Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1996, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1996, Side 20
20 menning LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1996 DV Fjórir listamenn á Fjörviti í Nýlistasafninu: Löngun til að gæla við þennan líkama - sem safnið er, segir Dan Wolgers í viðtali við Sigurð Guðmundsson Fjörvit er nafn á sýningu sem verður opnuð í Nýlistasafninu í dag. Þar verða sýnd verk fjögurra lista- manna, þeirra Dan Wolgers, Carst- en Höller, Christine Hohenbiichler og Irene Hohenbiichler. í sýningar- skrá sem fylgir sýningunni eru við- töl viö listamennina sem birt eru í hinum ýmsu tímaritum og dagblöð- um þannig að dagblöðin og tímarit- in eru í heilu lagi hluti af sýningar- skránni. Sigurður Guðmundsson myndiistarmaður hefur tekið viðtöl- in. Hér á eftir fer viðtal Sigurðar við listamanninn Dan Wolgers. - Komdu sæll, Dan. Þetta er í fyrsta skipti sem þú kemur til ís- lands, velkominn til landsins. Hvernig leist þér á þann lands- hluta sem þú gast séð akandi á leiðinni frá Keflavík til Reykja- víkur? „Þaö sem hafði kannski mest áhrif á mig var að ég sá bílslys, sem áreiðanlega hefur verið banaslys og þetta er í fyrsta skipti sem ég sé banaslys. Mjög einkennilegt." - Þegar Carsten Höller kom hingað sá hann sérkennilegasta regnboga sem hann hafði séð.“ „Það hljómar betur.“ - Þú sagðir mér í Stokkhólrni um daginn að þú værir hrifinn af því sem þú kallaðir „The Iceland- ic way“. Hvað er það? „Það er eitthvað inn í framsögu- máta íslenskra listamanna sem er svo beinskeytt, svo nálægt ein- hvequ upprunalegu, svo einfalt og sjálfsagt." -Geturðu sagt eitthvað um þína þátttöku í sýningunni? „Það eina sem ég vissi um þessa sýningu var verk Carstens Höllers um fíðrildin, herbergi með fiðrild- um. Um leið fannst mér eins og bygging Nýlistasafnsins væri lík- ami og safnið væri með fiðrildi í maganum. Út úr þessu spratt löng- un hjá mér að gæla frekar við þenn- an líkama. Eftir nokkrar vangavelt- ur, sem ég átti með sjálfum mér, ákvað ég að nota þá aðferð sem á ensku er kölluð „piercing" og bygg- ist á því að setja járnhringi og aðra málma í gegnum hin ýmsu göt á lík- amanum. Ég tók með mér töluvert af „piercing" hringjum og nú ætla ég að eyða kvöldinu og ef til vUl nóttinni í að fmna út hvar hinir ýmsu „intímu“ blettir á líkama Ný- listasafnsins eru. Til eru viðkvæmir blettir, til eru blettir sem upplagðir eru fyrir skart, til eru einkablettir, og enn aðrir blettir eru kynferðis- legir, sumir beinlínis dónalegir. Að öilum þessum blettum mun ég leita og gera gat á þá og festa hringi mína. Það má segja eins og við töl- uðum um i símanum um daginn að ég sé með þessu verki að „húmanísera" bygginguna." - Nú vinnur þú ýmist með svo kölluð „project" eða býrð til „objecta“ hluri, sem þú heldur Uka sýningar á. Þetta verk þitt hér er ekki hlutur heldur „project". Mig langar að spyrja þig hvort höfðar meira til þín. Hvemig samband þitt er gagn- vart þessu tvennu? „Þegar ég geri project þá finnst mér eins og það sé persónulegra fyr- ir mig, meira ég sjálfur, eins og ég er.“ - Ég hef nú notið þinna „objecta" aldeilis, maður. Það eru bara nokkrar vikur síðan ég var að setja upp sýningu í gallerí Riis í Ósló. Þá var á borðinu hjá galleríistanum „object" eftir þig sem er lítill járnkassi með einum takka á. Kassinn er til að leita svara við spurningum sem er Visatilboð til Benidorm 25. júní frá 35.532 Heimsferðir og Visa bjóða þér einstök ferðakjör til Benidorm 25. júní. Með því að greiða með Visakortinu þínu getur þú tryggt þér 10.000 kr. afslátt fyrir manninn í ferðina 25. júní til Benidorm. Heimsferðir fljúga vikulega til þessa vinsælasta áfangastaðar Islendinga og í boði eru góð íbúðarhótel með allri þjónustu, í hjarta Benidorm. Benidorm - 25. júní Verð frá kr. 35.532 M.v. hjón með 2 böm í 2 vikur, Europa Center. Verð kr. 49.160 M.v. 2 í íbúð í 2 vikur, Europa