Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1996, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 1. JUNÍ 1996
19
Harpa Rós Gísladóttir, nemandi í Fjölbraut í Garðabæ, er Ford stúlkan 1996:
Byijaði snemma að punta
sig og klæða í nælonsokka
„Hún byrjaði snemma að klæða
sig í nælonsokka og punta sig. Það
hefur kannski leynst í henni ein-
hver fyrirsætufruma,“ segir Helga
Ólafsdóttir, móðir Hörpu Rósar
Gísladóttur, Ford stúlkunnar 1996.
Það var fjölmenni á Hótel íslandi
föstudagskvöldið 24. maí þegar Feg-
urðarsamkeppni íslands fór fram og
góð stemmning ríkti meðal áhorf-
enda eftir góðan mat og skemmtiatr-
iði þegar tilkynnt var hverjar hefðu
unnið keppnina. Foreldrar Hörpu
Rósar, Helga og Gísli Matthias Ey-
jólfsson og makar þeirra, eru sam-
mála um að úrslitakvöldið hafi ver-
ið mjög hátíðlegt og eftirminnilegt.
Eins og kunnugt er er búið að
sameina Ford-keppnina og Fegurð-
arsamkeppni íslands og var það Sól-
veig Lilja Guðmundsdótt-
ir, sem var kjörin feg-
urðardrottning Is-
lands 1996, en
Harpa Rós
Gísladóttir
lenti í
þriðja sæti og var einnig kjörin
Ford stúlkan 1996 og Oroblu stúlk-
an.
Harpa Rós fékk fjöldann allan af
veglegum verðlaunum. Hún fékk
meðal annars í verðlaun þátttöku í
Ford Models-keppninni, aðalkeppni
Ford Models-fyrirtækisins sem
haldin verður seint á árinu, kort í
líkamsrækt og svo verður hún vel
birg af fallegum undirfótum og
sokkabuxum næstu árin.
Studdum hana
eins og alltaf
„Já. Þetta kom mér á óvart en við
komum auðvitað allar til greina,
annars hefðum við ekki verið í þess-
ari keppni,“ segir Harpa Rós um
það hvort hún hafi átt von á því að
komast í úrslit og fá titil i keppn-
inni. Hún segir að stúlkurnar hafi
ekkert velt fyrir sér innbyrðis
hvaða stúlkur stæðu uppi sem sig-
urvegarar á úrslitakvöldinu.
„Við áttum alveg eins von á því
að hún fengi einhverja titla úr því
að hún var að gefa kost á sér í þetta
en spáðum ekki mikið í það. Við
vildum fyrst og fremst styðja hana í
því sem hún var að gera
eins og við gerum
alltaf og ég held
að við séum
mjög ánægð
með útkom-
una,“ segir
Gísli
Harpa Rós Gísladóttir, Ford stúlkan 1996, tekur þátt í aöalkeppni Ford Models-fyrirtækisins, sem haldiö veröur í Kali-
forníu eöa Berlín síöar á þessu ári. Keppnin veröur einstaklega vegleg aö þessu sinni því aö 50 ár eru liðin frá því
fyrirtækið hóf starfsemi sína. Hér er hún meö systkinum sínum.
Urvals
SUMARBLÓM
GOTT VERÐ
6 stjúpur í bakka, kr. 220,-
10 stjúpur í bakka, kr. 360,-
20 stjúpur í bakka, kr. 690,-
úarðshom
v/Fossvogskirkjugarð, sími 55 40 500
alla daga 10-22
Matthías, faðir hennar.
Harpa Rós segir að titlarnir
breyti sér ekki á neinn hátt og hún
segist ekki láta þetta stíga sér til
höfuðs.
/■
Avísun
á útlönd
-Gjarnan er talað um Ford keppn-
ina sem ávísun á atvinnutækifæri í
fyrirsætubransanum i útlöndum.
Hefur Harpa Rós áhuga á slíkum
störfum?
„Ég er á módelsamningi hjá Esk-
imo Models þannig aö ég hef verið
að vinna aðeins við módelstörf og
tískusýningar, svo verður bara að
koma í ljós hvernig þetta verður, til
dæmis í sambandi við aðalkeppnina
úti. Ég er svo óákveðin sjálf að það
er númer eitt núna að klára skól-
ann. Síðan kemur hitt í ljós,“ segir
Harpa Rós.
Sjálfsagt að
hugsa málið
Harpa Rós er á öðru ári á mark-
aðs- og hagfræðibraut Fjölbrauta-
skólans í Garðabæ og býst við að
klára stúdentspróf á þremur og
hálfu ári. Hún hefur mikinn metnað
og dug og góða námshæfileika og
stefnir að því að fara í viðskipta-
fræði í háskólanum að því loknu.
Henni bauðst að fara í fyrirsætu-
störf til Parisar um áramótin en
hætti við því að hún vildi klára
skólann.
„Ef bitastæð tilboð koma þá
finnst mér alveg sjálfsagt að hugsa
um það en vil ekki að stúlkum, sem
eru í fyrirsætustörfum, sé pískað út
fyrir ekki neitt því að þær leggja
heilmikið á sig. Maður sá það bara
í undirbúningnum fyrir keppnina.
Það var heljarins vinna," segir Gísli
Matthías.
Á stóra
fjölskyldu
Harpa Rós hefur fjölmörg áhuga-
mál og hefur verið í djassballett í
mörg ár. Hún hefur gaman af sundi
og allri hreyfingu en segist hafa
mest gaman af að horfa á íþróttir þó
að hún hafi ekkert á móti sem slík-
um. Hún á stóra og samheldna fjöl-
skyldu, sem hún vill sinna sem oft-
ast. Mamma hennar, Helga Ólafs-
dóttir, er gift Halldóri Arasyni og
pabbi hennar, Gísli Matthías Eyj-
ólfsson, er giftur Ólafiu Ólafsdóttur.
Harpa Rós á fimm yngri systkini.
Sérlega vegleg
aðalkeppni
Katrín Pálsdóttir, umboðsmaður
Ford Models á íslandi, hitti allar
stúlkurnar í fegurðar- og fyrirsætu-
keppninni áður en aðalkeppnin fór
fram og sagði þeim frá Ford Models-
keppninni sem venjulega hefur far-
ið fram í Kaliforníu í Bandaríkj-
unum. Hugsanlegt er að keppnin
verði haldin í Berlín í Þýskalandi
seint á þessu ári og verði þá sérstak-
lega vegleg í tilefni af 50 ára
starfsafmæli Ford Models.
í framhaldi af keppninni kemur
svo í ljós hvort Harpa Rós fær tilboð
um starf sem fyrirsæta á erlendum
vettvangi. -GHS
Harpa Rós á stóra fjölskyldu sem hún vill sinna vel. Hér er hún meö foreldr-
um sínum og mökum þeirra. í neöri röð: Ólafía Ólafsdóttir, Halldór Arason,
Harpa Rós, Gísli Matthías Eyjólfsson og Helga Ólafsdóttir. DV-mynd GS
r
Askrifendur fá
aukaafslátt af smáauglýsingum
5505000
auglýsingar