Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1996, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1996, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1996 UV Tamara Mola Fonseca, eiginkona Julians Duranona Larduets, eins fræknasta leikmanns KA á síðasta keppnistímabili, hefur engan áhuga á íþróttum og hefur aldrei haft. Tamara stundaði aldrei neinar íþróttir sem krakki heima á Kúbu og hún fylgdist aldrei með neinum íþróttum. En tímarnir breytast og mennirnir með. Þegar Tamara kynntist Julian Duranona áttu þau stefnumót á handboltaleikjum og hvergi annars staðar. Nú stundar Tamara eróbikk, heldur með KA og sækir alla leiki KA á íslandi. Duranona hefur unnið hug og hjörtu allra handboltaáhugamanna á Akureyri og þótt víðar væri leitað með framkomu sinni á vellinum. Á nokkrum mánuðum er hann orðinn eitt helsta átrúnaðargoð handboltaá- hugamanna og verðandi þjóðhetja því að hann hefur fengið íslenskan ríkisborgararétt og leikur hugsan- lega með landsliði íslands á næsta keppnistímabili. Það er þó ekki fer- ill Duranona sem er til umræðu að þessu sinni heldur konan á bak við manninn. Það er að sjálfsögðu Tam- ara sem verður fyrir svörum. í dag er í dag „Ég er fædd og uppalin í stórri fjölskyldu," byrjar Tamara að segja frá sjálfri sér þar sem við sitjum þrjú, Tamara, Duranona og blaða- maður DV, við borð á Greifanum á Akureyri í síðustu viku, og bætir við: „mamma er kennari og pabbi leigubilstjóri. Ég á tvo bræður. Stóri bróðir minn er flugumferðarstjóri. Hann er giftur rússneskri konu og býr í Rússlandi. Hinn bróðir minn er að læra tölvunarfræði. Ég var í fjögur ár að læra að verða barna- kennari en ég kláraði það ekki,“ segir Tamara og játar að hana langi til að kenna börnum á Islandi spænsku. „Fjölskyldan á Kúbu heldur mik- ið saman. Ég er eina stelpan og nú þegar stóri bróðir minn býr í Rúss- landi og ég er farin burt eru foreldr- ar mínir leiðir. Þetta er í fyrsta skipti sem fjölskyldan er svona mik- ið tvístruð," segir hún, „en í dag er í dag og á morgun er á morgun. Mér likar vel að búa á íslandi en ég veit ekki hvernig framtíðin verður, kannski fær Julian nýjan samning, hver veit,“ segir hún. Leita sár að íbúð Tamara og Julian hafa ákveðið að búsetja sig á íslandi og eru farin að leita sér að nýrri íbúð en gefa ekk- ert upp um fyrirhugaðar barneignir og ekki er vitað til þess að barn sé á leiðinni. Þau hafa fram að þessu búið í þriggja herbergja íbúð, sem KA hafði milligöngu um að leigja fyrir þau, og KA-konur settu íbúð- ina í stand áður en Tamara kom í haust, hengdu upp gluggatjöld og gerðu íbúðina heimilislega. En hvernig skyldu þau Duranona hafa kynnst? Var það ást við fyrstu sýn? „Nei,“ segir Tamara og brosir breitt. „Ég þekkti Julian ekki neitt og vissi ekkert um hann þegar vinur minn bað mig einu sinni um að koma með sér í heimsókn til hans. Ég fór með honum í heimsókn árið 1990 en það var ekki fyrr en 1991 sem við byrjuðum saman. Við giftum okkur 5. ágúst 1993 á afmælisdegi móður minnar,“ segir hún og kveðst ekki eiga í neinum vandræðum í heima- landi sínu. Hún segist geta farið þangað þegar hún vill. „Núna er ég gift íslendingi,“ bætir hún og skírskotar þar til þess að Duranona er búinn að fá nýjan ríkisborgararétt. Hefur lært að prjóna Duranona og Tamara hafa bæði verið fljót að aðlagast íslensku þjóð- félagi og kynnast fólki. Tamara kom til eiginmanns síns á íslandi síðasta haust og hefur verið að stússa ýmis- legt