Center Costa del Sol - 9. júlí Verð kr. 42.632 M.v. hjón með 2 böm í 2 vikur, E1 Pinar. HEIMSFERÐIR Austurstræti 17, 2. hæð, sími 562 4600 VISA hægt að svara með jái eða neii. Með því að ýta á hnappinn er annaðhvort svarað já eða nei en þó ekki svo kerfisbundið að mað- ur geti reiknað út svarið. Einnig virðist kassinn hugsa sig ítarlega um áður en maður svarar. Ég var þarna eins og venjulega þegar ég er að setja upp sýningu eftir sjálf- an mig í mestu vandræöum, þá uppgötvaði ég að með því að spyrja kassann hvort þessi mynd ætti að hanga héma eða þarna eða hvar hún ætti að vera þá svaraði hann annaðhvort já eða nei. Þannig spurði ég kassann um stöðu hvers einasta verks á sýningunni og ég hlýddi honum samviskusamlega. Þegar sýning- in var komin upp var mér sagt að þetta væri best uppsetta sýningin mín. „Á þessu sést að verkin mín geta líka haft notagildi." - Ég minnist þín alltaf úr sænskri myndlist frá því ég sá þig fyrst 1985 sem óþekka bamið í sænskri myndlist. En það eru bara tvö ár síðan þú fékkst „lásí djobb“ í leiðinlegum listaskóla í úthverfi Stokkhólms . Þú sagðir mér að þú hefðir aldrei komist jafn hátt í þjóðfélagsstiganum. Dan Wolgers er meðal þeirra fjögurra listamanna sem sýna verk sín í Ný- listasafninu á Listaháíö í Reykjavík. Sýningin nefnist Fjörvit. DV-mynd GS Núna tveim ámm seinna ertu orðinn prófessor við Listaháskól- ann í Stokkhólmi og á síðustu sýningu i Stokkhólmi seldirðu alla sýninguna. Hvað er að gerast með þig? ???“ í þjóðfélagsstiganum. sýnmgu í Stokkholmi seldirðu Leikið á 330 ára gamla Amati-fiðlu við setningu Listahátíðar: Sætur en ekki hljómmikil tónn - segir Guðný Guðmundsdóttir konsertmeistari um fiðluna sem metin er á 15 milljónir „Það er alltaf gaman að prófa nýjar fiðlur. Sagan á bak við Amati-fiölurnar er merkileg vegna þess að þetta er fyrsta fiðlufjölskyldan sem verður fræg. Ættfaðirinn, André Amati, er frá því á 16. öld. Bamabam hans, Nicole Amati, smíðaði þessa fiðlu en mér skilst að hann hafi kennt sjálf- um Stradivar- ius,“ sagði Guð- ný Guðmunds- dóttir, konsert- meistari Sinfón- íuhljómsveitar íslands, í sam- tali við DV en hún lék stuttan einleik eft- Bach á 330 ára gamla Amati-fiðlu við setningu Listahá- tíðar í Reykjavík 1996 í Listasafni íslands í gærkvöldi. Fiðlan er í eigu uppboðsfyrirtækisins Sotheby’s í London og er metin á um 15 milljónir króna. Sotheyby’s lánaði fiðluna vegna opn- unar Listahátíðar og verður fiðlan til sýnis i Listasafni íslands, aðeins um þessa helgi þar sem hún fer aftur til London vegna uppboðs þann 11. júní nk. Þar er búist við að slegist verði um þennan dýrgrip. Eins og kom fram í máli Guðnýjar smíðaði Nicole Amati fiðluna, að því er talið er i kringum 1670, þegar hann var á áttræðisaldri. Guðný sagði að gaman væri að kynnast hljóðfærum af þessu tagi. Verðgildið liggur í sögunni „Maður sér ekki margar Amati-fiðlur. Ég hef séð fleiri Stradivarius-fiðlur. Verðgildi þessarar fiðlu liggur meira í sögunni heldur en hljómgæð- um. Hún er orðin það mikið eldri en þær fiðlur sem mest er spilað á í dag, svona 50-100 árum eldri. Amati-fiðlur eru því ekki mikið notaðar af einleikurum en gripurinn er svo sannar- lega merkilegur," sagði Guðný. Hún sagðist hafa fengið fiðluna í hendur í gærmorgun og gripið fljótlega í hana. „Það var sætur og fínn tónn í henni en hún er ekki hljómmikil." Onnur fiðla með í för Amati-fiðlan er ekki ein í for til Islands. Forstöðumaður hljóðfæradeildar Sotheby’s, Graham Weils, kom með hana og einnig dýrmæta fiðlu t sem Frakkinn Jean-Baptiste Vuillaume smíðaði árið L1846. Sú fiðla verður sömuleiöis til sýnis í Listasafni íslands um helgina. Hún er metin á 4,5 til 5 milljón- ir. ----1 -bjb Guöný Guðmundsdóttir með Amati-fiöluna dýr- mætu í höndunum. Fiölan er smíöuð áriö 1670 af Nicole Amati, lærifööur sjálfs Stradivariusar. DV-mynd BG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.