyrir innra gæöa-
eftirlit með matvælafram-
leiðslu. Myllan er fyrsta bakarí-
ið sem fær slíka viðurkenn-
ingu.
Lausn á Smugudeilu
Eftir fundi í Reykjavík með
sjávarútvegsráðherram Noregs
og Rússlands telur Halldór Ás-
grímsson gi-undvöll f'yrir lausn
á Smugudeilunni í Barentshafi.
RÚV greindi frá þessu.
30 togarar úti
Sjómenn á 30 toguram á veið-
um á Flæmingjagrunni fá ekki
frí á sjómannadag. Samkvæmt
RÚV ætlar Sjómannafélag Eyja-
fjarðar að kæra þijár útgerðir á
svæðinu vegna þessa.
Eignarhaid í skipum
Bankar munu krefiast eign-
arhalds í nýjum skipum til að
tryggja hagsmuni sina þar sem
óheimilt er að taka veð í kvót-
um. Samkvæmt RÚV er þetta
álit formanns LÍÚ.
Halldór heiðraður
Á fundi með Halldóri Ás-
grímssyni utanríkisráðherra
sæmdi Korielskij, sjávarútvegs-
ráðherra Rússlands, hann sér-
stakri viðurkenningu fyrir
framlag hans til góðra sam-
skipta íslendinga og Rússa á
sviði sjávarútvegsmála.
129 verkefni styrkt
Nýsköpunarsjóður náms-
manna hefur úthlutað 25 millj-
óna króna styrkjum til 129
verkefna en alls bárust um-
sóknir um 330 verkefni. Verðug
verkefhi þóttu 270. Um 140 um-
sóknum var því hafnað.
Toili í Regnboganum
Tolli opnar málverkasýningu
í Gallerí Regnboganmn í dag
sem ber yfirskriftina Stríðs-
menn andans. Gulli Briem
frumflytur eigið ásláttarverk
við opnunina.
Þýsk heimsókn
Aðstoðarutanrikisráðherra
1 Þýskalands er í opinberri heim-
| sókn hér á landi um helgina í
tilefhi af vígslu nýrrar sendi-
ráðsbyggingar með Bretum við
Laufásveg 31 á morgun.
Flóöamat á Flateyri
Ií umhverfismati Skipulags
rikisins á snjóflóðahættu á Flat-
eyri er lagt til að reistir verði
Itveir leiðigarðar ofan byggðar-
innar til varnar snjóflóðum úr
Skollahvilft og Innra- Bæjargili,
auk þvergarös milli leiðigarð-
anna.
Metviðskipti
Mestu viðskipti frá upphafi á
einum degi á Verðbréfaþingi ís-
lands voru í gær. Heildarvið-
skiptin námu 1,8 milljörðum
króna, þar af 1,2 milljörðum í
ríkisvíxlum.
Bankar í þrot
Tímaritið Visbending segir
Ihættu á að bankar hérlendis
komist i þrot vegna mikilla
skulda heimilanna, Samkvæmt
RÚV er Seðlabankinn ekki á
sömu skoðun.
Nýr formaöur
Guðmundur Ágústsson var í
| gær kjörinn fbrmaður nýrrar
sóknarnefndar Langholtskirkju
í stað Guðmundar Pálssonar.
5 Guðmundur verður áfram í
f nefndinni.