síðan, meðal annars sest á skólabekk til að læra íslensku, þar sem hún kynntist fullt af erlendum konum sem búa á Akureyri, og farið á námskeið í matreiðslu, svo eitthvaö sé nefnt. Hún hefur líka lært prjónaskap því að nágranna- kona vildi endilega sýna henni hvemig hún ætti að bera sig að Ekki fer neinum sögum af af- rekum við prjónana og Tamara segist ekki vera Tamara hefur tekið þátt í vinnu kvennanna í KA en þær hafa séð um kaffisölu fyrir leiki og í hléi í vetur og fallið vel inn í hópinn. Auðvitað hafa mætt Tamöru Gjörbreyting frá Kúbu Tamara segir að ísland hafi kom- ið sér verulega á óvart enda þjóðfé- lagið allt öðruvísi, venjurnar og loftslagið gjörólíkt því sem hún hef- ur átt að venjast á Kúbu. Hér hafa allir allt til alls, búa í góðu húsnæði og líða engan skort og auðvitað voru það viðbrigði fyrir hana að sjá það. Og loftslagið er auðvitað sér á parti. Hér segist hún verða að klæð- ast skyrtu og úlpu en heima á Kúbu hafi hún gengið um á skyrtu og stuttbuxum eða pilsi. Tamara læt- ur vel af lífinu á íslandi og seg- ir að sér hafi þótt vænt um það hvað sér hafi verið tek- ið hlýlega og elskulega af öllum á Akureyri strax við komuna. Tamara heldur að sjálfsögðu sambandi við fjölskyldu sína á Kúbu og hefur reglu- lega samband, ýmist bréflega eða símleið- is. Hún les mikið og mamma hennar sendir henni stundum bækur á spænsku því að bæk- Tamara og Duranona hafa aðlagast lífinu á Akureyri mjög vel, eru á kafi í félagsstarfinu innan KA og bera áhangendur liðsins þeim vel söguna. Tamara þykir jákvæð og glaðlynd og ákveðin í að spjara sig vel á ís- landi þó að lífið hér sé allt öðruvísi en á Kúbu. Þau hafa ákveðið að setjast hér að. DV-mynd GHS að prjóna neitt sérstakt í augnablik- inu. Erfitt um tíma Á nokkrum mánuðum er Duranona orðinn eitt helsta átrúnaðargoð hand- boltaáhugamanna fyrir noröan og verðandi þjóðhetja því að hann er nýbú- inn aö fá íslenskan rikisborgararétt. Tamara tekur umstanginu kringum Duranona meö jafnaöargeði og tekur þátt í starfinu kringum KA-liöið. DV-mynd GHS Tamara og Duranona hafa aðlag- ast fólkinu kringum KA-liðið mjög vel og eyða talsverðum tíma í KA- heimilinu þar sem allir eru eins og ein stór fjölskylda. Þau þykja já- kvæð og glaðlynd og mjög skemmti- leg og þeim líður, að sögn, vel á ís- landi. Áhangendur KA, sem til þekkja, segja að Tamara hafi strax frá upphafi gert sér grein fyrir að hún yrði líka að sækja í félagsskap- inn, ekki væri nóg að sitja heima. Duranona margir erfiðleikar því að það er ekkert auðvelt að vera frá jafnfjarlægu landi og Kúbu. Það var vitanlega erfitt fyrir Tamöru eftir að Duranona flúði frá Kúbu en hann yfirgaf landslið Kúbumanna á keppnisferðalagi í Argentínu fyrir rúmu ári. Hún fékk þó að yfirgefa landið á löglegan hátt. Um tíma í vetur áttu þau hjónin erfitt því að Duranona missti fóður sinn. Svo var hann lagður inn á sjúkrahús fyrir sunnan vegna höfuðkvala án þess að nokkuð fyndist. Þessa erfið- leika, eins og alla aðra, hafa þau komist yfir. ur eru svo til ófáanlegar á íslandi. Svo fær hún stundum lánaðar bæk- ur hjá vinafólki, íslenskri konu og spænskumælandi manni á Akur- eyri, sem hefur stutt vel viö bakið á þeim. Duranona og Tamara hafa reynt að ferðast um ísland, farið aðeins um Norðurland, og í sumar er mein- ingin að fara í stærri reisu, keyra suður og fara að Gullfossi og Geysi, eins og sannir ísiendingar gera á sumrin. -GHS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.